Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 2551–2600 af 3245
    Raða eftir:
    13. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    Mannréttindaráðið samþykkir tillögur Íslands um hagræðingu

    Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt tillögu Íslands og Rúanda um sérstakt átak til hagræðingar í starfi þess. Slíkar ákvarðanir ráðsins eru lagðar fram af forseta ráðsins en Ísland og Rúanda hafa leitt samningaviðræður um slíka hagræðingu síðastliðið ár.

    12. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkisviðskipti, Aðalræðisskrifstofa Íslands í Þórshöfn, Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Jákvæður fundur um Hoyvíkursamninginn

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, ræddu framtíð Hoyvíkursamningsins, fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja, á fundi sínum í dag. Samningurinn fellur að óbreyttu úr gildi um áramótin í kjölfar uppsagnar Færeyinga.

    12. des. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Dómsmálaráðuneytið, Sendiskrifstofa

    Framlag íslenskra stjórnvalda til Alþjóðaráðs Rauða krossins kynnt

    Íslensk stjórnvöld og Rauði kross Íslands tilkynntu um sameiginlegar skuldbindingar sínar um aðgerðir og markmið í þágu Alþjóðaráðs Rauða krossins og Rauða hálfmánans til næstu fjögurra ára. Í þeim er lögð rík áhersla á forvarnir og stuðning við baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi í vopnuðum átökum og aðgerðir vegna mansals.

    11. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðasamningar, Samgöngur og fjarskipti, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Samkomulag um nýja loftferðasamninga á ráðstefnu ICAO

    Sendinefnd Íslands gerði nýja loftferðasamninga, uppfærði eldri loftferðasamninga og viljayfirlýsingar um flugsamgöngur milli Íslands og annarra landa á árlegri loftferðasamningaráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem lauk fyrir skemmstu. Samkomulag hefur náðst við Marokkó og Mósambík um nýja loftferðasamninga.

    11. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Íslensk frjáls félagasamtök, Þróunarsamvinna, Úganda, Hjálparstarf

    Þróunarsamvinna: Sjö íslenskum félagasamtökum falið að ráðstafa rúmum 200 milljónum

    Utanríkisráðuneytið hefur gefið vilyrði fyrir styrkjum til sjö íslenskra félagasamtaka um ráðstöfun rúmlega 210 milljóna króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu. Flest verkefnanna eru langtímaverkefni sem fá árlegar greiðslur frá ráðuneytinu. Hæstu styrkjunum verður varið til verkefna í þremur Afríkuríkjum, Síerra Leóne, Úganda og Tógó.

    10. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Mannréttindi og jafnrétti

    Alþjóðamannréttindadagurinn haldinn hátíðlegur með málþingi

    Lina al-Hathloul, baráttukona fyrir mannréttindum í Sádí-Arabíu, var aðalræðumaður á málþingi sem haldið var í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum, sem haldinn er hátíðlegur 10. desember ár hvert. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti opnunarávarp og sérfræðingar tóku þátt pallborðsumræðum um hlutverk smærri ríkja í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og baráttunni fyrir mannréttindum á heimsvísu. Utanríkisráðuneytið stóð fyrir málþinginu í samstarfi við Alþjóðamálastofnun og Mannréttindaskrifstofu Íslands.

    06. des. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 6. desember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. desember 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 6

    06. des. 2019Utanríkisráðuneytið

    Brugðist við fjölgun umsókna um vegabréfsáritun til Íslands

    Í dag var opnað fyrir afgreiðslu umsókna í Kuala Lumpur í Malasíu, en umsóknir verða fluttar þaðan til sendiráðsins í Nýju Delí til meðferðar.

    06. des. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Upptökuhalli EES-gerða ekki minni í sex ár

    Fjöldi upptekinna EES-gerða á þessu ári hefur stuðlað að því að upptökuhallinn hefur ekki verið minni í sex ár. Á fjórða hundrað ákvarðana um upptöku gerða í EES-samninginn hafa verið teknar á þessu ári, fleiri en nokkru sinni fyrr.

    04. des. 2019Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Utanríkismál

    Forsætisráðherra ræddi afvopnunarmál, loftslagsbreytingar og kynferðislegt ofbeldi á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sóttu afmælisfund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Lundúnum í dag. Forsætisráðherra fjallaði þar um afvopnunarmál, loftslagsbreytingar og baráttuna gegn kynferðislegu ofbeldi og áreitni á vettvangi bandalagsins.

    03. des. 2019Forsætisráðuneytið, Almannaöryggi, Utanríkismál, Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál

    Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í London

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sækja fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í Lundúnum sem hefst í dag, þriðjudaginn 3. desember og stendur þar til á morgun, miðvikudaginn 4. desember.

    29. nóv. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 29. nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. nóvember 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 29

    29. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Helsinki, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra á norðurslóðaráðstefnu í Finnlandi

    Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra ávarpaði í dag alþjóðlega ráðstefnu um málefni norðurslóða sem haldin var í Helsinki. Utanríkisráðherra ræddi meðal annars alþjóðamál og tvíhliða samskipti á fundi með Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands.

    26. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Moskvu, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherrar Íslands og Rússlands ræddu norðurslóðir og viðskipti

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddu norðurslóðamál, tvíhliða samskipti og viðskipti á fundi sínum í Moskvu í dag. Þá voru öryggismál í Evrópu og alþjóðamál einnig til umræðu.

    22. nóv. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 22. nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. nóvember 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 22

    21. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Fólk og samfélög í brennidepli á Hveragerðisfundi Norðurskautsráðsins

    Á fundi embættismannanefndar Norðurskautsráðsins sem fram fór í Hveragerði í dag ræddu fulltrúar aukna samvinnu um málefni sem tengjast fólki og samfélögum á norðurslóðum.

    20. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá NATO, Sendiskrifstofa

    Afvopnunarmál og ástandið í Sýrlandi efst á baugi utanríkisráðherrafundar

    Ástandið í Sýrlandi, afvopnunarmál og framlög til varnar- og öryggismála voru meðal umræðuefna á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í höfuðstöðvunum í Brussel í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd. Þar ræddu ráðherrarnir meðal annars þann árangur sem náðst hefur á undanförnum misserum við að tryggja fælingar- og varnarmátt bandalagsins, efla viðnám gegn fjölþátta ógnum og netárásum, sem og baráttuna gegn hryðjuverkum.

    19. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál, Sendiráð Íslands í Brussel, Sendiskrifstofa

    Innistæðutryggingar til umræðu á EES-ráðsfundi

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ítrekaði á fundi EES-ráðsins í dag að ekki kæmi til greina að Ísland tæki upp tilskipun um innistæðutrygginga nema að tryggt væri að þeim fylgdi ekki ríkisábyrgð. Á fundinum lagði ráðherra áherslu á hve vel EES-samningurinn hefði reynst báðum aðilum í þann aldarfjórðung sem liðinn er frá gildistöku hans.

    15. nóv. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 15. nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. nóvember 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 15

    15. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Sendiskrifstofa

    Alþjóðlegur jafnlaunadagur að frumkvæði Íslands

    Ályktun um alþjóðlegan jafnlaunadag, sem Ísland var í forystu fyrir, var samþykkt einróma í mannréttindanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Auk Íslands stóðu sjö ríki að ályktuninni, Ástralía, Kanada, Nýja Sjáland, Panama, Suður-Afríka, Sviss og Þýskaland. Um hundrað ríki til viðbótar voru meðflytjendur að ályktuninni sem sýnir mjög breiðan stuðning við málefnið.

    14. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðismál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Utanríkismál, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Ísland ítrekar skuldbindingar á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðismála

    Fulltrúar Íslands áréttuðu áform ríkisstjórnarinnar um auknar aðgerðir á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis á alþjóðaráðstefnu um mannfjölda og þróun í Naíróbí í Kenya. Á fundum þeirra samhliða ráðstefnunni voru jafnréttis- og heilbrigðismál í brennidepli.

    04. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Brexit

    Íslendingum og Bretum áfram kleift að flytjast milli ríkjanna

    Íslensk og bresk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um fólksflutninga milli ríkjanna eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu (ESB) og Evrópska efnahagssvæðinu (EES), fari svo að útgangan verði án samnings við ESB. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi, undirrituðu samkomulagið í utanríkisráðuneytinu í dag.

    01. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið

    Stofnfundur Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti ávarp á stofnfundi Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins sem tók formlega til starfa í dag. Stofnfélagar eru rúmlega fjörutíu fyrirtæki sem starfa m.a. innan sjávarútvegs og sjávarútvegstækni, matvælaframleiðslu, nýsköpun og ferðaþjónustu.

    01. nóv. 2019Utanríkisráðuneytið, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Áhersla á að miðla af reynslu Íslands í jafnréttismálum

    Jafnrétti til útflutnings var yfirskrift ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir í samvinnu við Uppbyggingarsjóð EES, Portúgal og Noreg, í gær og í dag. Um 120 manns frá 20 ríkjum tóku þátt í ráðstefnunni og fimm hundruð fylgdust með streymi frá ráðstefnunni. Markmiðið var að kynna íslenska sérþekkingu á sviði jafnréttismála sem nýst getur í þágu íbúa og samfélaga í þeim fimmtán ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins(EES) sem njóta styrkja úr Uppbyggingarsjóði EES.

    01. nóv. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 1. nóvember 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. nóvember 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 1

    31. okt. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkisráðuneytið

    Sigurður Ingi flutti skýrslur um norrænt samstarf á þingi Norðurlandaráðs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, flutti skýrslur um norrænt samstarf á formannsári Íslands á þingi Norðurlandaráðs í dag.

    31. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Heimasendiherrar, Sendiskrifstofa

    Jafnrétti til útflutnings

    Í dag og á morgun efnir utanríkisráðuneytið til ráðstefnunnar Jafnrétti til útflutnings í samvinnu við Uppbyggingarsjóð EES, Portúgal og Noreg. Ætlunin er að kynna hvað íslensk samtök og stofnanir hafa upp á að bjóða, þ.e. hvaða leiðir hafa verið farnar og hvaða aðferðir þróaðar sem skilað hafa árangri í jafnréttisbaráttunni hér á landi og gætu nýst í samstarfsríkjum Uppbyggingarsjóðs EES.

    30. okt. 2019Utanríkisráðuneytið

    Björn Bjarnason höfundur nýrrar skýrslu um norræna alþjóða- og öryggissamvinnu

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er staddur í Stokkhólmi þar sem hann tekur þátt í dagskrá Norðurlandaráðsþings. Á fundi norrænu utanríkisráðherranna sem fram fór í dag var ákveðið að fela Birni Bjarnasyni að skrifa nýja skýrslu um eflingu norræns samstarfs í utanríkis- og öryggismálum. Þá skrifaði Guðlaugur Þór undir samkomulag við Noreg annars vegar og við Danmörku og Færeyjar hins vegar um afmörkun landgrunns á Ægisdjúpi og sat fund norrænu þróunarmálaráðherranna.

    29. okt. 2019Innviðaráðuneytið, Utanríkismál, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkisráðuneytið

    Lokafundur samstarfsráðherra á formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, stýrði í morgun síðasta fundi samstarfsráðherra á formennskuári Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

    25. okt. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 25. október 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. október 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 25

    20. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Heimsmarkmiðin, Loftslagsmál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra á ársfundum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti nýafstaðna ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem haldnir voru í Washington DC. Þá undirritaði hann viljayfirlýsingu um mögulegt samstarf við samtökin Conservation International á sviði fiskimála í Kyrrahafsríkjum.

    17. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Öryggis- og varnarmál, Sendiráð Íslands í Berlín, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Þýskalands fögnuðu 20 ára afmæli sendiráðanna í Berlín

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra setti í morgun afmælishátíð í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin frá formlegri opnun norrænu sendiráðsbygginganna í Berlín. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda og aðstoðarutanríkisráðherra Þýskalands bar hæst hernað Tyrklands í Sýrlandi og öryggis- og varnarsamstarf Evrópu og Bandaríkjanna.

    13. okt. 2019Utanríkisráðuneytið

    Þátttaka utanríkisráðherra í Hringborði norðurslóða

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið tóku virkan þátt í Hringborði norðurslóðanna sem lauk í gær. Þá átti Guðlaugur Þór fundi með nokkrum þeirra ráðherra, þingmanna og annarra stjórnmálamanna sem sóttu Hringborðið.

    11. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Annað, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 11. október 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. október 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 11

    11. okt. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    EES-skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis

    Sérstök skýrsla um EES-samninginn er nú gefin Alþingi í fyrsta sinn en fram til þessa hefur slík upplýsingagjöf fallið undir skýrslu utanríkisráðherra um utanríkismál. Í skýrslunni er leitast við að gefa heildstætt yfirlit yfir framkvæmd EES-samningsins á árinu 2018 og fyrri hluta ársins 2019.

    10. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Ísland gagnrýnir aðgerðir Tyrklandshers í Sýrlandi

    Íslensk stjórnvöld gagnrýna harðlega hernaðaraðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi og hafa komið þeirri afstöðu sinni á framfæri við tyrknesk yfirvöld með formlegum hætti. Hernaðaraðgerðirnar samræmast ekki alþjóðalögum og er þess krafist að Tyrkir hætti aðgerðunum þegar í stað og fylgi alþjóðalögum í hvívetna. Hernaður sem beinist að almennum borgurum og veldur manntjóni, eins og fregnir herma, er fordæmdur.

    09. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Norðurskautsráðið og Efnahagsráð norðurslóða funda saman í fyrsta sinn

    Nú stendur yfir fundur Norðurskautsráðsins og Efnahagsráðs norðurslóða en þetta er í fyrsta sinn sem ráðin koma saman. Fundurinn sem sóttur er af fulltrúum aðildarríkja Norðurskautsráðsins, vinnuhópa ráðsins, fastafulltrúum frumbyggjasamtaka á norðurslóðum og fulltrúum viðskiptalífs er liður í þeirri stefnu að auka samstarf milli ráðanna tveggja.

    09. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra heimsækir Síerra Leóne

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er í Síerra Leóne í vinnuheimsókn þar sem hann hefur skoðað þróunarsamvinnuverkefni Íslands í landinu á sviði sjávarútvegs- og jafnréttismála og hitt ráðamenn til að ræða þróunarsamvinnu landanna.

    08. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Trúnaðarbréfin afhent víða um heim

    Nýir forstöðumenn sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni hafa að undanförnu afhent trúnaðarbréf sín og þar með getað formlega hafið störf. Nú síðast færði Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, Margréti Þórhildi Danadrottningu trúnaðarbréf.

    07. okt. 2019Innviðaráðuneytið, Norrænt samstarf, Samstarfsráðherra Norðurlanda, Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál

    Sigurður Ingi fundaði með forseta og varaforseta Norðurlandaráðs

    Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, fundaði í dag með Hans Wallmark, forseta Norðurlandaráðs og Gunillu Carlsson, varaforseta ráðsins.

    07. okt. 2019Rit og skýrslur, Borgaraþjónusta, Utanríkisráðuneytið

    Stefna utanríkisráðuneytisins í málefnum borgaraþjónustu 2019-2024

    Stefna utanríkisráðuneytisins í málefnum borgaraþjónustu 2019-2024

    04. okt. 2019Annað, Utanríkisráðuneytið, Föstudagspóstur

    Föstudagspósturinn 4. október 2019

    Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul. október 2019 / Utanríkisráðuneytið Föstudagspósturinn 4

    03. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Norðurslóðir, Utanríkismál

    Efnahagssamvinna efst á baugi á Barentsráðsfundi

    Styrking efnahagslegrar samvinnu á Barentssvæðinu var aðalumræðuefnið á ráðherrafundi Barentsráðsins í Umeå í Svíþjóð í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fundinn og tók um leið þátt í ráðstefnunni EU Arctic Forum.

    03. okt. 2019Utanríkisráðuneytið

    Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir starfsnemum

    Utanríkisráðuneytið auglýsir starfsnám sem ætlað er fólki sem hefur lokið BA/BS-gráðu og stundar eða hefur nýlokið meistaranámi í grein sem tengist málefnasviði utanríkisþjónustunnar.

    01. okt. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Evrópusamvinna, Utanríkismál

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið komin út

    Starfshópur skipaður af utanríkisráðherra hefur skilað skýrslu sinni um aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Niðurstöður skýrslunnar voru kynntar á blaðamannafundi í utanríkisráðuneytinu í dag.

    01. okt. 2019Rit og skýrslur, Utanríkisráðuneytið

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið

    Skýrsla starfshóps um EES-samstarfið var skrifuð í kjölfar skýrslubeiðni sem hópur þingmanna lagði fram.

    28. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Jafnrétti, Loftslagsmál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði áherslu á baráttuna gegn hlýnun jarðar, mannréttindi og endurbætur á alþjóðakerfinu í samræmi við grunngildi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sem hann flutti á allsherjarþinginu í kvöld. Utanríkisráðherra ræddi einnig óöldina í Sýrlandi og Jemen og skoraði á þau ríki sem ýta undir ófriðinn að beita sér frekar fyrir friði.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðin, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Utanríkismál, Sendiskrifstofa

    Utanríkisráðherra sækir allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar í kvöld allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Í dag átti utanríkisráðherra fjölmarga tvíhliða fundi auk þess sem hann undirritaði loftferðasamning Íslands og Líberíu.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Mannréttindi, Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf, Sendiskrifstofa

    Síðustu fundarlotu Íslands í mannréttindaráðinu lokið

    fundarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf lauk í dag en þetta var fjórða lotan sem Ísland tekur þátt í sem aðildarríki ráðsins og jafnframt sú síðasta.

    27. sep. 2019Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Borgaraþjónusta, Jafnrétti, Menningarmál

    Tveggja daga kjörræðismannaráðstefnu lauk í dag

    Tveggja daga ráðstefnu utanríkisráðuneytisins fyrir kjörræðismenn Íslands á erlendri grundu lauk í dag. Markaðs- og kynningarstarf, menningarmál, jafnréttismál og borgaraþjónusta voru á meðal þess sem hæst bar á ráðstefnunni.

    • First
    • Prev
    • 50
    • 51
    • 52
    • 53
    • 54
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband