Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 301–350 af 2063
    Raða eftir:
    05. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvörp heilbrigðisráðherra sem urðu að lögum á vorþingi

    Fimm frumvörp heilbrigðisráðherra urðu að lögum frá Alþingi á liðnu vorþingi. Í þeim felast ýmis nýmæli sem eru mikilvæg fyrir notendur og veitendur heilbrigðisþjónustu og styrkja stjórnsýslu heilbrigðismála. Þar má nefna ákvæði um umsýsluumboð vegna aðgangs að stafrænum heilbrigðisgáttum, miðlun sjúkraskrárupplýsinga milli landa í þágu meðferðar sjúklinga og ákvæði sem einfaldar umsóknarferli vegna tiltekinna vísindarannsókna. Samþykkt var ný heildarlöggjöf um sjúklingatryggingu og gerðar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu þannig að í löggjöfinni sé tekið mið af þeim breytingum sem leiða af örri þróun á sviði fjarheilbrigðisþjónustu.

    03. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjórar ferðir fást nú endurgreiddar vegna heilbrigðisþjónustu innanlands

    Almennur réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast við nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. Reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi 1. júlí. Í byrjun þessa árs var rétturinn aukinn úr tveimur ferðum í þrjár og nú hefur fjórða ferðin bæst við.

    01. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjölgun meðferðarrýma í Krýsuvík

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúa Krýsuvíkursamtakana hafa undirritað samkomulag um fjölgun rýma og aukinn stuðning við meðferðarheimilið Krýsuvík. Samkomulagið kveður á um aukið aðgengi að þjónustunni og fjölgun meðferðarplássa um þriðjung, ásamt því að efla faglegt meðferðarstarf í Krýsuvík.

    01. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný legudeildarbygging við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirritaði í liðinni viku samning vegna hönnunar á nýrri 10.000 fermetra legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri. Undirritunin fór fram við hátíðlega athöfn á Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 27. júní. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2028.

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillaga að aðgerðaáætlun – skýrsla samráðshóps um krabbamein

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um nýja aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum til ársins 2030. Samráðshópur sem ráðherra skipaði í byrjun þessa árs til að vinna drög að slíkri áætlun skilaði niðurstöðum sínum í dag. Lagt er til að aðgerðaáætlunin endurspegli þau grunngildi sem fram koma í ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu þar sem m.a. er lögð áhersla á rétta þjónustu á réttum stað og forvarnir á öllum æviskeiðum. Enn fremur verði tekið tillit til breytinga og nýjunga á sviði greininga, meðferðar og þjónustu og breyttra viðhorfa til krabbameina frá því að fyrsta krabbameinsáætlunin var gerð.

    20. jún. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum

    júní 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum - skýrsla starfshóps

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmur milljarður króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum einum milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þetta er hæsta úthlutun úr sjóðnum til þessa. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt. Veitt voru framlög til 73 verkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Við úthlutun lagði stjórn Framkvæmdasjóðsins áherslu á verkefni sem stuðla að bættum aðbúnaði og auknu öryggi íbúa. Þar má nefna breytingu tvíbýla í einbýli, endurbætur á einkarýmum og sameiginlegum rýmum íbúa, bætta aðstöðu til endurhæfingar og þjálfunar, greiðara aðgengi innanhúss og utan og ýmis fleiri öryggismál auk almennra viðhaldsverkefna.

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum – skýrsla starfshóps

    Starfshópur heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Hlutverk hópsins var að greina stöðu þessara mála og gera tillögur um hvernig best megi koma til móts við þarfir þeirra einstaklinga sem um ræðir. Auk fulltrúa ráðuneytanna sátu í starfshópnum fulltrúar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Öryrkjabandalags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    13. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Börnum, öldruðum og öryrkjum tryggð greiðsluþátttaka fyrir tannlæknaþjónustu í samningi

    Nýr samningur tryggir greiðsluþátttöku tannlækninga fyrir börn, aldraða og öryrkja til næstu fimm ára. „Þessi heildarsamningur um þjónustu tannlækna er enn ein varðan á vegferð stjórnvalda til að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu og stuðla þannig að jöfnu aðgengi. Samningurinn gildir til fimm ára, líkt og nýgerður samningur um þjónustu sjúkraþjálfara og samningurinn um þjónustu sérgreinalækna. Ég óska samningsaðilum og þjónustuþegum til hamingju með þessi tímamót“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    13. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Netsala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra bendir á í bréfi til fjármála- og efnahagsráðherra að með netsölu áfengis sé grafið undan gildandi sölufyrirkomulagi á áfengi og grundvallarmarkmiðum stefnu stjórnvalda í lýðheilsumálum ógnað. Vísar hann m.a. til markmiðsákvæða áfengislaga og laga um verslun með áfengi og tóbak sem kveða á um að umgjörð smásölu áfengis skuli byggjast á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð.

    11. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mótuð verði stefna um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi og móta drög að stefnu þar að lútandi. Formaður hópsins er Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

    05. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um merkingar á tóbaksvörum, útlit umbúða o.fl.

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð sem felur í sér breyttar kröfur varðandi merkingar og útlit á umbúðum tóbaksvara, innihaldsefni og losun frá tóbaksvörum og kröfur um upplýsinga- og skýrslugjöf framleiðenda og innflytjenda á slíkum varningi. Umsagnarfrestur er til 24. júní næstkomandi.

    31. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Upplýsingar um kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum heilbrigðisráðuneytisins

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

    30. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi meðal áherslumála á 77. þingi WHO

    Sýklalyfjaónæmi er eitt af helstu umfjöllunarefnunum á 77. þingi Alþjóðaheilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO) sem nú stendur yfir í Genf. Sýklalyfjaónæmi er alþjóðlegt heilbrigðisvandamál sem ógnar heilsu manna og dýra, matvælaframleiðslu og umhverfi. Áætlað er að um 1,27 milljónir dauðsfalla á heimsvísu árið 2019 hafi verið tengd sýklalyfjaónæmi, og ef ekkert er að gert, gætu þessi dauðsföll orðið allt að 10 milljónir á ári fyrir árið 2050​​.

    21. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið við sjúkraþjálfara eftir fjögurra ára samningsleysi

    Nýr samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra: „Þetta eru mikil tímamót eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi sem hefur bitnað á notendum þjónustunnar. Með samningnum falla niður aukagjöld sem lögð hafa verið á þjónustuþega. Samningurinn stuðlar þannig að auknum jöfnuði. Jafnframt er kveðið á um margvíslegt þróunar- og gæðastarf þjónustunnar í þágu notenda“ segir Willum Þór.

    15. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skilgreining á fjarheilbrigðisþjónustu leidd í lög

    Frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi í gær. Þar með hefur verið leidd í lög skilgreining á hugtakinu fjarheilbrigðisþjónustu, ásamt frekari skýringum á þeirri þjónustu, tæknilausnum, verkefnum og verklagi sem falla undir hugtakið. Fjarheilbrigðisþjónusta er ört vaxandi hluti almennrar heilbrigðisþjónustu. Því er mikilvægt að gildandi löggjöf taki mið af þeirri þróun og einnig að öryggi viðkvæmra persónulegra upplýsinga við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu sé tryggt.

    14. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmarkanir á meðferðum til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð um takmarkanir á meðferðum sem felast í því að breyta útliti fólks án læknisfræðilegs tilgangs. Reglugerðardrögin einskorðast við tilteknar meðferðir, þ.e. sprautun fylliefna undir húð, sem geta valdið einstaklingum skaða ef eitthvað fer úrskeiðis. Hættuminni meðferðir, s.s. húðslípun, húðþétting og örnálameðferðir falla utan gildissviðs reglugerðarinnar.

    13. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Einfaldar tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Drög að reglugerðarbreytingum þessa efnis hafa verið birtar til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að bæta þjónustu og auka skilvirkni, meðal annars með áherslu á að tími lækna nýtist betur til að sinna beinni þjónustu við sjúklinga.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Efla þarf norrænt samstarf gegn sýklalyfjaónæmi

    Norrænir heilbrigðisráðherrar eru einhuga um nauðsyn þess að styrkja norrænt samstarf gegn sýklalyfjaónæmi. Svíþjóð fer á þessu ári með formennsku í norrænu ráðherranefndinni og mun m.a. leggja sérstaka áherslu á að tryggja greiðari og öruggari aðgang að sýklalyfjum. Þetta var meðal umræðuefna á árlegum fundi ráðherranna í Stokkhólmi. Stefnt er að því uppfæra og innleiða þverfaglega yfirlýsingu um sýklalyfjaónæmi sem norræna ráðherranefndin samþykkti árið 2015 og fjallar um þessi mál í víðu samhengi.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aðild Íslands að FiNoSe – norrænu samstarfi um heilbrigðistæknimat fyrir ný lyf

    Ísland er orðið fullgildur aðili að norræna samstarfsvettvanginum FiNoSe um framkvæmd heilbrigðistæknimats (HTA) fyrir ný lyf. Samningur þessa efnis var undirritaður í Stokkhólmi 11. apríl sl. Landspítali tekur þátt í samstarfinu fyrir Íslands hönd en þar eru fyrir stofnanir frá hinum Norðurlandaþjóðunum fjórum sem vinna sameiginlega að heilbrigðistæknimati nýrra lyfja.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Vinnustofa um beitingu atferlisvísinda til að efla lýðheilsu

    Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, hélt vinnustofu á dögunum um hvernig efla megi lýðheilsu með aðferðum atferlisvísinda og betri innsýn í menningarleg gildi innan samfélaga (e. behavioral and cultural insights).

    06. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Gervigreind

    Gervigreind á sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Formleg skimun fyrir augnsjúkdómum af völdum sykursýki hefur verið innleidd á sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fyrstri allra heilbrigðisstofnana. Við skimunina er notuð sérstök myndavél frá sprotafyrirtækinu RetinaRisk, sem styðst við gervigreind og metur líkur á skemmdum í augnbotnum. Lionsklúbbur Njarðvíkur veitti HSS veglegan styrk til kaupa á myndavélinni. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, frumkvöðlar frá RetinaRisk og fulltrúar frá Lionsklúbbnum heimsóttu HSS nýverið þar sem þessi nýjung í þjónustu stofnunarinnar var kynnt.

    26. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Almenn þátttaka í bólusetningum forsenda árangurs

    Evrópsk bóluefnavika stendur nú yfir og samhliða er haldið upp á hálfrar aldar afmæli bólusetningaráætlunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fyrir börn.

    15. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Styrkir félagasamtök um 80 milljónir til verkefna á sviði heilbrigðismála

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur veitt 80 milljónir króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls voru veittir styrkir til 29 verkefna og námu styrkfjárhæðir á bilinu 800.000 kr. til 6000.000 kr. Hæstu styrkina hlutu Hjartaheill, Rótin, Gigtarfélag Íslands, Alzheimersamtökin og SÍBS.

    05. apr. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Þegar vísindarannsóknir og heilbrigðisþjónusta mætast - málþing 19. apríl

    Vísindasiðanefnd boðar til málþings föstudaginn 19. apríl kl. 13:00-15:30 í Veröld – húsi Vigdísar. Málþingið fjallar um upplýsingagjöf til þátttakenda í vísindarannsóknum um atriði sem varða heilsu þeirra.

    03. apr. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu 2023-2027

    apríl 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu 2023-2027 Aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu 2023-2027

    02. apr. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan - styrkir til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu: Opið fyrir umsóknir

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Fléttuna - styrki til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðistækni- og þjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2024.

    26. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Undirbúningur hafinn að stofnun vottaðrar viðbragðssveitar (EMT)

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur stofnað undirbúningshóp til að koma á fót EMT (Emergency Medical Team) viðbragðssveit á Íslandi. Ákvörðun um stofnun hópsins er tekin að undangengnu samráði í ríkisstjórn.

    26. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tæpur milljarður kr. í styrki til lýðheilsuverkefna á Íslandi

    Embætti landlæknis leiðir tvö stór lýðheilsuverkefni á sviði heilbrigðismála sem nýlega hafa hlotið nærri 1,0 milljarð kr. í styrk frá Evrópusambandinu. Um 800 m.kr. renna til verkefnis sem felst í innleiðingu árangursríkra aðgerða til að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma. Hitt verkefnið snýr að aðgerðum til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Sá styrkur nemur um 113 m.kr. og mun styðja við framkvæmd verkefna í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda á þessu sviði.

    22. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi frumvarpi til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið er endurflutt. Það var upphaflega lagt fram á 152. þingi. Síðan hafa verið gerðar á því nokkrar breytingar á grundvelli umsagna og umræðu um málið á Alþingi.

    21. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta landsáætlun Íslands um sjaldgæfa sjúkdóma

    Vinnuhópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði í október sl. til að móta drög að landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma hefur skilað niðurstöðum sínum. Landsáætlun er ætlað að vera leiðbeinandi um þjónustu við einstaklinga og aðstandendur þeirra sem falla undir skilmerki um sjaldgæfa sjúkdóma. Ráðherra segir ríka þörf fyrir áætlun sem þessa. Þjónusta við þennan hóp sé margþætt úrlausnarefni sem kalli á mikið og gott samstarf margra aðila, þvert á ráðuneyti, stofnanir og stjórnsýslustig.

    21. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samnorrænt lyfjaútboð með áherslu á sýklalyf

    Ísland, Noregur og Danmörk hafa ráðist í sameiginlegt lyfjaútboð. Í útboðinu eru gerðar sérstakar kröfur varðandi sýklalyf með áherslu á að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Þetta er þriðja sameiginlega stóra lyfjaútboð þjóðanna. Útboðin hafa stuðlað að bættu lyfjaöryggi og leitt til lægra lyfjaverðs sem hefur til að mynda sparað Landspítala um 100 milljónir króna á ársgrundvelli. Ávinningurinn er þó meiri þar sem heilbrigðisstofnanir um allt land njóta góðs af lægra innkaupaverði lyfja.

    19. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skipun nýrrar mats- og hæfisnefndar um sérnám lækna

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna í samræmi við ákvæði nýrrar reglugerðar nr. 856/2023 sem tók gildi 16. ágúst síðastliðinn. Nefndin er nú skipuð fimm sérfræðilæknum í stað þriggja áður. Formaður nefndarinnar er Ólafur Baldursson.

    15. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    102.000 einstaklingar nýtt sér þjónustu sérgreinalækna samkvæmt nýjum samningi

    Um 102.000 einstaklingar hafa nýtt sér þjónustu sérgreinalækna á grundvelli þjónustusamnings þeirra og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem tók gildi 1. september síðastliðinn. Meðan samningslaust var við sérgreinalækna innheimtu þeir viðbótarkomugjöld af sjúklingum til að mæta kostnaði umfram gjaldskrá sjúkratrygginga. Með þjónustusamningnum 1. september féllu þessi gjöld niður og áætlar SÍ að samningurinn hafi sparað þeim sem nýtt hafa þjónustu sérgreinalækna frá gildistöku samningsins um 1,3 milljarða króna.

    14. mar. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2022 til júní 2023

    mars 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2022 til júní 2023 Ársskýrsla Landsráðs um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu júní 2022 til júní 2023

    14. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný námsleið á meistarastigi um ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

    Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun er ný námsleið við Háskólann á Akureyri sem hefst næsta haust. Heilbrigðisráðuneytið veitti skólanum 7 milljóna króna styrk til að koma náminu á fót til að fylgja eftir áherslum í aðgerðaáætlun ráðuneytisins í þjónustu við fólk með heilabilun. Námsleiðin verður kynnt á opnun kynningarfundi háskólans mánudaginn 18. mars.

    08. mar. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð – tillögur að aðgerðum varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan

    mars 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Stefnumarkandi áherslur í forvörnum, heilsueflingu og meðferð – tillögur að aðgerðum varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan Stefnumarkandi áherslur í forvörnum,heilsueflingu og meðferð – tillögur aðaðgerðum varðandi offitu, holdafar, heilsu og líðan - skýrsla starfshóps

    07. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi um fjarheilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt frumvarpinu verður bætt inn í lögin ákvæðum um fjarheilbrigðisþjónustu, skýringum á þeirri þjónustu sem flokkast þar undir ásamt ákvæði um upplýsingaöryggi.

    07. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Formleg opnun heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri

    Ný heilsugæslustöð í Sunnuhlíð á Akureyri var formlega tekin í notkun við hátíðlega athöfn sl. mánudag. Willum Þór, heilbrigðisráðherra flutti ávarp í tilefni af þessum tímamótum sem og Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Heilsugæslustöðin er í um 1800 fermetra húsnæði sem er sérhannað fyrir heilsugæsluþjónustu. Stöðin mun umbylta allri aðstöðu fyrir bæði starfsfólk og íbúa og er lyftistöng fyrir heilsugæsluþjónustu á þjónustusvæði hennar.

    05. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mælti fyrir frumvarpi um aukna tryggingavernd sjúklinga

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi að nýjum heildarlögum um sjúklingatryggingu. Markmiðið er að tryggja sjúklingum aukna vernd og aukinn rétt til bóta verði þeir fyrir tjóni af völdum heilbrigðisþjónustu. Sjúklingatryggingakerfið verður samræmt og einfaldað, málsmeðferð bætt og jafnræði tjónþola aukið. Frumvarpið felur í sér margvísleg nýmæli og réttarbætur. Meðal annars er lagt til að hámarksfjárhæð bóta vegna tjóns verði hækkuð um 50%.

    04. mar. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nýir forstjórar teknir til starfa við heilbrigðisstofnanir Suðurnesja og Vestfjarða

    Þann 1. mars tóku til starfa tveir nýir forstjórar heilbrigðisstofnana; þau Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Lúðvík Þorgeirsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Heilbrigðisráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu.

    29. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tímamótasamningur um nám í heyrnarfræðum á háskólastigi

    Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ), Háskólinn í Örebro í Svíþjóð og Háskólinn á Akureyri hafa gert með sér samning sem gerir kleift að bjóða upp á háskólanám í heyrnarfræðum í fyrsta sinn hér á landi. Samningurinn var undirritaður í dag. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir samninginn marka tímamót: „Það hefur verið skortur á sérþjálfuðum heyrnarfræðingum hér á landi. Nú má vænta þess að þeim fjölgi á næstu árum og að hægt verði að stórbæta þjónustu við fólk með heyrnarskerðingu hér á landi.“

    28. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópi falið að uppfæra heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að móta heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum. Stefnan á að taka til forvarna, meðferðar og eftirfylgni, endurhæfingar og lagaumhverfis. Jafnframt er gert ráð fyrir að hún taki mið af mismunandi þörfum ólíkra hópa: „Sú stefna sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár er frá árinu 2013. Endurskoðun er því tímabær í ljósi margvíslegra breytinga sem orðið hafa á undanförnum árum, hvort sem litið er til samfélagslegra breytinga, viðhorfa til áfengis- og vímuefnavanda eða þekkingar á sviði forvarna og meðferðar. Ég vænti mikils af hópnum því þetta er mikilvægt samfélagslegt málefni og því brýnt að gera betur“ segir Willum Þór.

    23. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Metfjöldi liðskiptaaðgerða – biðlistar styttast

    Valkvæðar liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám voru samtals 2.138 árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri. Aðgerðum fjölgaði um rúmlega 800 milli ára og nemur aukningin tæpum 60%. Miðgildi biðtíma eftir liðskiptaaðgerð fór úr 9,5 mánuðum í 4,6 mánuði á Landspítala frá byrjun til loka árs 2023.

    22. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðherra styrkir frumkvöðlaverkefni um niðurtröppun ópíóíða

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja tilraunaverkefni um nýja þjónustu við einstaklinga sem taka sterk verkjalyf eða svefn- og róandi lyf að staðaldri og vilja aðstoð til að hætta eða draga úr notkun þeirra. Verkefnið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóíðafíknar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilsugæslan Urðarhvarfi og Reykjanesapótek standa saman að verkefninu í samstarfi við sprotafyrirtækið Prescriby sem hefur þróað hugbúnaðinn sem verkefnið byggir á. Læknar og lyfjafræðingar munu sinna þjónustunni sem felst í persónusniðinni meðferðaráætlun fyrir þá einstaklinga sem munu nýta sér hana, fræðslu og eftirfylgd.

    22. feb. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Neytendamál, Umhverfi og náttúruvernd, Fæðuöryggi, Heilbrigðismál, Landbúnaður, Lýðheilsa og forvarnir, Lyfjamál, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur að aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi

    febrúar 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Tillögur að aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi Tillögur að aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi

    22. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ný aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    Þverfaglegur starfshópur skipaður af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í samvinnu við matvæla- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, leggur til að ráðist verði í víðtækar aðgerðir hér á landi til að sporna við útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Útbreiðsla þeirra er enn sem komið er minni hér á landi en í mörgum öðrum löndum en hefur aukist á undanförnum árum. Mikilvægt er að Ísland haldi góðri stöðu sinni til að tryggja öryggi sjúklinga, standa vörð um starfsemi heilbrigðis- og umönnunarstofnana og sporna við auknum kostnaði í heilbrigðiskerfinu sem er óhjákvæmilegur fylgifiskur sýklalyfjaónæmis.

    19. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Fatlað fólk, Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir

    Yfirlýsing undirrituð um samstarf þjónustukerfa á sviði endurhæfingar

    Heildstæð nálgun, samvinna kerfa og samfella í þjónustu verða leiðarstefin í endurhæfingu fólks samkvæmt viljayfirlýsingu sem hefur verið undirrituð. Einstaklingar í endurhæfingu skulu markvisst leiddir milli þjónustukerfa þurfi þeir á þjónustu fleiri en eins kerfis að halda og skýrt verður hvernig ábyrgð á þjónustunni færist á milli kerfa.

    16. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ungmennaráð heimsmarkmiðanna átti fund með heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fundaði í dag með fulltrúum ungmennaráðs heimsmarkmiðanna. Á fundinum afhentu þau ráðherra tillögur frá börnum og ungmennum um ýmis verkefni sem snerta heilbrigði barna og ungs fólks um allt land. „Þetta var virkilega gagnlegur og skemmtilegur fundur með þessum flottu fulltrúum yngri kynslóðarinnar. Þau hafa sterkar skoðanir, þau vilja hafa áhrif, þau hafa brennandi áhuga á aðgerðum stjórnvalda, sjálfbærri þróun og eru afar vel að sér um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Það býr mikill kraftur í þessum krökkum og þau fylla mig bjartsýni á framtíðina“ sagði Willum Þór að loknum fundinum.

    16. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Framúrskarandi Landspítali - grein eftir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fjallar í blaðagrein í dag um breytingar á stjórnskipulagi Landspítala, innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar og margvísleg umbótaverkefni sem hafa skilað góðum árangri: ,,Í ljósi þeirra umbóta sem átt hafa sér stað á Landspítala þá er afar ánægjulegt að rýna í starfsemistölur spítalans á árinu 2023 og sjá að þessar breytingar og aðgerðir eru að bera raunverulegan árangur. Afköst spítalans hafa aukist umtalsvert á sama tíma og spítalinn skilaði hagstæðri rekstrarafkomu sem nemur, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri, rúmum 600 milljónum króna."

    • First
    • Prev
    • 5
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband