Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Alþjóðamál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 590
    Raða eftir:
    11. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra ávarpaði málþing lýðræðisafla Belarús

    Staða Belarús var umræðuefni á málsþingi sem haldið var á vegum skrifstofu Sviatlönu Tsikhanouskayu í Vilníus í morgun. Þórdis Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra var meðal frummælenda á fundinum ásamt Tsikhanouskayu, João Cravinho utanríkisráðherra Portúgals, Mantas Adomėnas aðstoðarutanríkisráðherra Litáens og Lauri Tierala ráðherraritara í utanríkisráðuneyti Finnlands.

    11. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Tvö fyrirtæki fá styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins

    Íslensku fyrirtækin Verkís og Fisheries Technologies hlutu á dögunum styrki til verkefna á sviði þróunarsamvinnu úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins. Heildarframlag styrkja úr sjóðnum voru að þessu sinni tæplega 24 milljónir króna á móti framlagi fyrirtækjanna.

    05. júl. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland kaupir búnað til sprengjuleitar fyrir Úkraínu

    Ísland, ásamt Norðurlöndunum og Litáen, tekur þátt í leiða þjálfunarverkefni í sprengjuleit og eyðingu sem hófst í mars síðastliðnum. Í tengslum við verkefnið hefur verið ákveðið að Ísland leggi til grunnbúnað fyrir þátttakendur að andvirði um 50 milljóna króna og nýtist við þjálfunina. Búnaðurinn verður fluttur til Úkraínu að loknu hverju námskeiði. Þar verður hann notaður við leit að jarðsprengjum og eyðingu.

    30. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Almannatryggingar og lífeyrir, Utanríkismál, Alþjóðamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Samningur um réttindi á sviði almannatrygginga undirritaður við Bretland

    Ísland, Liechtenstein og Noregur skrifuðu í dag undir samning við Bretland um samræmingu almannatrygginga. Samningurinn er gerður þar sem reglur EES-samningsins gilda ekki lengur um Bretland og kveður á um framtíðarfyrirkomulag hvað varðar réttindi á sviði almannatrygginga, aðallega lífeyrisréttindi og sjúkratryggingar þeirra sem fara eða flytjast milli landanna.

    30. jún. 2023Utanríkismál, Alþjóðamál, Netöryggi, Utanríkisráðuneytið

    Ísland gerist aðili að Freedom Online Coalition

    Ísland gerðist nýlega aðili að ríkjahóp um vernd mannréttinda á netinu, eða Freedom Online Coalition. Ísland varð 37. landið til þess að gerast aðili, en meðal aðildarríkja eru mörg nánustu samstarfsríki Íslands líkt og Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Bandaríkin, Bretland, Kanada og Holland. Samtökin hafa það að meginmarkmiði að efla virðingu fyrir mannréttindum á netinu og leggja þau áherslu á að netfrelsi og mannréttindi á netinu komist á dagskrá í alþjóðlegri stefnumótun.

    28. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Utanríkismál

    Vinnustofa um öryggi neðansjávarinnviða haldin á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

    Um 70 sérfræðingar frá þátttökuríkjum sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) og öðrum samstarfsríkjum komu saman á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í vikunni til að taka þátt í vinnustofu um öryggi þjóðhagslega mikilvægra neðansjávarinnviða.

    27. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Fríverslunarsamningur við Moldóvu undirritaður á ráðherrafundi EFTA

    Ráðherrar EFTA-ríkjanna og efnahagsmálaráðherra Moldóvu, Dumitru Alaiba, undirrituðu í dag nýjan fríverslunarsamning að viðstöddum forsætisráðherra Moldóvu, Dorian Recean. Undirritunin fór fram á ráðherrafundi EFTA sem haldinn var í Schaan í Liechtenstein í dag. EFTA-ráðherrarnir áttu jafnframt fjarfund með efnahagsmálaráðherra Úkraínu, Yliia Svyrydenko, þar sem viðræðum um uppfærslu á fríverslunarsamningi EFTA við Úkraínu var ýtt úr vör.

    23. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Tvíhliða samstarf og viðskipti efst á baugi í heimsókn ráðherra til Grænlands

    Tvíhliða samstarf Íslands og Grænlands, bæði pólitískt og efnahagslegt, var í brennidepli í heimsókn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra til Grænlands í vikunni.

    22. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Hannes Heimisson afhendir forseta Úkraínu trúnaðarbréf

    Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Varsjá, afhenti í gær Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Athöfnin fór fram við kirkju heilgrar Soffíu í Kænugarði. Að lokinni athöfn átti sendiherrann tvíhliða fund með forsetanum.

    21. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Norrænt varnarsamstarf styrkist

    Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna ræddu þróun öryggismála, árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, aukið samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum og málefni Atlantshafsbandalagsins á tveggja daga fundi sínum á Íslandi. Svíþjóð fer með formennsku í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) en Ísland hélt ráðherrafund samstarfsins í Reykjavík og á öryggissvæðinu í Keflavík.

    20. jún. 2023Alþjóðamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Alþjóðlegt átak um aukna þátttöku fatlaðra í íþróttum

    Ísland er meðal stofnríkja Global Leadership Coalition for Inclusion sem ætlað er að auka þátttöku fatlaðra í íþróttastarfi. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tók þátt í stofnfundi átaksins á heimsleikum fatlaðra í Berlín sem standa yfir um þessar mundir.

    19. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Afríka, Flóttafólk, UNHCR, Utanríkismál

    Aukin framlög til UNHCR vegna átakanna í Súdan

    Alvarleg staða mannúðarmála vegna átakanna í Súdan var meginefni framlagaráðstefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í Genf í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnuna um fjarfundabúnað og tilkynnti um fimmtíu milljón króna viðbótarframlag Íslands til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) sem leiðir viðbrögð Sameinuðu þjóðanna á svæðinu.

    06. jún. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, DAC, OECD, Utanríkismál

    Niðurstöður úr jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands kynntar

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands hefur verið birt. Carsten Staur, formaður nefndarinnar kynnti helstu niðurstöður skýrslunnar og fór yfir styrkleika og áskoranir í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands á kynningarfundi á mánudag. Hann benti á að niðurstöður rýninnar væru jákvæðar og að Ísland hafi sýnt í verki hvernig lítið framlagsríki getur náð umtalsverðum árangri með skýrri og einbeittri nálgun.

    22. maí 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Utanríkismál

    Formennsku Íslands í Evrópuráðinu lokið

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík markaði lok hálfs árs formennsku Íslands í ráðinu. Lettland hefur nú tekið við formennskukeflinu.

    03. maí 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Alþjóðamál, Sjávarútvegur

    Matvælaráðherra fundaði með sjávarútvegsráðherra Noregs

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra átti nýverið tvíhliða fund með Björnar Skjæran sjávarútvegsráðherra Noregs.

    27. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Evrópuráðið, Úkraína, Fastanefnd Íslands hjá S.þ., Alþjóðamál

    Áyktun um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins samþykkt

    Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær ályktun um samstarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins með 122 atkvæðum. Ísland og Írland leiddu samningaviðræðurnar um ályktunardrögin sameiginlega en Ísland tók við formennsku í Evrópuráðinu af Írlandi í nóvember síðastliðnum.

    19. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið

    Upplýsingar um götulokanir vegna leiðtogafundar

    Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu dagana 16. og 17. maí næstkomandi. Um 40 leiðtogar hafa boðað komu sína og ljóst að umfang á öryggisráðstöfunum verður mikið. Svæðið í kringum Hörpu og í Kvosinni verður lokað fyrir umferð almennra ökutækja, nema viðbragðsaðila, frá kl. 23 mánudaginn 15. maí til kl. 18 miðvikudaginn 17. maí. Mynd af lokunarsvæðinu má finna hér neðar í fréttinni.

    18. apr. 2023Dómsmálaráðuneytið, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Flóttafólk, Úkraína, Stafrænt Ísland

    Flóttamenn geta tilkynnt stríðsglæpi

    Sett hefur verið upp tilkynningagátt á island.is þar sem flóttafólk frá Úkraínu getur tilkynnt hugsanlega stríðsglæpi

    17. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Sameinuðu þjóðirnar, UN Women, UNICEF, Utanríkismál

    Nýir rammasamningar við landsnefndir UN Women og UNICEF og Félag Sameinuðu þjóðanna

    Utanríkisráðherra hefur undirritað rammasamninga við landsnefndir UN Women og UNICEF á Íslandi auk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Samningarnir ná til kynningar- og fræðslumála á sviði alþjóðlegar þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

    14. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Ísland styrkir sjóði Alþjóðabankans um enduruppbyggingu í Úkraínu

    Ísland hefur ákveðið að leggja Úkraínu til 700 milljónir króna í gegnum sjóði Alþjóðabankans og var greint frá þeirri ákvörðun á fundi um málefni Úkraínu sem haldinn var í tengslum við vorfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington D.C. á miðvikudag.

    11. apr. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Jákvæð niðurstaða í jafningjarýni á þróunarsamvinnu Íslands

    Jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) á alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands var tekin fyrir á fundi nefndarinnar í París fyrir helgi. Niðurstöðurnar eru afar jákvæðar fyrir Ísland en þar kemur meðal annars fram að með skýrri og einbeittri nálgun á tiltekin málefnasvið, stofnanir og samstarfslönd, hafi Ísland nýtt styrkleika sína í þróunarsamvinnu og hámarkað framlag sitt til málaflokksins þrátt fyrir smæð.

    29. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Fjölþjóðastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning við friðaruppbyggingu og sáttamiðlun á vegum Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa gert nýjan fjögurra ára samstarfssamning við skrifstofu alþjóðastjórnmála og friðaruppbyggingar hjá Sameinuðu þjóðunum, Department of Political and Peacebuilding Affairs, DPPA. Framlag Íslands verður tvöfalt hærra en fyrri samningur og framlagið nemur 20 milljónum króna á ári í takt við langtímaáætlun DPPA, sem gildir næstu fjögur árin, 2023-2026.

    28. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Norrænt samstarf, Utanríkismál

    Einarður stuðningur Norðurlandanna við Úkraínu

    Staða mála á alþjóðavettvangi var rædd á fjarfundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í gær. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum þar sem Ísland gegnir formennsku í samstarfi utanríkisráðherranna á þessu ári. Einarður stuðningur ríkjanna við Úkraínu og samskipti stórveldanna voru ofarlega á baugi ásamt formennsku Íslands í Evrópuráðinu og málefnum Balkanskaga og Miðausturlanda.

    22. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra ávarpaði ráðstefnu um þjóðaröryggi og alþjóðasamstarf

    Í krafti smæðarinnar getur Ísland lagt meira af mörkum en margir telja í alþjóðasamstarfi á sviði öryggis- og varnarmála. Þetta er á meðal þess sem kom fram í opnunarerindi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á málstofu um alþjóðasamvinnu og áskoranir samtímans á ráðstefnu þjóðaröryggisráðs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í Hörpu í dag.

    08. mar. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Utanríkismál

    Ísland eykur stuðning sinn við UN Women, UNICEF og UNFPA

    Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hækka kjarnaframlög til UN Women, UNICEF og UNFPA sem eru þrjár áherslustofnanir Íslands í þróunarsamvinnu innan Sameinuðu þjóðanna. Hækkun framlaganna er umtalsverð og er hluti af aukinni áherslu íslenskra stjórnvalda á þróunarsamvinnu.

    07. mar. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Aukin áhersla lögð á verndun og sjálfbæra nýtingu hafsvæða í íslenskri lögsögu

    Úthafsáttmáli Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu alþjóðlegra hafsvæða markar tímamót og samræmist þeim markmiðum sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér um verndun viðkvæmra hafsvæða og botnvistkerfa í landhelgi Íslands. Fulltrúi matvælaráðuneytisins tók þátt í undirbúningi og gerð sáttmálans fyrir hönd Íslands.

    28. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Tvísköttunarsamningur Íslands og Andorra

    Tvísköttunarsamningur Íslands og Andorra var undirritaður í Genf í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Maria Ubach Font utanríkisráðherra Andorra skrifuðu undir samninginn.

    24. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Rússar verði dregnir til ábyrgðar

    Í dag, 24. febrúar, er ár liðið frá því að rússnesk stjórnvöld hófu innrásarstríð sitt í Úkraínu. Alþjóðasamfélagið hefur komið saman á þessum tímamótum til að sýna úkraínsku þjóðinni stuðning í baráttu sinni.

    24. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland sendir neyðarbirgðir til Tyrklands

    Fraktflugvél á vegum íslenskra stjórnvalda flaug í nótt með 100 tonn af neyðarbirgðum til jarðskjálftasvæðanna í Tyrklandi þar sem milljónir manna eru húsnæðislausar. Þá hefur utanríkisráðherra ákveðið að veita 50 milljón króna neyðarframlagi til Sýrlands vegna ástandsins sem skapaðist þar í kjölfar skjálftanna fyrr í mánuðinum.

    20. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Málefni Úkraínu efst á baugi á öryggisráðstefnunni í München

    Utanríkisráðherra tók þátt í árlegri ráðstefnu um öryggismál sem fór fram í München í Þýskalandi um helgina. Á ráðstefnunni koma saman ríflega eitt þúsund þátttakendur, þar á meðal fjölmargir þjóðarleiðtogar, utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar ásamt fræðafólki og öðrum skoðanamótandi aðilum á sviði öryggis- og varnarmála.

    18. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Mannréttindi, Utanríkismál

    Standa með konum í Afganistan og Íran

    Frelsisskerðing kvenna og stúlkna í Afganistan var til umræðu á morgunverðarfundi kvenkyns utanríkisráðherra í dag. Fundurinn var haldinn í tengslum við Öryggisráðstefnuna í München sem fer fram um helgina og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sækir.

    08. feb. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Síerra Leóne, UNICEF, Utanríkismál

    Ísland styður við vatns- og hreinlætisverkefni í Síerra Leóne

    ​Nýju samstarfsverkefni Íslands, stjórnvalda í Síerra Leóne og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um uppbyggingu vatns- og hreinlætisaðstöðu í sjávarbyggðum landsins var formlega hleypt af stokkunum við hátíðlega athöfn í fiskiþorpinu Goderich í dag.

    06. feb. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Alþjóðamál, Menningarmál

    Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum

    Menningarsjóður Íslands of Finnlands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2023 og fyrri hluta ársins 2024. Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands.

    26. jan. 2023Alþjóðamál, Evrópuráðið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Forsætisráðherra ávarpaði þing Evrópuráðsins í Strassborg

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti í dag ávarp á þingi Evrópuráðsins í Strassborg og svaraði spurningum þingmanna. Málefni Úkraínu, formennska Íslands í Evrópuráðinu og staða mannréttinda og lýðræðis í heiminum voru meðal þess sem forsætisráðherra ræddi í ávarpinu.

    24. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkisviðskipti, Utanríkismál

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna

    Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna fór fram í utanríkisráðuneytinu í dag. Þetta er í fjórða skipti sem árlegt samráð ríkjanna á sviði efnahagsmála er haldið en það var formlega sett á fót árið 2019. Samráðið hefur reynst mikilvægur vettvangur til að taka upp mál sem varða hagsmuni Íslands og vekja athygli á hindrunum í vegi fyrirtækja og fjárfesta ásamt því að vera góður vettvangur til að skiptast á upplýsingum, skilgreina sameiginlega hagsmuni og efla enn frekar tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta- og efnahagsmála.

    19. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ráðherra kynnti áherslur Íslands í Evrópuráðinu fyrir fastafulltrúum ÖSE

    Staða Evrópu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og mikilvægi þess að Evrópuráðið og ÖSE standi vörð um lýðræðislegar stofnanir, alþjóðalög og mannréttindi voru í brennidepli í ávarpi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra á fundi fastafulltrúa Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vín í dag.

    13. jan. 2023Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Ísland veitir viðbótarframlag til mannúðaraðstoðar

    Í ljósi bágs mannúðarástands víða um heim ákvað Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra að veita 250 milljón króna viðbótarframlag til alþjóðlegrar mannúðaraðstoðar um áramótin.

    09. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, WFP, Utanríkismál

    Áratugur frá upphafi samstarfs um heimaræktaðar skólamáltíðir

    Ísland var fyrst framlagsríkja til að taka höndum saman við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, WFP, um næringaríkar heimaræktaðar skólamáltíðir fyrir grunnskólanemendur í Malaví. Fyrir réttum tíu árum var samstarfið innsiglað með hátíð í Kankhande skólanum í Mangochi héraði. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti einmitt þann skóla í dag í vinnuferð sinni í Malaví til að kynna sér verkefnið.

    09. des. 2022Dómsmálaráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Evrópusamvinna, Flóttafólk, Landamæraeftirlit, Schengen-samstarfið, Almannaöryggi

    Dómsmálaráðherra á Schengen fundi

    Ráðherrar fóru yfir innra öryggi Schengen og stöðuna á ytri landamærum á fundi Schengen-ráðsins

    09. des. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Þróunarsamvinna, Afríka, Malaví, Utanríkismál

    Tilkynnt um nýtt samstarfsverkefni í Malaví um sólarknúið rafmagn

    Sendiráð Íslands í Lilongve og EnDev, verkefnastoð þýsku þróunarsamvinnustofnunarinnar GiZ, hafa undanfarin þrjú ár staðið að verkefni í Malaví um að veita skólum og heilsugæslustöðvum aðgang að sólarknúnu rafmagni og orkusparandi eldhlóðum til að draga úr eldiviðarnotkun við eldamennsku.

    28. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Úkraína, Utanríkismál

    Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Kænugarði

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti Kænugarð í Úkraníu í dag ásamt utanríkisráðherrum frá öðrum Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum. Í heimsókninni áttu ráðherrarnir fundi með úkraínskum ráðamönnum, þar á meðal Volodomir Selenskí forseta, Denys Shmyhal forsætisráðherra, Olgu Stefanishynu aðstoðarforsætisráðherra og Dmytro Kuleba utanríkisráðherra. Á fundunum var ástandið í Úkraínu rætt og kölluðu stjórnvöld eftir áframhaldandi stuðningi.

    24. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Alþjóðamál, Fæðuöryggi, Fiskeldi, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Úkraína, Atvinnuvegir

    Engar einfaldar lausnir í boði vegna áskorana í landbúnaðarframleiðslu heimsins

    Á Matvælaþingi sem haldið var í Silfurbergi í Hörpu í gær flutti Olga Trofimtseva, fyrrum matvælaráðherra Úkraínu, erindi um framtíðarhorfur og áskoranir í matvælaframleiðslu í landbúnaði á heimsvísu.

    21. nóv. 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Alþjóðasamningar, Heimsmarkmiðin, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Matvælaráðherra fundaði með formanni Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, fundaði fyrir hönd Íslands með Hoesung Lee, formanni Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC) á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP27. Þingið er haldið í Sharm el Sheikh í Egyptalandi.

    17. nóv. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ísland og Síle leiða alþjóðlegt átak til verndar freðhvolfinu

    Á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna COP27 sem haldið er í Sharm El Sheikh í Egyptalandi, undirrituðu ráðherrar 13 ríkja yfirlýsingu til að ýta úr vör alþjóðlegu átaki sem ætlað er að vekja athygli á mikilvægi þess að vernda freðhvolfið (e. Cryosphere). Sex ríki til viðbótar hafa einnig staðfest þátttöku.

    15. nóv. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Jafnrétti, Alþjóðamál

    Bjarni með erindi um hindranir við lýðræðislega þátttöku kvenna á ráðstefnu OECD

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, heldur erindi um hindranir við lýðræðislega þátttöku kvenna á ráðstefnu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, sem fram fer í Lúxemborg 17. nóvember næstkomandi.

    11. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Jafnrétti, Utanríkismál

    Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastýru UN Women

    Samstarf Íslands og UN Women, jafnréttisáherslur Íslands í formennsku í Evrópuráðinu og staða kvenna í Íran og Afganistan voru helstu umfjöllunarefnin á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Sima Bahous, framkvæmdastýru Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) í gær. Sú síðarnefnda er stödd hér á landi til þess að taka þátt í Heimsþingi kvenleiðtoga en ráðherra ávarpaði þingið einnig í vikunni.

    11. nóv. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Úkraína, Utanríkismál

    Varnarmálaráðherrar JEF ræða öryggisáskoranir

    Varnamálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) funduðu í Edinborg dagana 9. – 10. nóvember. Ráðherrarnir ræddu öryggisástandið í Evrópu, stuðning ríkjanna við Úkraínu og hvernig þau geta í sameiningu mætt nýjum öryggisáskorunum til framtíðar.

    10. nóv. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Alþjóðamál, Atvinnuvegir

    Lilja hitti þingkonu og sendiherra Georgíu

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra átti fund með Eliso Bolkvadze þingkonu og formanni menningarnefndar georgíska þingsins og Nata Menabde sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi. Þær eru hér á landi í tengslum við heimsþing kvenleiðtoga sem nú fer fram í Hörpu þar sem um 500 kvenleiðtogar frá yfir 100 löndum taka þátt.

    09. nóv. 2022Utanríkismál, Alþjóðamál, Mannréttindi, Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu, Utanríkisráðuneytið

    Ísland tekur við formennsku í Evrópuráðinu

    Ísland tók formlega við formennsku í Evrópuráðinu af Írum á fundi ráðherraráðsins í Strassborg í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum sem nýr forseti ráðherranefndarinnar og kynnti um leið formennskuáætlun Íslands.

    28. okt. 2022Utanríkisráðuneytið, Alþjóðamál, Utanríkismál

    Íslenskir hjálparstarfsmenn til aðstoðar í Pakistan

    Tveir íslenskir hjálparstarfsmenn, Ólafur Loftsson og Orri Gunnarson, taka nú þátt í vatnshreinsiverkefni í Pakistan á vegum almannavarna Norðurlanda en kröftugar rigningar undanfarna mánuði hafa valdið þar einhverjum mestu flóðum í manna minnum. Hátt í tíu milljón manns hafa hrakist á flótta og hátt í tvö þúsund farist.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband