Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
EN
• Verkefni
• Almannatryggingar og lífeyrir
• Almannaöryggi
• Atvinnuvegir
• Auðlindir
• Efnahagsmál
• Félags- og fjölskyldumál
• Fjarskipti
• Húsnæðis- og mannvirkjamál
• Líf og heilsa
• Kosningar
• Lög og réttur
• Mannauðsmál ríkisins
• Mannréttindi og jafnrétti
• Menningarmál
• Menntamál
• Neytendamál
• Opinber fjármál
• Persónuréttur
• Rekstur og eignir ríkisins
• Samgöngur
• Sjálfbært Ísland
• Skipulagsmál
• Stjórnskipan og þjóðartákn
• Sveitarstjórnir og byggðamál
• Trú og lífsskoðun
• Umhverfi og náttúruvernd
• Upplýsingatæknimál ríkisins
• Utanríkismál
• Útlendingar
• Vinnumál
• Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
• Öll verkefni
• Efst á baugi
• Fréttir
• Nýjast
• Fyrir fjölmiðla
• Eldri fréttir
• Fyrirspurnir frá Alþingi
• Gögn
• Rit og skýrslur
• Úrskurðir og álit
• Eyðublöð
• Stefnur og áætlanir
• Styrkir og sjóðir
• Hugtakasafn
• Lög og reglugerðir
• Málaskrár ráðuneyta
• Mælaborð
• Hönnunarstaðall
• Ráðuneyti
• Forsætisráðuneytið
• Atvinnuvegaráðuneytið
• Dómsmálaráðuneytið
• Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
• Fjármála- og efnahagsráðuneytið
• Heilbrigðisráðuneytið
• Innviðaráðuneytið
• Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
• Mennta- og barnamálaráðuneytið
• Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
• Utanríkisráðuneytið
• Sendiskrifstofur
• Samstarfsráðherra Norðurlanda
• Starfsfólk
• Stofnanir
• Nefndir
• Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
• Umbra
• Ríkisstjórn
• Skipan ríkisstjórnar
• Ríkisstjórnarfundir
• Stjórnarsáttmáli
• Ráðherranefndir
• Reglur um starfshætti
• Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
• Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
• Þingmálaskrá
• Ríkisráð
• Sögulegt efni
• Fyrir fjölmiðla
Close navigation
Efnisorð
Efnisorð

Ekkert fannst

Tegund
Tegund

Leita eftir efnisorðum

Sýnir 3001–3050 af 3887
Raða eftir:
20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-466/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012.

Kærð var synjun Akureyrarbæjar á beiðni um aðgang að tveim skýrslum er vörðuðu eineltismál. Skýrsla gagn í máli sem lokið var með ákvörðun um rétt og skyldu kæranda. Einkamálefni einstaklinga. Vísað frá varðandi aðra skýrsluna. Staðfest synjun að undanskildum tilteknum hlutum úr hinni skýrslunni.

20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-465/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012.

Kærð var synjun Fjármálaeftirlitsins um aðgang að gögnum. Gögn ekki fyrirliggjandi hjá stjórnvaldi. Rannsókn eða saksókn í opinberu máli. Frávísun að hluta. Synjun staðfest að hluta.

20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-464/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012

Kærð var afgreiðsla Samkeppniseftirlitsins á beiðni um aðgang að gögnum sem aflað var í tengslum við ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli nr. 17/2010. Aðgangur veittur að hluta. Synjun staðfest að hluta. Kærunni að öðru leyti vísað frá.

20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-463/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012

Kærð var synjun umboðsmanns skuldara fundargerðum samráðshóps vegna hæstaréttardóms nr. 600/2011 frá 15. febrúar 2012 sem og öðrum gögnum sem tengdust vinnu hans frá upphafi til enda. Einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga. Viðskiptahagsmunir. Þagnarskylda. Fallist á að umboðsmanni bæri að afhenda umrædd gögn.

20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-462/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012.

Staðfest var synjun Fjármálaeftirlitsins á því að afhenda afrit af skýrslu PricewaterhouseCoopers ehf. um starfshætti Sparisjóðsins í Keflavík. Kæru vísað frá að því er varðar beiðni um upplýsingar um það hvort Fjármálaeftirlitið hafi kært tiltekin efnisatriði sem fram komi í skýrslunni til sérstaks saksóknara eða áframsent skýrsluna með einhverjum hætti til hans.

20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-460/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012.

Kærð var synjun efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, nú fjármála- og efnahagsráðuneyti, á beiðni kæranda um aðgang að fundargerðum nefndar um fjármálastöðugleika þar sem fjallað var um málefni tiltekins eignarhaldsfélags, fyrir og eftir 1. október 2009. Réttur aðila til aðgangs að upplýsingum um hann sjálfan. Þagnarskylda. Vinnuskjöl. Fallist á að ráðuneytinu bæri að afhenda fundargerðirnar eftir 1. október 2009. Kæru vegna kröfu um afhendingu fundargerða fyrir þann tíma vísað frá nefndinni þar sem nefndinni hafði þá verið stýrt af fulltrúa forsætisráðuneytisins en beiðni um aðgang að gögnunum hafði ekki verið beint að forsætisráðuneytinu í upphafi og erindið ekki verið framsent á grundvelli 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

20. des. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-461/2012. Úrskurður frá 20. desember 2012.

Vísað var frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæru þar sem farið var fram á gögn er vörðuðu útboð. Kærandi var einn af þeim sem lagði fram tilboð. Um rétt til aðgangs að umbeðnum upplýsingum fór eftir ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Beiðni skal beint að stjórnvaldi sem tekur stjórnvaldsákvörðun.

18. des. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Mörg tækifæri í sjónmáli

„Engum blöðum er um það að fletta að Norðausturkjördæmið mun á næstu misserum njóta ávaxta af undirbúningi ýmissa verkefna sem mörg hver hafa þó tafist m.a. vegna þeirrar óvissu sem alþjóðleg fjármálakreppa hefur bakað fjárfestum,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, sem birtist í Vikudegi 13. desember 2012.

12. des. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ísland er ódýrast Norðurlanda

„Síðastliðinn mánudag fjallaði Ríkissjónvarpið um skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar. Fréttin var um að verðlag hefði hækkað meira hér á landi árin 2005-2011 en í hinum norrænu ríkjunum. Fréttin gaf að mörgu leyti villandi mynd af inntaki skýrslunnar þar sem ekki var fjallað um tvö lykilatriði hennar,“ segir í upphafi greinar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 12. des. 2012.

10. des. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Útrýmum kynbundnu ofbeldi

„Einn allra stærsti áfanginn í sögu jafnréttisbaráttunnar á síðustu áratugum felst óneitanlega í að þögnin um kynbundið ofbeldi hefur verið rofin og jafnframt hefur baráttan gegn því verið sett á dagskrá grasrótarsamtaka, stjórnmálanna og samfélagsins alls. Við vitum að á meðan kynbundið ofbeldi er við lýði eru mannréttindi og velferð, líf og heilsa fótum troðin,“ segir í grein Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu 8. -9. desember 2012.

05. des. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Áfangaskýrsla vegna aðgerðaáætlunar um eflingu græna hagkerfisins á Íslandi

Verkefnastjórn um eflingu græna hagkerfisins á Íslandi hefur skilað áfangaskýrslu.

04. des. 2012Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ályktanir og önnur gögn frá Vísinda- og tækniráði frá 2009-2012

desember 2012 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Forsætisráðuneytið Ályktanir og önnur gögn frá Vísinda- og tækniráði frá 2009-2012 Ályktanir og önnur gögn frá Vísinda- og tækniráði frá 2009-2012 tekið saman í einu skjali

26. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Bölmóður án tilefnis

"Seðlabankinn og stjórnvöld ræða þetta mál reglulega og hafa fullt vald á því.
Ég tel mjög mikilvægt að vinna þetta mál í víðtækri sátt. Erlendir kröfuhafar þurfa að fá skýr skilaboð um að pólitísk staða á Íslandi breyti engu um meðferð málsins því einhugur ríki um að ganga eins langt í vörn fyrir íslenska hagsmuni og lög og þjóðréttarlegar skuldbindingar leyfa," segir í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í Fréttablaðinu helgina 24.- 25.nóvember 2012.

22. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-459/2012. Úrskurður frá 22. nóvember 2012.

Kærð var synjun Ríkiskaupa á beiðni um aðgang að upplýsingum um utanlandsferðir allra starfsmanna stofnunarinnar á hennar vegum frá ársbyrjun 2010 til þess dags er beiðni var sett fram. Í beiðninni fólst að óskað var eftir upplýsingum í ótilteknum fjölda mála. Skylda til að útbúa gögn ekki fyrir hendi. Frávísun.

22. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-458/2012. Úrskurður frá 22. nóvember 2012.

Kærð var sú ákvörðun Þjóðskjalasafns Íslands að synja um aðgang að skýrslum nafngreindra einstaklinga sem gefnar voru fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Þagnarskylda. Einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga. Synjun staðfest.

20. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Viðurkenning Barnaheilla á afmælisdegi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna – ávarp forsætisráðherra.

„Samkvæmt árlegri skýrslu Barnaheilla sem út kom í vor er best að vera barn á Íslandi. Sú niðurstaða byggir á margvíslegum samanburði s.s. á heilsu, menntun og næringu.
Einnig má nefna að í skýrslu UNICEF sem út kom fyrr á þessu ári mælist Ísland með minnstu barnafátækt í heimi. Sú skýrsla veitir þó vísbendingar um að börn foreldra með litla menntun, innflytjenda og atvinnulausra séu líklegri til þess að líða skort en aðrir hópar,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í ávarpi sínu á samkomu Barnaheilla á afmælisdegi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

19. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Sinnaskipti Sjálfstæðisflokksins

„Ég elti hins vegar ekki ólar við það að þingmenn Sjálfstæðisflokksins reyndu að fella frumvarpið um gjaldeyrishöftin í mars síðastliðnum. Sinnaskipti þeirra eru jákvæð og vitanlega mikilsvert að geta ráðið bót á þeim langvinna sjúkdómi eftirhrunsáranna sem hengjan svonefnda og gjaldeyrishöftin eru. Við þurfum til dæmis að fara yfir það hvort enn sé þörf lagabreytinga vegna gjaldeyrishaftanna og hvort breyta þurfi áætlun um afnám þeirra,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í DV 19. nóvember 2012.

16. nóv. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Málstefna Stjórnarráðs Íslands

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, á degi íslenskrar tungu, málstefnu fyrir Stjórnarráð Íslands.

16. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-457/2012. Úrskurður frá 15. nóvember 2012

Vísað var frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæru þar sem farið var fram á gögn er vörðuðu skipun í embætti skólameistara en kærandi var meðal umsækjenda um stöðuna. Um rétt hennar til aðgangs að umbeðnum upplýsingum fór því eftir ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 1. málslið 2. mgr. 2. gr. upplýsingalaga segir að þau gildi ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993

15. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-456/2012. Úrskurður frá 15. nóvember 2012

Fallist var á að Vestmannaeyjabæ bæri að afhenda kæranda afrit tveggja samninga, án útstrikana, sem gerðir höfðu verið við tiltekið einkahlutafélag um sorphirðu. Ekki talið að samningarnir hefðu að geyma upplýsingar sem féllu undir undantekningarákvæði 5. gr. upplýsingalaga.

15. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-455/2012. Úrskurður frá 15. nóvember 2012

Vísað var frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæru vegna synjunar ÁTVR á beiðni um upplýsingar um heildarsölu stofnunarinnar samkvæmt reglum sem byggja á lögum nr. 96/1995 um gjald af áfengi og tóbaki, sbr. 3. tölul. 6. gr. laganna, sundurliðað eftir árum á tímabilinu 2005 til 2012 og sölu ÁTVR á áðurnefndu tímabili til hvers og eins þeirra aðila sem heyri undir fyrrgreinda reglu. ÁTVR talið falla undir gildissvið upplýsingalaga skv. 1.m gr. 1. gr. laganna. Í beiðni kæranda fólst að óskað var eftir upplýsingum í ótilteknum fjölda mála og samræmdist það ekki tilgreiningarreglu upplýsingalaga, sbr. 1. mgr. 3. gr., sbr. 10. gr. upplýsingalaga. Þær upplýsingar sem óskað var eftir lágu jafnframt ekki fyrir hjá stofnuninni og varð henni ekki gert að útbúa þær í ríkara mæli en leiðir af 7. gr.…

15. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-454/2012. Úrskurður frá 15. nóvember 2012

Vísað var frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæru einkahlutafélags vegna synjunar beiðni um aðgang að upplýsingum um samskipti Portusar ehf. og tiltekin félags um kaup á flyglum fyrir Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús. Portus ehf. er einkaréttarlegt félag og fellur þar af leiðandi ekki undir gildissvið upplýsingalaga nr. 50/1996. Þá lá ekki fyrir að félaginu hafi verið falið að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. upplýsingalaga, sbr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi gat jafnframt ekki byggt sjálfstæðan rétt til aðgangs að gögnum á ákvæðum upplýsingalaga um endurnot opinberra upplýsinga.

15. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-453/2012. Úrskurður frá 15. nóvember 2012

Staðfest var sú ákvörðun utanríkisráðuneytisins að synja kæranda um aðgang að bls. 27-31 í viðauka C við samnings Og fjarskipta ehf. (Vodafone) við varnarmálastofnun, dags. 1. febrúar 2010. Fallist á að að stærstur upplýsinganna sem fram kæmu í umbeðnum gögnum gætu varðað mikilvæga samkeppnishagsmuni fyrirtækisins.

14. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Tíu milljarðar í atvinnusköpun

„Þetta er fagnaðarefni og sýnir að ríkisstjórninni hefur enn eina ferðina tekist ætlunarverk sitt, nú í þágu uppbyggingar í atvinnulífinu. Áður hafði verið tryggt fjármagn til samgöngubóta, meðal annars gerðar Norðfjarðarganga, en verkið verður boðið út eftir áramótin. Viðbótarfjármagnið nemur 2,5 milljörðum króna. Þetta eru verkefni sem um munar en markmiðið er aukin fjárfesting og fjölgun starfa,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í grein í DV 14. nóvember 2012.

13. nóv. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Vítamínsprauta fyrir atvinnulífið

„Nú er ljóst að á fjárlögum verða tryggðir liðlega sex milljarðar króna til framkvæmda og verkefna innan fjárfestingaráætlunarinnar og var það kynnt sérstaklega á blaðamannafundi í síðustu viku. Áður var búið að tryggja 4,2 milljarða króna með sérstöku veiðigjaldi. Samtals verður því 10,3 milljörðum króna varið á næsta ári til fjárfestinga samkvæmt áætluninni í heild,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra m.a. í grein í Fréttablaðinu 13. nóvember 2012.

13. nóv. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Ný skýrsla starfshóps um samþættingu menntunar og atvinnu

Starfshópur um samþættingu mennta- og atvinnumála, sem settur var á laggirnar á grundvelli þingsályktunar um sama efni í júní 2011, hefur skilað skýrslu með tillögum sínum til forsætisráðherra. Tillögurnar snerta skilvirkni menntastefnunnar, aukið vægi verk- og tæknináms í íslensku menntakerfi, samstarf atvinnulífs og skóla og samráð um þróun menntunar.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Trúverðugleiki Alþingis í húfi

„Um hálft ár er til alþingiskosninga og það er skylda okkar alþingismanna að standa þannig að málum að í þeim kosningum geti þjóðin kveðið upp sinn endanlega dóm um nýja fullbúna stjórnarskrá sem sitjandi þing hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Um þetta verkefni eigum við að sameinast hvar í flokki sem við stöndum,“ segir í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í DV 24. október 2012.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Nú verða verkin að tala

„Í dag verður nýsamþykkt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar gegn launamun kynja kynnt opinberlega og við sama tækifæri verður undirrituð viljayfirlýsing með heildarsamtökum aðila vinnumarkaðarins um samvinnu við stjórnvöld um að stórefla baráttuna fyrir launajafnrétti kynja, í samræmi við aðgerðaáætlunina,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu 24. október 2012.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra við úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði

„Þessi hugsun kemur fram í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var á dögunum og inniheldur 17 aðgerðir sem öllum er beint gegn launamuni kynjanna.
Til að ýta henni duglega úr vör ákvað ríkisstjórnin að flýta gerð jafnlaunaúttekta í öllum ráðuneytum. Í einhverjum tilvikum hefur komið í ljós ástæða til að leiðrétta laun í kjölfarið, ekki aðeins til að eyða launamun milli kynja heldur einnig milli starfsmanna almennt. Í slíkar leiðréttingar verður nú þegar ráðist og kynbundnum launamun innan allra ráðuneyta eytt,“ segir m.a. í ávarpi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á málþinginu Þekking í þágu jafnréttis, 24. október 2012.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-452/2012. Úrskurður frá 24. október 2012

Meginhluta kæru málsins vísað frá þar sem gögn þau sem beðið hafði verið um höfðu verið afhent, að undanskilinni tiltekinni fundargerð sem bar að afhenda kæranda.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-451/2012. Úrskurður frá 24. október 2012.

Vísað var frá kæru sveitarstjórnarfulltrúa í Skagafirði, vegna afgreiðslu bæjarins á beiðni um gögn, sem framsend hafði verið frá innanríkisráðuneytinu til nefndarinnar. Ákvæði sveitarstjórnarlaga veita sveitarstjórnarmönnum rýmri rétt til aðgangs að upplýsingum en upplýsingalög nr. 50/1996 auk þess sem kæran var jafnframt til meðferðar hjá innanríkisráðuneytinu.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-450/2012. Úrskurður frá 24. október 2012.

Staðfest var synjun Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni kæranda um aðgang að gögnum er vörðuðu þá ákvörðun Ríkisútvarpsins að kaupa ekki tiltekna kvikmynd af kæranda. Fyrirliggjandi gögn voru aðeins undirbúningsgögn en geymdu ekki ákvörðun eða mikilvægar staðreyndir málsins og töldust því falla undir 3. tölul. 4. gr. upplýsingalaga um vinnuskjöl. Afhenda bar kæranda lista yfir gögn málsins. Þá var vísað frá beiðni kæranda um dagbókarfærslur í sambærilegum málum, enda fólst í henni beiðni um aðgang að gögnum í ótilgreindum málum.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-449/2012. Úrskurður frá 24. október 2012.

Staðfest var synjun Hafnarfjarðarbæjar á því að veita kæranda aðgang að vitnisburðum 15 fyrrverandi samstarfsmanna, hennar sem veittir voru í tengslum við gerð úttektar á samskiptum kæranda við aðra starfsmenn tiltekins leikskóla og grunnskóla í Hafnarfirði. Hagsmunir þeirra einstöku starfsmanna sem gáfu skýrslurnar taldir vega þyngra en hagsmunir kæranda af aðgangi.

24. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-448/2012. Úrskurður frá 24. október 2012.

Vísað var frá kæru bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ, vegna afgreiðslu bæjarins á beiðni um gögn, sem framsend hafði verið frá innanríkisráðuneytinu til nefndarinnar. Ákvæði sveitarstjórnarlaga veita sveitarstjórnarmönnum rýmri rétt til aðgangs að upplýsingum en upplýsingalög nr. 50/1996 auk þess sem kæran var jafnframt til meðferðar hjá innanríkisráðuneytinu.

18. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ræða forsætisráðherra í sérstökum umræðum á Alþingi um stjórnarskrármál

Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í sérstökum umræðum á Alþingi um stjórnarskrármál 18. október 2012.

10. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á BSRB þingi í október 2012

„Gildi jöfnuðar, mannúðar og samfélagslegrar ábyrgðar hefur sjaldan verið mikilvægara en nú, þegar íslenskt samfélag vex og dafnar á ný. Í þetta sinn verðum við að tryggja að lífskjarasóknin nýtist samfélaginu öllu,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, m.a. í ávarpi sínu á þingi BSRB 10. október 2012.

09. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Varanlega bætt búsetuskilyrði

„En margt hefur einnig gerst síðan þá. Hækkun veiðigjalds hefur verið lögfest. Í krafti tekna m.a. af veiðigjaldinu  hefur ríkisstjórnin sett fram fjárfestingaráætlun sem gerir ráð fyrir því að gerð Dýrafjarðarganga verði flýtt. Nú er áætlað að forval vegna framkvæmda við 5,6 kílómetra löng göngin fari fram árið 2015 og framkvæmdir hefjist í kjölfarið,“ segir m.a. í grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í 1. tbl. 1. árg. Vestfjarða 5. október sl.

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-447/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Kærð var synjun Seðlabanka Íslands á beiðni kæranda um það hverjir hefðu fengið tilkynningu á svokallaðri RSS-efnisveitu bankans um húsleit Seðlabankans í húsakynnum kæranda sem og synjun á afhendingu lista yfir þá sem fengið höfðu fréttina senda með tölvupósti frá bankanum. Úrskurðarnefndin taldi ekki unnt að afhenda gögn um fyrri lið beiðni kæranda. Í síðari lið beiðni kæranda fólst beiðni um aðgang að skrá. Á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga er ekki unnt að kæra synjun um aðgang að gögnum sem liggja ekki fyrir hjá stjórnvaldi. Synjun um aðgang að skrá er jafnframt ekki kæranleg skv. 14. gr. upplýsingalaga. Málinu var því vísað frá

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-446/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Kæru sem beint var að Embætti landlæknis og velferðarráðuneytinu vísað frá úrskurðarnefndinni. Embætti landlæknis hafði aldrei borist beiðni um aðgang að því bréfi sem kæra málsins varðaði. Þá hafði velferðarráðuneytið afhent kæranda umbeðið gagn eftir að kæra barst úrskurðarnefndinni. Synjun stjórnvalds á aðgangi að gögnum var því ekki fyrir hendi.

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-445/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Staðfest synjun utanríkisráðuneytisins á beiðni um aðgang að skjali þar sem fram komu upplýsingar um heildargreiðslu til starfsmanns ráðuneytisins vegna tjóns sem hann og eiginkona hans urðu fyrir þegar búslóð þeirra var flutt til Bandaríkjanna vegna starfa hans fyrir ráðuneytið. Upplýsingarnar taldar varða einkahagsmuni og fjárhagsmálefni sem sanngjarnt væri að leynt færi sbr. 5. gr. upplýsingalaga.

04. okt. 2012Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

A-444/2012. Úrskurður frá 4. október 2012.

Kærð var sú ákvörðun fjármálaráðuneytisins að synja kæranda um aðgang að gögnum er vörðuðu málefni Ríkisútvarpsins, m.a. um hvernig Ríkisútvarpið uppfyllti skyldur sínar í almannaþjónustu að því er varðar dreifingu sjónvarps og hljóðvarps, og væri í vörslum ráðuneytisins. Talið að meiri hluti þeirra gagna sem synjað var um aðgang að vörðuðu upplýsingar sem með beinum hætti lytu að samskiptum fjölþjóðastofnunar, þ.e. Eftirlitsstofnun EFTA, við íslensk stjórnvöld, sbr. 2. tölul. 6. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Synjun fjármálaráðuneytisins var því staðfest að því er varðaði umbeðin gögn að undanskildum tveimur skjölum, en efni þeirra hafði þegar verið birt opinberlega á vefsíðu Stjórnarráðsins.

21. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Berjum ekki höfðinu við steininn

„Það er ánægjulegt að fylgjast með því hversu verkalýðssinnaðir sjálfstæðismenn eru orðnir þegar þeir mega vera að því að líta upp úr frjálshyggjufræðum sínum. En það er einhvern veginn eins og eitt horn rekist sífellt á annað í málflutningi þeirra. Í nafni atvinnurekenda krefjast þeir fjárfestinga og framkvæmda fyrir almannafé sem er mjög af skornum skammti og yrði enn minna ef heitstrengingar þeirra um að afnema veiðigjald og lækka skatta eignafólks og fyrirtækja yrðu að veruleika,“ segir í upphafi greinar Jóhönnu Sigurðardóttur í Fréttablaðinu 21. september 2012.

17. sep. 2012Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

Auðlindastefnunefnd lýkur störfum

Nefnd forsætisráðherra um stefnumörkun í auðlindamálum ríkisins var sett á fót samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar í maí 2011. Skýrsla nefndarinnar liggur nú fyrir og hefur verið tekin til umfjöllunar í ríkisstjórn.

13. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Einstakt tækifæri kjósenda

Grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu og á visir.is 13. september 2012. Í greininni fjallar forsætisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs.

12. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stefnuræða forsætisráðherra á 141. löggjafarþingi 2012 – 2013 12. september 2012

Sú leið sem Alþingi varðaði vorið 2010 var afar metnaðarfull. Hún var síðast en ekki síst lýðræðisleg og Alþingi Íslendinga til mikils sóma. Með ákvörðun sinni sýndi Alþingi því skilning að heildstæð endurskoðun stjórnarskrárinnar er stærra mál en svo að það verði alfarið til lykta leitt innan veggja Alþingis, heldur þurfi jafnframt að tryggja ríka aðkoma almennings að endurskoðunarferlinu öllu.

11. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Norðfjarðargöng og sóknarfæri Austurlands

„Á grundvelli fjárfestingaráætlunar ríkisstjórnarinnar 2013 - 2015 og samgönguáætlunar er undirbúningur jarðganga milli Norðfjarðar og Eskifjarðar hafinn. Áætlað er að verkið verði boðið út öðru hvoru megin við áramótin og að framkvæmdir hefjist á miðju næsta ári. Það verður sannarlega áhrifarík aðgerð til þess að gera Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað í raun að einu samfelldu atvinnusvæði,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, sem birtist í 1. tbl. Austurlands 6. september sl.

10. sep. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Ávarp forsætisráðherra á athöfn hjá Íþróttasambandi fatlaðra

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ávarpaði Ólympíufaranna hjá Íþróttasambandi fatlaðra er þeir komu heim af Ólympíuleikunum í dag, mánudaginn 10. september 2012.

31. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Stjórnarráð í þjónustu almennings

„Tilgangurinn með breyttu vinnulagi innan Stjórnarráðsins er að auka sveigjanleika og fagmennsku og tryggja faglega og hlutlausa stjórnsýslu sem borgararnir geta treyst. Okkur er mikið í mun að jafnræði ríki við afgreiðslu mála og að geðþótti ráði ekki för heldur fagmennska og skilvirkni. Stór liður í þessum breytingum fólst í endurskipulagningu og stækkun ráðuneytanna sem nú er lokið,“ segir m.a. í grein Jóhönnu Sigurðardóttur sem birtist í Fréttatímanum 31.ágúst sl.

30. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Meirihluti telur Ísland á réttri leið

„Hægrimönnum er í mun að láta aukna skatta á hina tekjuhæstu líta út sem almenna vaxandi skattpíningu. Það er auðvitað fjarstæða. Reyndin er auk þess sú, að eftir því sem úr ójöfnuði dregur batnar líðan fólks og ekki aðeins það, því bætt lýðheilsa og minni tíðni glæpa virðist einnig haldast í hendur við minnkandi ójöfnuð,“ segir í grein Jóhönnu Sigurðardóttur sem birtist i Fréttablaðinu 30. ágúst sl.

30. ágú. 2012Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

Tækifærin blasa við

„Að tryggja gerð Vaðlaheiðarganganna reyndi á þolrif fjárveitingarvaldsins og olli pólitískum deilum, rétt eins og gerð Héðinsfjarðarganganna. En þegar upp er staðið geta allir verið þess fullvissir að Vaðlaheiðargöng verða til góðs. Norðlendingar eignast eitt stórt atvinnusvæði sem teygir sig frá Eyjafirði austur fyrir Húsavík og í Mývatnssveit. Það er eftirsóknarvert og eykur stöðugleika,“ segir í grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem birtist 30. ágúst 2012 í Akureyri - Vikublað.

• First
• Prev
• 59
• 60
• 61
• 62
• 63
• Next
• Last
Logo
• Um vefinn
• Áskrift
• Veftré
• Fyrirvari
+354 545 8000
Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
Hafa samband

Hafa samband