Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 2501–2550 af 3945
Raða eftir:
11. sep. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

Einfalt aðgengi að greiðsluupplýsingum á opnirreikningar.is

Aðgengi að fjárhagsupplýsingum ríkisins batnar með vefnum opnirreikningar.is sem hleypt hefur verið af stokkunum. Þar er hægt að skoða yfirlit yfir greidda reikninga úr bókhaldi ráðuneyta nálægt rauntíma, en vefurinn er uppfærður mánaðarlega.

11. sep. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Athugasemda óskað vegna endurskoðunar regluverks um eftirviðskipti

Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskar eftir athugasemdum haghafa um endurskoðun regluverks innan Evrópska efnahagssvæðisins um eftirviðskipti (post-trade). Endurskoðunin er hluti af stefnu Evrópusambandsin um fjármagnsmarkaði (Capital Markets Union) sem gengur út á að auka fjárfestingu, einkum í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, á Evrópska efnahagssvæðinu.

06. sep. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir

Stjórnsýslukæra - ákvörðun RSK um undanþágu virðisaukaskatts

Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun ríkisskattstjóra um undanþágu virðisaukaskatts vegna góðgerðarstarfsemi.

05. sep. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

Samstaða um sterkan kaupmátt

Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag áherslur og skipulag ríkisins í komandi kjaraviðræðum við starfsmenn ríkisins. Ráðherra sagði markmið ríkisins vera að ná samstöðu um það hvernig eigi að viðhalda þeirri miklu kaupmáttaraukningu sem orðið hefur á undanförnum árum og byggja upp samkeppnishæft starfsumhverfi ríkisins. Ráðherra lagði einnig áherslu á mikilvægi þess að öll upplýsingagjöf af hálfu ríkisins í tengslum við kjarasamningana verði skilvirk og aðgengileg.

01. sep. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

Úttekt á ábúðarjörðum í ríkiseigu

Gildi ábúðarjarða fyrir þjóðarhag virðist lítið og auðveldar ekki ungum bændum að hefja búskap á ríkisjörðum. Ríkið ætti að eiga áfram jarðir þar sem landbúnaður eða byggð eiga í vök að verjast eða almannahagsmunir eru að veði, en selja aðrar þegar þær losna úr ábúð eða markaðsaðstæður leyfa. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á ábúðarkerfinu, sem unnin var að beiðni fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

31. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Menntamál, Rekstur og eignir ríkisins

Ríkissjóður afsalar íþróttamannvirkjum á Laugarvatni til Bláskógabyggðar

Ríkissjóður afsalaði í dag sveitarfélaginu Bláskógabyggð til fullrar eignar og umráða íþróttamannvirkjum á Laugarvatni sem voru í eigu ríkisins. Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði samninginn fyrir hönd ríkisins, sem gerður er með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjárlaukalögum ársins 2017.

31. ágú. 2017Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Uppgjör ríkissjóðs á fyrri hluta árs 2017

Uppgjör ríkissjóðs á fyrri helmingi ársins 2017 liggur nú fyrir.

28. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir

Kæra á ákvörðun ríkisskattstjóra um að framkvæma ekki leiðréttingu á virðisaukaskattskilum

Kærð var ákvörðun ríkisskattstjóra frá 14. febrúar 2017 um að framkvæma ekki áður samþykkta leiðréttingu á virðisaukaskattskilum fyrir tilgreind uppgjörstímabil áranna 2009 og 2010.

24. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Starfshópur um endurskoðun laga vegna opinbers eftirlits með fjármálastarfsemi

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að endurskoða lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi auk ákvæða annarra laga um fjármálamarkaði eða fjármálafyrirtæki, tengist þau eftirliti með markaðnum.

18. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

Áfengiskaupafríðindi æðstu stofnana ríkisins afnumin

Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu fjármála- og efnahagsráðherra um að ívilnun með niðurfellingu áfengisgjalds gagnvart æðstu stofnunum ríkisins verði afnumin frá og með 1. október næstkomandi.

18. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

Úttekt vegna Vaðlaheiðarganga

Í apríl síðastliðnum var samþykkt í ríkisstjórn að leggja til við Alþingi að verja allt að 4,7 ma.kr. til þess að ljúka við gerð Vaðlaheiðarganganna. Auk umframkostnaðar hafa talsverðar tafir orðið á verkinu frá því heimild til að hefja það var veitt árið 2012. Á sama tíma ákvað ríkisstjórnin að gerð yrði ítarleg sjálfstæð úttekt á framkvæmdinni allri og ástæðum þess að kostnaður við hana hefur verið langt umfram áætlanir.

18. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 16/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 13. júlí 2017 kærði Sjónarrönd ehf. samkeppnisútboð Ríkiskaupa, fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins (hér eftir vísað til beggja sem „varnaraðila“) nr. 20527 „Financial Planning System“. Kærandi krefst þess að samningsgerð verði stöðvuð, ákvörðun varnaraðila um val á tilboði Capacent ehf. verði felld úr gildi og varnaraðilum gert að auglýsa útboðið á nýjan leik. Til vara er gerð krafa um að nefndin veiti álit á skaðabótaskyldu. Í öllum tilvikum er gerð krafa um að varnaraðilar greiði kæranda málskostnað.

16. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ný stjórn Bankasýslu ríkisins

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nýja stjórn Bankasýslu ríkisins. Kveðið er á um helstu verkefni og markmið stofnunarinnar í lögum um Bankasýslu ríkisins auk þess sem gert er ráð fyrir að starfsemi stofnunarinnar mótist af eigandastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

14. ágú. 2017Almannatryggingar og lífeyrir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Annað

Starfsleyfi lífeyrissjóða

/ Fjármála- og efnahagsráðuneytið Starfsleyfi lífeyrissjóða Umsókn um leyfi til starfrækslu lífeyrissjóðs á grundvelli laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Umsóknin sendist fjármálaráðuneytinu, Arnarhvoli, 101 Reykjavík

14. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Annað

Umsókn um styrk úr starfsmenntunarsjóði embættismanna ríkisins

/ Fjármála- og efnahagsráðuneytið Umsókn um styrk úr starfsmenntunarsjóði embættismanna ríkisins Umsókn um styrk úr starfsmenntunarsjóði embættismanna ríkisins á vef sjóðsins Efnisorð

08. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir

Stjórnsýslukæra - ákvörðun tollstjóra vegna tollafgreiðslu sendingar

Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun tollstjóra um að stöðva tollafgreiðslu sendingar.

02. ágú. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 15/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Með kæru móttekinni júlí 2017 kærir RST net ehf. útboð Landsnets (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) auðkennt „OLA-40 Substation Ólafsvík, new 66kV substation EPC“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála ógildi val varnaraðila á tilboði Orkuvirkis ehf. og að lagt verði fyrir varnaraðila að bjóða út verkið á ný. Til vara er þess krafist að nefndin veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Jafnframt er krafist málskostnaðar.

19. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Samráð um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um markaðar tekjur

Í samræmi við 3. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna leggur fjármála- og efnahagsráðuneytið fram til kynningar fyrir almenning áform um lagasetningu, sem felur í sér breytingar á lagaákvæðum um markaðar tekjur.

18. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 14/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 21. júní 2017 kærði Sölufélag garðyrkjumanna ehf. innkaup varnaraðila Kópavogsbæjar (hér eftir nefndur varnaraðili) nefnt „Framleiðsla á mat fyrir Kópavogsskóla og Smáraskóla 2017-2010“. Kærandi krefst þess að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila um að meta tilboð kæranda ógilt og að velja tilboð ISS Íslands ehf. Þá er þess krafist að útboðið verði ógilt í heild sinni og varnaraðila gert að auglýsa innkaupin að nýju. Þá er þess krafist að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Kærandi krefst þess einnig að samningsgerð verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið leyst úr kærunni.

18. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 13/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Með kæru móttekinni júní 2017 kærir Félag hópferðaleyfishafa útboð Isavia ohf. og Ríkiskaupa (hér eftir vísað til sameiginlega sem varnaraðila) nr. 20521 auðkennt „Keflavíkurflugvöllur, aðstaða hópferðabifreiða“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála „felli niður tiltekna útboðsskilmála frá því í maí 2017, og/eða bæta við eftirfarandi upplýsingum“ í hinu kærða útboði „þannig a) að kaupandi felli niður og/eða breyti grein 2.3 á bls. 27 í útboðsgögnum um að bjóðandi greiði að lágmarki hlutfall af lágmarksveltu í þóknun, og/eða gefi upp fasta veltutölu, b) að kaupandi gefi upplýsingar um farþegafjölda, c) að kaupandi gefi upplýsingar um verðlagningu annarra hópferðastæða, d) að kaupandi felli niður ákvæði um að skil tilboða sé um 21 klst.…

18. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 5/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 16. febrúar 2017 kærði BL ehf. örútboð Strætó bs. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Samningskaup – Örútboð III. Endurnýjun strætisvagna“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála ógildi ákvörðun varnaraðila um að taka tilboði Yutong Eurobus ehf. í hinu kærða útboði og nefndin veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Þá er krafist málskostnaðar.

18. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 4/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 7. febrúar 2017 kærði Garðlist ehf. innkaup Isavia ohf. á grisjun trjáa í Öskjuhlíð. Kærandi krefst þess að varnaraðila verði gert að bjóða innkaupin út, nefndin lýsi samning varnaraðila við Hreina Garða ehf. óvirkan, nefndin gefi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað.

14. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Skýrsla starfshóps um skattskyldu af erlendri ferðaþjónustustarfsemi á Íslandi

Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði þann 13. júní sl. starfshóp til að fara yfir skattskil af erlendri ferðaþjónustu-starfsemi, greina stöðu mála og koma með tillögur til úrbóta.

13. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Drög að nýrri reglugerð um safnskráningu og varðveislu fjármálagerninga á safnreikningi til umsagnar

Drög að nýrri reglugerð um um safnskráningu og varðveislu fjármálagerninga á safnreikningi er nú til umsagnar hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Reglugerðinni er ætlað að leysa reglugerð nr. 706/2008, um sama efni, af hólmi.

11. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Mánaðaryfirlit ríkissjóðs janúar - maí 2017

Mánaðaryfirlit ríkissjóðs janúar - maí 2017 liggur nú fyrir. Rekstraryfirlit fyrir A-hluta ríkissjóðs í heild sýnir jákvæðan tekjujöfnuð að upphæð 22,2 ma.kr. samanborið við 4,1 ma.kr. sem áætlanir gerðu ráð fyrir.

10. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 10/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 28. mars 2017 kærði Spennt ehf. útboð RARIK ohf. nr. 16001 „Aðveitustöð Vík í Mýrdal“ og útboð nr. 16007 „Aðveitustöð Vatnshamrar Borgarbyggð“. Kærandi krefst þess að felldar verði úr gildi ákvarðanir varnaraðila um að hafna tilboðum kæranda í útboðunum og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað.

10. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál 23/2016. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 1. desember 2016 kærði Annata ehf. lokað samningskaupaferli Ríkiskaupa fyrir hönd RARIK ohf. (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) nr. 20173 um orkureikningakerfi sem byggir á Microsoft Dynamics AX grunni. Kærandi gerir þær kröfur að ákvörðun varnaraðila um val á tilboði Advania ehf. verði felld úr gildi, nefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og varnaraðilum verði gert að greiða kæranda málskostnað.

10. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál 6/2017. Álit kærunefndar útboðsmála:

Með bréfi 15. febrúar 2017 óskaði HS Orka hf. eftir ráðgefandi áliti kærunefndar útboðsmála samkvæmt mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, vegna fyrirhugaðra innkaupa á vatnshverfli og rafal. Óskað er álits á því hvort innkaupin séu útboðsskyld í samræmi við ákvæði laga nr. 120/2016 um opinber innkaup eða tilskipunar nr. 2004/17/EB um samræmingu reglna um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutning og póstþjónustu, sbr. reglugerð nr. 755/2007 með síðari breytingum.

07. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál

Fitch hækkar langtímalánshæfiseinkunn ríkissjóðs í A-, horfur sagðar jákvæðar

Matsfyrirtækið Fitch Ratings tilkynnti í dag að það hefði hækkað lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins á langtímaskuldbindingum í innlendri og erlendri mynd úr BBB+ í A-. Þá eru horfur sagðar jákvæðar. Batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt sterkum hagvexti eru helstu forsendur betri einkunnar.

06. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 2/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 30. janúar 2017 kærði Bílaumboðið Askja ehf. innkaup Ísafjarðarbæjar á götusóp fyrir Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun um val á tilboði Krafts hf. og að varnaraðila verði gert að auglýsa innkaupin að nýju. Þá er þess krafist til vara að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðilans Ísafjarðarbæjar gagnvart kæranda. Þess er jafnframt krafist að varnaraðilanum verði gert að greiða kæranda málskostnað.

06. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 7/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 6. mars 2017 kærði Rafal ehf. útboð Ríkiskaupa, fyrir hönd RARIK ohf. (hér eftir vísað til sem „varnaraðila“) nr. 20460 „Jarðspennistöðvar fyrir RARIK“. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun um val á tilboði RST nets ehf. og Hraunsala ehf. og tilboði þeirra verði vísað frá útboðinu. Hafi samningur þegar komist á gerir kærandi kröfu um að samningurinn verði lýstur óvirkur. Þá er þess krafist að varnaraðila RARIK ohf. verði gert að greiða kæranda málskostnað.

06. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 9/2017. Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 16. mars 2017 kærði Vélsmiðja Orms og Víglundar ehf. útboð Ríkiskaupa, f.h. Hafrannsóknastofnunar (sameiginlega nefndir varnaraðilar) nr. 20509, auðkennt „Slipptaka – Árni Friðriksson Hafrannsóknastofnun“. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila að leita samninga við Slippinn á Akureyri ehf. um hið útboðna verk. Jafnframt er þess krafist að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þá er krafist málskostnaðar.

04. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nefndir um aðskilnað viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi og um endurskoðun tekjuskatts

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað tvær nefndir. Er annarri falið að meta þörfina á aðskilnaði viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi en hinni að vinna að endurskoðun tekjuskattskerfis einstaklinga.

04. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir

Úrskurður vegna stjórnsýslukæru - ákvörðun tollstjóra um greiðslu dráttarvaxta

Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun tollstjóra um að hafna kröfu um niðurfellingu dráttarvaxta er staðfest.

04. júl. 2017Rit og skýrslur, Rekstur og eignir ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Eigandastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki

Ný eigandastefna fyrir fjármálafyrirtæki sem ríkissjóður á eignarhluti í hefur tekið gildi, eftir að stefnan var samþykkt af ríkisstjórn.

04. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins

Ný eigandastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki

Ný eigandastefna fyrir fjármálafyrirtæki sem ríkissjóður á eignarhluti í hefur tekið gildi, eftir að stefnan var samþykkt af ríkisstjórn. Helstu markmið stefnunnar eru að tryggja góða og fyrirsjáanlega stjórnarhætti fjármálafyrirtækja, að þau veiti viðskiptavinum sem skilvirkasta þjónustu og tryggi ásættanlega arðsemi.

03. júl. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Stjórnsýslukærur - úrskurðir, Úrskurðir

Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra um synjun á útgreiðslu séreignasparnaðar til íbúðarkaupa

Kærð var til ráðuneytisins ákvörðun ríkisskattstjóra frá 11.maí 2016 um synjun á útgreiðslu séreignasparnaðar til íbúðarkaupa.

30. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Efnahagsmál og opinber fjármál, Standard og Poor's

Standard og Poor‘s staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs með stöðugum horfum

Í samræmi við birtingaráætlun sína staðfesti Standard & Poor‘s í dag, 30. júní, A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtíma- og skammtímaskuldir í erlendum og innlendum gjaldmiðlum.

30. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Hafnarfjörður kaupir hlut ríkisins í St. Jósefsspítala

Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra skrifuðu í dag undir samning um kaup Hafnarfjarðarbæjar á 85% eignarhlut ríkisins í aðalbyggingu St. Jósefsspítala.

29. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Álagning opinberra gjalda á einstaklinga 2017

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningin 2017 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2016 og eignastöðu þeirra 31. desember 2016. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

29. jún. 2017Dómsmálaráðuneytið, Mannauðsmál ríkisins, Mannréttindi og jafnrétti, Vinnumál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Alcoa Fjarðaál hlýtur jafnlaunavottun

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra færði í dag Magnúsi Þór Ásmundssyni forstjóra Alcoa Fjarðaáls jafnlaunamerkið sem felur í sér viðurkenningu á því að launakerfi fyrirtækisins uppfylli skilyrði fyrir vottun á grundvelli jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.

28. jún. 2017Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Vinnumál, Mannauðsmál ríkisins, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Embætti Tollstjóra fyrst til að hljóta jafnlaunamerkið

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra afhenti í dag Snorra Olsen tollstjóra jafnlaunamerkið sem viðurkenningu um að embættið starfræki jafnlaunakerfi sem samræmist kröfum reglugerðar um vottun jafnlaunakerfa fyrirtækja og stofnana á grundvelli jafnlaunastaðalsins ÍST 85.

27. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

Ný skýrsla OECD: Kröftugur vöxtur í íslensku efnahagslífi

Góðar horfur eru í íslensku efnahagslífi og hagvöxtur mestur á Íslandi af löndum OECD. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland, sem birt var í dag. Skýrslur af þessu tagi eru gefnar út á tveggja ára fresti. Mari Kiviniemi, aðstoðaframkvæmdastjóri stofnunarinnar, kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar á blaðamannafundi ásamt Benedikt Jóhannessyni, fjármála- og efnahagsráðherra.

23. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Framkvæmdastjórn AGS um stöðu og horfur í íslenskum efnahagsmálum

Sendinefnd á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var hér á landi í mars sl. til viðræðna við íslensk stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila og til að leggja mat á stöðu og horfur í efnahagsmálum hér á landi. Sendiförin er liður í reglubundnu samráði sjóðsins við íslensk stjórnvöld í samræmi við IV grein stofnsáttmála AGS.

22. jún. 2017Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skýrsla um umfang skattundanskota og tillögur til aðgerða

Starfshópur sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í febrúar og var falið að greina umfang og áhrif skattundanskota og skattsvika á íslenskan þjóðarbúskap, hefur skilað skýrslu.

22. jún. 2017Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skýrsla um milliverðlagningu og faktúrufölsun

Starfshópur um milliverðlagningu og faktúrufölsun í utanríkisviðskiptum, sem skipaður var í febrúar 2017 hefur skilað skýrslu. Starfshópnum var ætlað að skoða mögulegar umbætur á lagaumgjörð og regluverki milliríkjaviðskipta, með hliðsjón af reynslu annarra þjóða.

22. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

Lykillinn að sjálfbærri þróun ferðamannastaða: Málstofa í Hörpu

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, kynnir 27. júní nýja skýrslu um íslensk efnahagsmál. Slík skýrsla er gefin út á tveggja ára fresti. Í skýrslunni er að þessu sinni sérstök umfjöllun um stöðu ferðaþjónustunnar og í ljósi þess boðar fjármála- og efnahagsráðuneytið til málstofu í samstarfi við Seðlabanka Íslands og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

22. jún. 2017Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Sviðsljósinu beint að svarta hagkerfinu og skattsvikum: Skýrslur tveggja starfshópa

Í kjölfar upplýsinga úr Panamaskjölunum jókst meðvitund um að undanskotum væri beitt með markvissum hætti til að komast undan skattskyldu. Í janúar síðastliðnum birti fjármálaráðherra skýrslu sem unnin var að frumkvæði forvera hans um umfang íslenskra fjármuna í skattaskjólum. Ráðherra ákvað strax að styrkja yrði aðgerðir gegn skattsvikum og skattaundanskotum. Sem lið í þeim aðgerðum skipaði hann tvo starfshópa um aðgerðir; annan um milliverðlagningu í utanríkisviðskiptum og hinn um skattundanskot og skattsvik. Auk þess má geta þess að ráðherra undirritaði nýlega fyrir hönd Íslands alþjóðlegan samning sem koma á í veg fyrir misnotkun á tvísköttunarsamningum í því skyni að komast undan eðlilegri skattlagningu.

19. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Kærunefnd útboðsmála, Úrskurðir

Mál nr. 2/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Með kæru 30. janúar 2017 kærði Bílaumboðið Askja ehf. innkaup Ísafjarðarbæjar á götusóp fyrir Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar. Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi ákvörðun um val á tilboði Krafts hf. og að varnaraðila verði gert að auglýsa innkaupin að nýju. Þá er þess krafist til vara að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þess er jafnframt krafist að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað.

14. jún. 2017Efnahagsmál og opinber fjármál, Ríkisreikningar, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkisreikningur 2016

Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2016 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Helstu niðurstöður ríkisreiknings fyrir 2016 eru að tekjujöfnuður ársins var jákvæður um 294,6 ma.kr. samanborið við jákvæðan 20,0 ma.kr. tekjujöfnuð árið 2015.

• First
• Prev
• 49
• 50
• 51
• 52
• 53
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband