Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 201–250 af 2124
    Raða eftir:
    25. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stuðningur við Ævintýrabúðir Glóar

    Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki tekið ákvörðun um fjárveitingu til Ævintýrabúða Glóar í sumar.

    23. feb. 2026Rit og skýrslur, Félags- og fjölskyldumál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stöðuskýrsla aðgerðahóps gegn ofbeldi meðal barna - janúar 2026

    febrúar 2026 / Mennta- og barnamálaráðuneytið Stöðuskýrsla aðgerðahóps gegn ofbeldi meðal barna - janúar 2026 Aðgerðahóp stjórnvalda um víðtækar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum 2024-2026 er falið að hrinda í framkvæmd aðgerðum stjórnvalda til að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi. Um er að ræða tveggja ára verkefni til þess að innleiða aðgerðirnar með reglubundinni eftirfylgni og árangursmælingum

    23. feb. 2026Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Minna um vopnaburð og börnum líður betur

    Árið 2024 vöktu alvarleg ofbeldismál þar sem börn komu við sögu mikla athygli og áhyggjur almennings. Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum og um leið nýjar áskoranir.

    19. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Íþróttasjóði 2026

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026. Úthlutað er til 76 verkefna fyrir alls 32 milljónir króna.

    18. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr Menntarannsóknasjóði

    Fimm rannsóknarverkefni hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði að heildarupphæð 148,5 m.kr. Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

    18. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Áform um fyrstu ungmennastefnuna til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir áform um mótun ungmennastefnu sem á að lýsa því hvernig stjórnvöld styðja við ungmenni og tryggja þeim raunveruleg tækifæri, réttindi og rödd í samfélaginu.

    12. feb. 2026Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ísland tekur þátt í TIMSS

    Ísland tekur þátt í TIMSS 2027 – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu. Með þátttökunni fjölgum við mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði en til langs tíma hefur PISA-rannsóknin verið eini slíki mælikvarðinn.

    12. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    Nýr 30.000 fermetra Tækniskóli við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði fyrir þrjú þúsund nemendur verður byggður í einum áfanga í stað tveggja. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans undirrituðu samkomulag þess efnis á Menntadegi atvinnulífsins í gær. Markmiðið er að eyða óvissu um framtíð Tækniskólans og flýta fyrir byggingu burðarstólpa iðn- og verknáms á Íslandi á einum stað og í fullri stærð.

    11. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tæpir tveir milljarðar í uppbyggingu íþróttastarfs 2026 – framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu. Áhersla er á að bæta og jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, einkum á landsbyggðinni, og að styðja betur við afreksíþróttafólk. Heildarfjárframlagið í samningunum fimm nemur samtals um 1,8 milljarði króna.

    06. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun úr afrekssjóði í skák 2026

    Úthlutun úr afrekssjóði í skák fyrir árið 2026 liggur nú fyrir. Alls hljóta 13 skákmenn styrki á árinu 2026.

    05. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tvö hundruð milljónir til samstarfs og nýsköpunar í íslensku fyrir innflytjendur

    Mennta- og barnamálaráðherra úthlutaði nýlega styrkjum til að efla samstarf og nýsköpun á vettvangi íslenskunnar sem annars tungumáls. Tæplega 200 milljónum var úthlutað til 17 aðila til að styðja við nýjungar í íslenskunámi innflytjenda og ná til fjölbreyttari hópa með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem gera á aðgengileg öllum.

    05. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    PMTO-miðstöð fyrir foreldra barna með hegðunarerfiðleika

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirrituðu í gær samning um rekstur PMTO-miðstöðvar sem ætlað er að þjóna öllu landinu. PMTO-foreldrafærni er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með samskipta- eða hegðunarerfiðleika sem hefur reynst afar vel hér á landi.

    04. feb. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Öflugt frístundastarf gegn ofbeldi meðal barna

    Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samning um að styðja við og auka aðgengi barna og ungmenna á aldrinum 16–25 ára að skipulögðu frístunda- og félagsstarfi í Breiðholti. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna.

    29. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 640/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kæranda við son hennar

    21. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Skipulagsbreytingar í mennta- og barnamálaráðuneytinu

    Mennta- og barnamálaráðherra hefur innleitt nýtt skipurit og verklag í kjölfar mats á hlutverki og verkefnum ráðuneytisins. Markmið breytinganna er að styrkja faglega stjórnsýslu, skýra ábyrgð og umboð, bæta ákvarðanatöku og tryggja að ráðuneytið sé enn betur í stakk búið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu á sviði mennta- og barnamála. Breytingarnar fela í sér endurskipulagningu skrifstofa og breytta verkaskiptingu. Með þeim á að skýra ábyrgð og auka gagnsæi um leið. Dregið verður úr yfirbyggingu um leið og fagleg sérþekking og sérhæfing innan málaflokka er styrkt. Áfram verður vel stutt við samhæfingu barna- og menntamála.

    17. jan. 2026Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Breyting á forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra

    Samkomulag hefur orðið milli félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra, með staðfestingu forsætisráðuneytisins, að Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fari með stjórnarmálefni um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Ábyrgðin á stjórnarmálefninu mun þó enn liggja hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

    15. jan. 2026Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tillögur spretthóps um Kveikjum neistann

    Spretthópur um Kveikjum neistann skilaði tillögum sínum til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Spretthópnum var ætlað að meta stöðu þróunar- og rannsóknarverkefnisins Kveikjum neistann, árangur þess og tækifæri og koma með tillögur að möguleikum í þróun verkefnisins í þágu barna hér á landi.

    15. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 664/2025-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun barnaverndarþjónustu um að loka máli vegna sonar kæranda.

    15. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 721/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráðs um umgengni kærenda við son þeirra.

    15. jan. 2026Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 759/2025-Úrskurður

    Ekki fallist á að óhóflegur dráttur hefði orðið á meðferð máls

    12. jan. 2026Menntamál, Menntastefna, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samræmd próf í vor og niðurstöður einstakra grunnskóla birtar opinberlega – reglugerð til umsagnar í Samráðsgátt

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum. Reglugerðin snýr annars vegar að nýju samræmdu prófunum í íslensku og stærðfræði sem allir nemendur í 4., 6. og 9. bekk grunnskóla gangast undir í fyrsta sinn nú í vor og hins vegar að safni valkvæðra matstækja Matsferils. Samræmda námsmatið, Matsferill, er miðlægt heildstætt safn matstækja í formi staðlaðra stöðu- og framvinduprófa, skimunarprófa og annarra matstækja sem kennarar og skólar geta nýtt sér í kennslu og við mat á stöðu og framvindu hvers barns í námi, jafnt og þétt yfir skólagönguna.

    12. jan. 2026Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Flutningur ráðuneytisstjóra

    Ásdís Halla Bragadóttir hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu og Erna Kristín Blöndal ráðuneytisstjóri í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.

    11. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Inga Sæland nýr mennta- og barnamálaráðherra

    Inga Sæland tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra í dag af Guðmundi Inga Kristinssyni, sem hefur beðist lausnar vegna veikinda. Er það í fyrsta sinn sem formaður stjórnmálaflokks í ríkisstjórn verður nýr menntamálaráðherra frá stofnun ráðuneytis menntamála.

    10. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið, Tímabundnar nefndir

    Starfshópur um eftirfylgni með innleiðingu og umbætur á framkvæmd samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum. Starfshópurinn skal taka mið af niðurstöðum og fylgja eftir tillögum sem fram koma í skýrslu Barna- og fjölskyldustofu frá árinu 2025 um stöðu innleiðingar farsældarlaganna í framhaldsskólum á Íslandi, leggja mat á stöðu innleiðingar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum og greina helstu áskoranir og úrbótatækifæri. Hópurinn skal jafnframt stuðla að samræmdu verklagi, upplýsingagjöf og samstarfi hlutaðeigandi aðila og gera tillögur um stuðning, fræðslu og mælikvarða

    06. jan. 2026Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heimsráðstefna Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar

    Sjötta heimsráðstefna Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA) fór fram í Busan í Suður-Kóreu dagana 1.–5. desember sl. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, stjórnvalda, lyfjaeftirlits, fjölmiðla og sérfræðingar. Henni lauk með samþykkt nýrra Alþjóðlegra lyfjareglna og meðfylgjandi staðla sem taka gildi 1. janúar 2027.

    21. des. 2025Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Eyjólfur Ármannsson í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs

    Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem einnig fer með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, er farinn í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan leyfinu stendur og fara með málefni innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis.

    18. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fyrsta starfsár Hvatasjóðs íþróttahreyfingarinnar

    Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar hefur lokið úthlutun styrkja á sínu fyrsta starfsári. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

    12. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ytra mat hafið í framhaldsskólum með nýjum gæðaviðmiðum

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur hafið framkvæmd ytra mats á framhaldsskólum samkvæmt nýjum gæðaviðmiðum sem kynnt voru í haust. Um er að ræða endurbætt verklag sem mótast hefur í samráði við skólasamfélagið og tekur mið af væntingum um að ytra mat framhaldsskóla sé umbóta- og þróunarmiðað.

    11. des. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 568/2025-Úrskurður

    Staðfest ákvörðun um fósturlaun

    11. des. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 554/2025-Úrskurður

    Umgengni. Staðfestur úrskurður umdæmisráð um umgengni kæranda við dóttur sína.

    11. des. 2025Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál, Úrskurðir, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Mál nr. 594/2025-Úrskurður

    Staðfestur úrskurður umdæmisráð um umgengni kæranda við börn hennar.

    11. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tölfræði íþrótta

    Íþróttaiðkun er hagsmunamál allra landsmanna. Hlutverk íþrótta í að fyrirbyggja sjúkdóma og í forvörnum er ótvírætt. Þær skapa jafnframt samstöðu og fyrirmyndir fyrir framúrskarandi árangur. Því er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir íþróttaiðkun hérlendis og fylgjast með þróuninni.

    09. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Tímabundið veikindaleyfi ráðherra

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, fer í tímabundið veikindaleyfi frá og með deginum í dag.

    05. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur unnið úttekt á Ferðasjóði íþróttafélaga. Úttektin er unnin af íþróttateymi mennta- og barnamálaráðuneytisins út frá gögnum úr umsóknarkerfi Ferðasjóðs íþróttafélaga. Úttektin byggir á gögnum áranna 2018–2024, en árið 2018 var farið að halda sérstaklega utan um kynskráningu. Á því tímabili voru 16.125 umsóknir sem uppfylltu úthlutunarreglur sjóðsins og úttektin byggir á.

    04. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Ákvörðun um auglýsingu á embætti skólameistara

    Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla var boðaður til fundar í mennta- og barnamálaráðuneytinu hinn 25. nóvember síðastliðinn. Tilefnið var að skipunartími hans í embætti skólameistara Borgarholtsskóla rennur út í lok júní á komandi ári.

    03. des. 2025Alþjóðamál, Barnaréttur, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Nýr staðall fyrir Barnahús á alþjóðavísu

    Nýjar alþjóðlegar og samræmdar kröfur um barnvæna þjónustu fyrir börn sem sætt hafa ofbeldi voru gefnar út í Genf í dag í tengslum við 58. fund mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða alþjóðastaðal sem staðlasamtökin ISO gefa út að frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins og byggir á starfsemi Barnahúss.

    02. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Úthlutun vinnustaðanámssjóðs 2025

    Úthlutað hefur verið 386.000.000 kr. úr vinnustaðanámssjóði til 176 umsækjenda. Á síðasta ári var framlag aukið um 150 m.kr. til eflingar vinnustaðanáms nemenda í starfsnámi.

    02. des. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Okkar fremsta afreksíþróttafólk komið á laun

    Með nýjum launasjóði fær okkar fremsta afreksíþróttafólk í fyrsta sinn laun fyrir vinnu sína sem íþróttafólk. Launasjóðurinn er fjármagnaður af mennta- og barnamálaráðuneytinu og er hluti af tillögum starfshóps ráðuneytisins undir stjórn Vésteins Hafsteinssonar sem birtast í skýrslunni Áfram Ísland. Nýr launasjóður íþróttafólks var kynntur hjá ÍSÍ í gær ásamt nýjum launþegum.

    28. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Langtímasamningur við Lýðskólann á Flateyri

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera langtímasamning við Lýðskólann á Flateyri. Skólasókn hefur verið góð og námið þar gefið góða raun. „Í Lýðskólanum á Flateyri fer fram mikilvægt starf til að valdefla nemendur og auka trú þeirra á eigin getu,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, sem heimsótti skólann við skólasetningu í haust ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands. Skólinn eykur fjölbreytni í menntakerfinu og námsframboð með áherslu á verklegt og upplifunarnám. Samningurinn er gerður til þriggja ára.

    27. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Heimsótti alla framhaldsskóla landsins á innan við tveimur mánuðum

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, sótti heim Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu í liðinni viku. Lauk þar með heimsókn ráðherra í alla 27 opinberu framhaldsskóla landsins á síðustu sjö vikum. Aldrei fyrr hefur ráðherra heimsótt alla skólana á eins skömmum tíma. Markmið heimsóknanna var að ræða málefni framhaldsskóla við skólameistara og starfsfólk, sér í lagi sameiginlega stjórnsýslu á vegum nýrra svæðisskrifstofa.

    26. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Yfirlýsing vegna tilkynningar Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra um Ólympíunefndir Rússlands og Belarús

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, er meðal 34 ráðherra íþróttamála sem lýsa alvarlegum efasemdum um ákvörðun Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC) að falla frá takmörkunum á þátttöku Rússlands og Belarús á ólympíumóti fatlaðra.

    23. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Um vinnubrögð Morgunblaðsins

    Í frétt Morgunblaðsins á fimmtudag er gefið til kynna að mennta- og barnamálaráðherra hafi sagt ósatt þegar hann vitnaði í nýjar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknirnar þess efnis að vímuefnaneysla ungmenna hefði ekki aukist. Þar með gefur fjölmiðillinn áfram til kynna að neysla hafi aukist sem er rangt á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

    21. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Rangfærslur um vímuefnaneyslu ungmenna

    Vegna misvísandi upplýsinga í fjölmiðlaumræðu um vímuefnaneyslu ungmenna þá vekur mennta- og barnamálaráðuneytið athygli á útgáfu Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrr í vikunni. Hún er ítarlegasta rannsókn sem framkvæmd er hérlendis á vímuefnaneyslu ungmenna, auk þess að rannsaka fjölda annarra þátta. Í vikunni komu fram fréttir um að unglingadrykkja hafi aukist að nýju en samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar hefur vímuefnaneysla ungmenna ekki aukist í ár eða síðustu ár. Hún hefur frekar verið að dragast saman og ef horft er lengra aftur í tímann hefur vímuefnaneysla ungmenna dregist verulega saman.

    18. nóv. 2025Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vegna fjölmiðlaumfjöllunar um skýrslu um menntamál

    Mennta- og barnamálaráðuneytið birti frétt um útgáfu skýrslu Eurydice-samstarfs 37 Evrópuríkja um viðbrögð við minnkandi grunnfærni nemenda um miðjan október. Mánuði síðar eða í gær birti Morgunblaðið forsíðugrein þar sem gefið er til kynna að verið sé að halda aftur upplýsingum í fréttaflutningi ráðuneytisins. Í ljósi þess er vert að vekja athygli á eftirfarandi:

    18. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Farsældarráði höfuðborgarsvæðisins ýtt úr vör

    Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað á föstudag. Stofnun ráðsins markar mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki sveitarfélaga og ríkisstofnana um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

    17. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úttekt á aðgengi nemenda að hljóðbókum á Íslandi

    Nýverið skilaði ráðgjafarfyrirtækið ARCUR af sér skýrslu til mennta- og barnamálaráðherra og menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra um aðgengi nemenda að efni á hljóðbókarformi, bæði námsefni og yndislestarefni. Úttektin var samstarfsverkefni ráðuneytanna tveggja. Námsumhverfi nemenda hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og leiðir til náms og kennslu hafa orðið mun fjölbreyttari. Hluti úttektarinnar fólst í könnun meðal starfsfólks skóla þar sem það var beðið um að leggja mat á aðgengi nemenda að hljóðbókaefni.

    14. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Barnamálaráðherrar Íslands og Noregs ræða öryggi barna í stafrænum heimi

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, átti fund með Lene Vågslid, barna- og fjölskyldumálaráðherra Noregs, í gær. Á fundinum ræddu ráðherrarnir notkun barna á samfélagsmiðlum og snjalltækjum, hættur og mögulegar lausnir.

    13. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Drög að nýjum heildarlögum um barnavernd til umsagnar

    Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að nýjum heildarlögum um barnavernd. Frumvarpsdrögin eru byggð á stefnumótunarvinnu stjórnvalda sem fram hefur farið síðustu ár sem og víðtæku samráði við fagfólk í málaflokknum og börn.

    12. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Vinna hefst að fyrstu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi

    Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa stýrihóp með það hlutverk að móta sértækar og markvissar aðgerðir til að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum hér á landi jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður Velferðarnefndar Alþingis, mun leiða stýrihópinn.

    11. nóv. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Fimm hundruð milljónir til sveitarfélaga í aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna

    Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur veitt 474 milljónum króna til sveitarfélaga í þágu farsældar barna með áherslu á að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi meðal barna. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum.

    • First
    • Prev
    • 3
    • 4
    • 5
    • 6
    • 7
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband