Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 301–350 af 3013
    Raða eftir:
    20. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Boðar til heilbrigðisþings 20. nóvember helgað endurhæfingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra boðar til heilbrigðisþings ársins 2025 sem helgað verður heilbrigðistengdri endurhæfingu. Þingið verður haldið fimmtudaginn 20. nóvember kl. 9.00-16.00 á Hótel Hilton Nordica. Skráning er hafin.

    20. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 13.- 17. október 2025

    20 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 13. - 17. október 2025 13

    20. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Krafa um tilvísun til sjúkraþjálfara afnumin og verklagi breytt

    Núgildandi fyrirkomulag tilvísana og fyrirkomulag beiðna til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um aukinn meðferðafjölda í sjúkraþjálfun hefur reynst tímafrekt, ómarkvisst og kostnaðarsamt. Krafa um tilvísun sérfræðings, þurfi sjúkratryggður fleiri meðferðarskipti en sex, verður því afnumin 1. apríl 2026. Fleiri breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi þessara mála samhliða afnámi tilvísanaskyldunnar. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir markmiðið að bæta stjórnsýslu, auka skilvirkni og draga úr sóun.

    20. okt. 2025Mennta- og barnamálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Ný stöðutaka undirstrikar þörf á bættri þjónustu og vernd fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis

    Ný stöðutaka aðgerðahóps stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sýnir að á undanförnum árum hefur orðið veruleg vitundarvakning í íslensku samfélagi um ofbeldi gegn börnum. Í þessari stöðutöku er sjónum beint að börnum sem eru þolendur ofbeldis, en síðasta stöðutaka aðgerðahópsins fjallaði um börn sem sýna áhættuhegðun eða beita ofbeldi.

    15. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilsugæslan þríefld í Hlíðunum

    „Heilsugæslan er hjartað í heilbrigðiskerfinu og starfsfólk hennar er púlsinn,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra þegar hún ávarpaði starfsfólk og gesti við formlega opnun á starfsemi þriggja starfseininga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) í Skógarhlíð í gær. Auk heilsugæslu er þar til húsa Heilaörvunarmiðstöð HH og í þessum mánuði fluttist Geðheilsuteymi taugaraskana í þriðja rýmið í húsinu í Skógarhlíð sem HH hefur nú að fullu til umráða fyrir starfsemi sína.

    14. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Frá orðum til aðgerða – saman tryggjum við öryggi barna

    Starfsfólk víðs vegar að úr forvörnum og þjónustu við börn kom saman á vinnufundi um samræmd viðbrögð við ofbeldi meðal barna í gær á Reykjavík Natura. Fundurinn var fjölsóttur með um 320 þátttakendum og markaði hann mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.

    13. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 6.- 10. október 2025

    13 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 6. - 10. október 2025 6

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn helgaður geðheilbrigði og mannúðarkrísum

    ​Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tók þátt í dagskrá tileinkaðri Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum sem er í dag. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin helgar 10. október ár hvert tilteknu þema sem snýr að geðheilsu og geðheilbrigðismálum. Fjölmennt var í Bíó Paradís þar sem geðheilbrigðismál voru í brennidepli og var Alma meðal ræðumanna.

    10. okt. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Ávarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra á Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 2025

    10 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Ávarp Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra á Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 2025 Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Kæru gestir, Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn 10

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Opnað fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsjóði

    Embætti landlæknis hefur opnað fyrir umsóknir um styrki úr lýðheilsusjóði. Lögbundið hlutverk sjóðsins er að styrkja lýðheilsustarf og stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Að þessu sinni er sjónum beint að lýðheilsuáskorunum sem tengjast andlegri líðan barna og ungmenna. Umsóknarfrestur er til 30. október næstkomandi.

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Stafræn heilsa

    Embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu laust til umsóknar

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstöðumanns nýrrar einingar sem bera mun nafnið Stafræn heilsa - þróunar- og þjónustumiðstöð. Einingin verður hluti af heilbrigðisráðuneytinu og heyra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu og tryggja yfirsýn. Einnig að styðja við nýsköpun og þar með aðkomu einkaaðila. Til að byrja með munu verkefni Stafrænnar heilsu lúta að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum og nýsköpun. Auglýsing um embættið hefur verið birt á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til 27. október næstkomandi.

    10. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mat á heilbrigðisviðbúnaði við bráðri lýðheilsuvá á Íslandi

    Fulltrúar Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Evrópusambandsins (EU) luku nýlega mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri. Aðildarríki EES samningsins undirgangast slíkt mat á þriggja ára fresti. Niðurstaðan liggur nú fyrir í meðfylgjandi skýrslu. Skýrslan sem er á ensku verður þýdd á íslensku og birtist þýðingin innan tíðar.

    09. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Upptökur, myndir, fyrirspurnir og svör frá vel heppnaðri nýsköpunarráðstefnu

    Húsfyllir var á nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins í Grósku í liðinni viku þar sem fjallað var um stafrænar lausnir og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Megináhersla ráðstefnunnar var á leiðir til að skýra umgjörð og farveg fyrir nýsköpunarsamfélagið til að þróa lausnir sem mæta þörfum heilbrigðiskerfisins. Einnig að skýra leikreglur, styrkja innviði og efla samstarf á þessu sviði með áherslu á að innleiða nýjungar á öruggan og skilvirkan hátt.

    06. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi – eftirlit með innleiðingu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra hafa staðfest áætlun um eftirlit með innleiðingu og framvindu verkefna aðgerðaáætlunar gegn sýklalyfjaónæmi.

    06. okt. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 29. september - 3. október 2025

    06 október 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 29. september - 3. október 2025 29

    02. okt. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Annað, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast á Akranesi: Móma-teymi stofnað

    Akraneskaupstaður hefur nú stigið mikilvægt skref í tengslum við Gott að eldast með stofnun svokallaðs Móma-teymis (móttöku- og matsteymis). Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun. Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá Akraneskaupstað, Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi (HVE) og hjúkrunarheimilinu Höfða. Með því er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Stafræn heilsa: Ný miðlæg eining til að efla nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnti í gær, á fyrstu nýsköpunarráðstefnu heilbrigðisráðuneytisins og ráðuneytis nýsköpunarmála, ákvörðun um að sett verði á fót ný miðlæg þróunar- og þjónustumiðstöð fyrir allt heilbrigðiskerfið undir heitinu Stafræn heilsa. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni, styðja við nýsköpun, þar með aðkomu einkaaðila og tryggja yfirsýn. Samhliða verður ráðist í styrkingu stjórnkerfis og stýringar stafrænnar heilbrigðisþjónustu.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmörkun á beitingu nauðungar – frumvarp til umsagnar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga. Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og móta lagaramma um verklag þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá meginreglunni. Einnig eru lögð til ný ákvæði sem skilgreina nauðung og fjarvöktun auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa. Markmið frumvarpsins er að tryggja betur réttindi sjúklinga og er liður í viðbrögðum við athugasemdum umboðsmanns Alþingis og ítrekaðra tilmæla alþjóðlegra eftirlitsaðila um nauðsyn þess að settur verði skýr lagarammi um beitingu nauðungar.

    02. okt. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Til umsagnar: Breytingar á lögum um sjúkratryggingar

    Birt hafa verið til umsagnar drög að frumvarpi Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra sem fela í sér ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Meðal annars er lögð til skýrari skylda Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanatöku á gagnreyndri meðferð og faglegu hagrænu mati. Þá er lagt til að biðtími einstaklings eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins verður styttur úr sex mánuðum í þrjá. Enn fremur að greiðsluþátttaka vegna veikinda eða slysa utan EES-svæðisins verði bundin við afmarkaða hópa, svo sem námsmenn, í stað þess að gilda almennt. Er þetta til samræmis við þær reglur sem almennt gilda á Norðurlöndunum.

    01. okt. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    Beint streymi: Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu

    Nú fer fram nýsköpunarráðstefna í Grósku. Uppbókað er á ráðstefnuna en hægt er að senda inn spurningar með því að smella ..

    29. sep. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 22.- 26. september 2025

    29 september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 22. - 26. september 2025 22

    29. sep. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 10/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja einstaklingi um sérfræðileyfi í ljósmóðurfræðum. Kærandi hélt því fram að synjun embættisins væri í ósamræmi við langa stjórnsýsluframkvæmd sem hefði breyst eftir að hún sótti um sérfræðileyfið. Í ákvörðun embættisins kom fram að nám kæranda, sem umsóknin sótti stoð sína í væri ekki skilgreint innan þess sérsviðs sem umsóknin tók til skv. reglugerð nr. 1089/2012. Í niðurstöðu ráðuneytisins kom fram að sérfræðileyfi vegna sama náms hafði verið veitt tveimur vikum áður en kærandi sótti um. Í millitíðinni hafði engin breyting orðið á stjórnsýsluframkvæmdinni og raunar ekki fyrr en nokkru síðar. Breytingin á stjórnsýsluframkvæmd embættisins við veitingu sérfræðileyfa væri í betra samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.…

    29. sep. 2025Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Heilbrigðisráðuneytið

    Nýsköpunarráðstefna: Ráðherrar kynna ný verkefni n.k. miðvikudag

    Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu: Ráðherrar kynna ný verkefni á nýsköpunarráðstefnu í Grósku n.k. miðvikudag. Örfá sæti laus!

    26. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Lyfjamál, Hagsýn í rekstri

    Breytingar á greiðsluþátttöku í lyfjakostnaði um næstu áramót

    Í kjölfar endurskoðunar á greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í lyfjakostnaði hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að gera breytingar á greiðsluþátttökukerfinu um næstu áramót.

    25. sep. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk

    25 september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk Grein ráðherra birtist á Vísi 25. september 2025 Af opinberri umræðu um málefni og stöðu trans fólks á Íslandi má sjá að töluvert skortir á þekkingu fólks þegar kemur að því hvernig heilbrigðisþjónustu við trans fólk er háttað. Þegar kemur að sértækri heilbrigðisþjónustu við trans fólk hér á landi er meðferðin í föstum skorðum þar sem leitast er við að veita örugga meðferð sem byggir á bestu þekkingu með stuðning og ábyrga upplýsingagjöf í öndvegi

    25. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Blóðbankinn fluttur í Kringluna

    Blóðbankinn hefur flutt starfsemi sína í Kringluna. Tímamótunum var fagnað með stuttu opnunarhófi í dag. Vonir eru bundnar við að staðsetning blóðbankans á einum fjölfarnasta stað höfuðborgarinnar verði til þess að fjölgi í hópi blóðgjafa. Til að mæta lágmarksþörfum heilbrigðiskerfisins þarf blóðbankinn um 16.000 blóðgjafir á ári, eða um 70 blóðgjafir á dag. Þörf er á 2.000 nýjum blóðgjöfum á ári í stað þeirra sem hætta að gefa vegna aldurs eða af öðrum ástæðum.

    24. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Læknamönnun á heilbrigðisstofnunum og lögmæti verktakasamninga

    Vegna frétta um uppsögn Sjúkrahússins á Akureyri á verktakasamningum við lækna sem nefndir hafa verið ferliverkasamningar, vill heilbrigðisráðuneytið koma á framfæri nokkrum atriðum sem greina á milli hefðbundinna verktakasamninga og samninga sem bera einkenni gerviverktöku og eru ólögmætir.

    23. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið

    Samstaða um að styrkja lífvísindi, aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmi og heilbrigðisviðbúnað í Evrópu

    Óformlegur fundur heilbrigðisráðherra Evrópusambandsins (EPSCO) fór fram í Kaupmannahöfn dagana 15.–16. september í boði Dana sem fara nú með formennsku í ESB. Heilbrigðisráðherrum EES/EFTA-ríkjanna var einnig boðið til fundarins og sótti Alma D. Möller heilbrigðisráðherra fundinn fyrir hönd Íslands. Ráðherrarnir leggja áherslu á að Evrópa þurfi að efla samstöðu og viðbúnað til að tryggja sjúklingum jafnan aðgang að lyfjum og nýjum meðferðum í breyttu alþjóðlegu samhengi.

    22. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um stefnu í áfengis- og vímuefnavörnum

    Nýverið stóð stýrihópur um áfengis- og vímuefnameðferðarkerfið fyrir heilsdags vinnustofu með helstu haghöfum áfengis- og vímuefnameðferðarkerfisins og annarra velferðarkerfa. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra skipaði stýrihópinn í mars síðastliðnum og fól honum það hlutverk að efla samskipti og samhæfingu milli þjónustuveitenda og stuðla að tímanlegri þjónustu fyrir notendur. Vinnustofan var haldin sem liður í því verkefni.

    22. sep. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 15.- 20. september 2025

    22 september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 15. - 20. september 2025 15

    18. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýbygging fyrir geðþjónustu Landspítala verði í Fossvogi

    Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur fallist á umsókn Nýs Landspítala ohf. (NLSH) um að hefja deiliskipulagsgerð í Fossvogi með það fyrir augum að þar rísi framtíðarhúsnæði geðþjónustu Landspítala. Skipulagslýsing vegna verkefnisins var samþykkt á fundi ráðsins í gær. „Þetta eru stór tíðindi og gleðileg því varla er hægt að hugsa sér betri staðsetningu og umhverfi til að byggja upp húsnæði fyrir geðþjónustu sem uppfyllir nútíma kröfur um batamiðaða hönnun“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

    16. sep. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 8/2025

    Útdráttur: Kærð var ákvörðun Landspítala um að synja einstaklingi um lækkun eða niðurfellingu sjúklingagjalda vegna heilbrigðisþjónustu sem einstaklingurinn naut á Landspítala í tilgreint skipti. Einstaklingurinn byggði á að heilbrigðisstarfsmaður hefði talið nauðsynlegt að hún hitti annan heilbrigðisstarfsmann. Í umsögn Landspítala kom fram að einstaklingurinn hefði, á þeim tíma sem hún naut heilbrigðisþjónustunnar, verið búsett erlendis og af þeim sökum ekki sjúkratryggð á Íslandi. Var henni því gert að greiða fullt gjald fyrir heilbrigðisþjónustuna sem hún þáði. Undir rekstri málsins upplýsti Landspítali að einstaklingurinn hefði skilað inn upplýsingum um búsetu sína í öðru Norðurlandi og sjúkratryggingastöðu sína.…

    15. sep. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 8.- 12. september 2025

    15 september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 8. - 12. september 2025 8

    15. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýsköpunarráðstefna um heilbrigðistæknilausnir og þjónustu, miðvikudaginn 1. október

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra boða sameiginlega til nýsköpunarráðstefnu um heilbrigðistæknilausnir og þjónustu á grundvelli þeirra. Markmiðið er að leiða saman haghafa til samtals um tækifærin sem felast í nýsköpun og nýjum lausnum í opinberri heilbrigðisþjónustu til að efla heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Fjallað verður um stöðuna eins og hún er í dag, um hönnun lausna til að mæta raunverulegum áskorunum, um innleiðingu þeirra, sjónarhorn sjúklinga o.fl. Einnig verður reynt að varpa ljósi á hvernig skýra megi lagaumgjörð og verkferla við innleiðingu stafrænnar tækni og gervigreindar í heilbrigðisþjónustu.

    12. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Styrkja Bergið-headspace um 20 milljónir króna

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson mennta- og barnamálaráðherra og Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins-headspace undirrituðu í dag styrktarsamning sem kveður á um 20 milljóna króna fjárframlag ráðuneytanna til að styðja við starfsemi Bergsins. Hvort ráðuneyti um sig leggur til 10 milljónir króna. Samningurinn gildir til loka þessa árs.

    11. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra heimsótti Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, skoðaði aðstæður stofnunarinnar á Ísafirði þar sem er rekin sjúkradeild og heilsugæsla, auk þess að heimsækja hjúkrunarheimilið Eyri og hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Ráðherra nýtti jafnframt ferðina vestur til að heimsækja höfuðstöðvar Kerecis á Ísafirði.

    11. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið

    Allir með: Áframhaldandi stuðningur við verkefni sem eykur þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

    Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.

    10. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Drög að frumvarpi tengt breyttu skipulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu til umsagnar

    Unnið er að breytingum á fyrirkomulagi heyrnar- og talmeinaþjónustu sem til fjölda ára hefur verið á hendi Heyrnar og talmeinastöðvar. Sett verður á fót sérhæfð, þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) sem tekur að mestu við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar sem verður lögð niður. Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um niðurlagningu Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    10. sep. 2025Ræður og greinar, Heilbrigðisráðuneytið

    Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna

    10 september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna Greinin birtist á Vísi 10. september 2025 Í dag, 10. september, er alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna en þá er sjónum beint að þeim mikla lýðheilsuvanda sem sjálfsvíg eru

    10. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Innsýn í þingmál heilbrigðisráðherra á 157. löggjafarþingi

    Alma D. Möller heilbrigðisráðherra er með þrettán þingmál á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 157. löggjafarþing. Þar af eru tíu lagafrumvörp, ein þingsályktunartillaga og tvær skýrslur til Alþingis. Sjö lagafrumvarpanna er áformað að leggja fram á Alþingi fyrir áramót. Þrjú þeirra hafa þegar verið samþykkt í ríkisstjórn og tvö af þeim voru lögð fram á Alþingi við setningu þingsins í gær.

    09. sep. 2025Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 9/2025

    Útdráttur: Kærandi kærði ákvörðun embættis landlæknis um að veita honum áminningu vegna mistaka við lyfjaávísun við undirbúning og í kjölfar aðgerðar auk hirðuleysis í samskiptum við embættið. Ráðuneytið taldi, með vísan til meðalhófsreglu, að því markmiði sem að var stefnt með ákvörðun landlæknis yrði náð með vægara móti, þ.e. með tilmælum um úrbætur. Ákvörðun embættis landlæknis var því felld úr gildi og lagt fyrir embættið að beina tilmælum til kæranda um úrbætur.

    09. sep. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mat á stafrænni þróun á landsvísu Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    09. sep. 2025Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Mat á stafrænni þróun á landsvísu Mat á stafrænni þróun á landsvísu

    09. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Stafræn heilsa

    Stafræn þróun í heilbrigðiskerfinu – vegvísir til framtíðar

    Yfirgripsmikilli vinnu á vegum heilbrigðisráðuneytisins við formlegt mat á stafrænni þróun og gagnamálum í heilbrigðiskerfinu er lokið og hefur lokaskýrsla verkefnisins nú verið birt. Í skýrslunni eru settar fram tillögur sem miða að skýrari forgangsröðun og samfellu í þjónustu, auknu aðgengi að gögnum og sameiginlegum innviðum sem tryggja skilvirkan og öruggan rekstur. Greiningunni og þeim tillögum sem birtast í skýrslunni er ætlað að vera vegvísir að stefnu til framtíðar.

    05. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Forvörn gegn RS veiru tekin í almenna notkun fyrir ungbörn í fyrsta sinn á Íslandi

    Öllum ungbörnum undir sex mánaða aldri verður boðin forvörn gegn RS veirusýkingu frá og með október næstkomandi. Þetta er nýmæli. RS-veiran er algeng orsök öndunarfærasýkinga, sem leggst sérstaklega þungt á börn á fyrsta aldursári, og veldur árlega fjölda innlagna á sjúkrahús hérlendis og erlendis. Í alvarlegum tilvikum þurfa börn að leggjast inn á gjörgæslu og fá öndunarvélarstuðning. Mótefnið verður gefið á sjúkrastofnunum þar sem fara fram fæðingar eða 5 daga skoðun, sem og í ungbarnavernd á heilsugæslum. Eldri börn í áhættuhópum geta einnig fengið mótefnið á sjúkrahúsum eða heilsugæslum. Frá þessu er greint á vef embættis landlæknis.

    03. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lífsstílsmóttaka á heilsugæslu HSU fyrir börn með offitu gæti orðið fyrirmynd

    Undanfarin misseri hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) unnið að þróunar- og rannsóknarverkefni fyrir svokallaða lífsstílsmóttöku fyrir börn á heilsugæslustöðvum í umdæminu. Verkefnið hefur yfirskriftina ,,Kraftmiklir krakkar” og hefur það markmið að fást við offitu meðal barna á markvissan hátt. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir frumkvæði HSU mikilsvert framtak. Verkefnið lofi góðu og hún telji það geta orðið fyrirmynd að sambærilegri þjónustu á heilbrigðisstofnunum um allt land. Horft verði til þess við mótun aðgerðaáætlunar gegn offitu sem unnið sé að í ráðuneytinu.

    02. sep. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

    64 ný hjúkrunarrými á Hrafnistu í Kópavogi

    Félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra, bæjarstjóri Kópavogs og forráðamenn Hrafnistu opnuðu í dag nýtt 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi. Fyrir eru 44 rými í Boðaþingi og eru hjúkrunarrýmin þannig orðin 108 talsins. Óhætt er að segja að um mikilvægan áfanga sé að ræða í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi, enda eru biðlistar langir, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Eignarhald er sameiginlega á hendi ríkisins og Kópavogsbæjar en Hrafnista annast reksturinn.

    02. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Sálfræðiþjónusta við fullorðna – gildistími tilvísana tvöfaldaður

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tvöfalda gildistíma tilvísana frá heilsugæslu sem er skilyrði fyrir meðferð fullorðinna hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum á samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Gildistíminn hefur verið sex mánuðir en verður tólf. Reglugerð ráðherra þessa efnis tekur gildi 15. september.

    02. sep. 2025Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Hagsýn í rekstri

    Hagræðing og tiltekt í heilbrigðiskerfinu

    Í upphafi árs tók heilbrigðisráðherra ákvörðun um að ráðast í 38 aðgerðir til hagræðingar og einföldunar í heilbrigðiskerfinu í samræmi við markmið ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um hagræðingu og hagsýni í ríkisrekstri. Aðgerðirnar eru mislangt komnar, fimm er þegar lokið en ráðuneytið hefur mótað skýra sýn á framhald þeirra aðgerða sem áfram er unnið að.

    01. sep. 2025Annað, Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagbók ráðherra 25.- 29. ágúst 2025

    01 september 2025 / Heilbrigðisráðuneytið Dagbók ráðherra 25. - 29. ágúst 2025 25

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband