Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Líf og heilsa
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 351–400 af 2063
    Raða eftir:
    16. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Ræður og greinar, Líf og heilsa

    Framúrskarandi Landspítali

    16 febrúar 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Framúrskarandi Landspítali Stjórnarráðið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra Heilbrigðisráðherra skrifar: Landspítalinn er þungamiðja íslenskrar heilbrigðisþjónustu og gegnir fjölbreyttu og veigamiklu hlutverki innan kerfisins í heild sem háskólasjúkrahús landsins. Starfsemi Landspítala er í stöðugri þróun og vexti og aldrei hafa fleiri einstaklingar starfað á spítalanum og árið 2023. Undanfarin ár hafa verið viðburðarík í starfsemi Landspítala sem gengið hefur í gegnum ákveðið umbreytingarskeið í þeim tilgangi að styrkja stöðu og hlutverk spítalans fyrir heilbrigðiskerfið í heild, í takt við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar

    15. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greiðsluþátttaka vegna brottnáms brjóstapúða af læknisfræðilegum ástæðum

    Sjúkratryggingum er nú heimilt að veita greiðsluþátttöku í aðgerðum til að fjarlægja brjóstapúða sem komið hefur verið fyrir í fegrunarskyni, teljist það nauðsynlegt af læknisfræðilegum ástæðum. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð þessa efnis og tók hún gildi 1. desember síðastliðinn.

    14. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Stefna mótuð í húsnæðismálum endurhæfingarþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að móta heildstæða stefnu í húsnæðismálum endurhæfingarþjónustu. Liður í þeirri vinnu verður að skoða leiðir til að fjármagna viðhald húsnæðis þar sem endurhæfing er veitt.

    14. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný sjálfsvígsforvarnaáætlun í mótun

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að gera tillögu að uppfærðri sjálfsvígsforvarnaáætlun. Áhersla er lögð á að aðgerðir áætlunarinnar tengist gildandi stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum, auk lýðheilsustefnu og heilbrigðisstefnu.

    06. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Biðlistaátak hjá göngudeildarþjónustu BUGL skilar miklum árangri

    Með breyttu skipulagi og auknu fjármagni hefur tekist að stytta bið barna eftir göngudeildarþjónustu Barna- og unglingadeildar Landspítala (BUGL) verulega. Um nýliðin áramót hafði náðst það markmið að ekkert barn bíði eftir þjónustu lengur en 90 daga frá því að þjónustubeiðni er samþykkt og er það í samræmi við viðmið embættis landlæknis. Ákvörðun Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um að ráðstafa í þessu skyni 55 milljónum króna árlega í þrjú ár, hefur gert öflugu starfsfólki göngudeildarþjónustu BUGL kleift að umbreyta þjónustunni með þessum árangursríka hætti.

    06. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ráðstefna um samvinnu í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis 18. mars

    Heilbrigðisráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra standa saman að ráðstefnu fyrir fagfólk í framlínu heilbrigðiskerfis og lögreglu sem miðar að því að tengja betur saman þjónustu þessara aðila við þolendur heimilisofbeldis. „Á ég að gera það? Samvinna í þjónustu við þolendur heimilisofbeldis“ er yfirskrift ráðstefnunnar sem haldin verður mánudaginn 18. mars á hótel Hilton Reykjavík Nordica kl. 09.00-16.00.

    03. feb. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Auglýst eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra

    Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2024.

    01. feb. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Um 180 milljóna króna viðbótarfjármagn til hjúkrunarheimila

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auka fjármagn til hjúkrunarheimila um 181 milljón króna á þessu ári til að mæta aukinni hjúkrunarþyngd íbúa. Með þessu er mætt ákvæði bókunar sem gerð var við framlengingu samninga Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) við rekstraraðila hjúkrunarheimila í mars árið 2022. Með bókuninni er gert ráð fyrir að sýni mælingar á hjúkrunarþyngd (RUG stuðull) þörf fyrir aukið fjármagn komi SÍ þeim upplýsingum á framfæri við heilbrigðisráðherra sem geti þá brugðist við með viðbótarframlagi til rekstrarins. ​

    31. jan. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umframdauðsföll hlutfallslega næstfæst á Íslandi

    Nýleg skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) bendir til þess að sóttvarnaaðgerðir á Íslandi á tímum heimsfaraldurs Covid-19 hafi verið árangursríkar. Niðurstaðan leiðir í ljós að af OECD-ríkjunum voru dauðsföll á Íslandi á Covid-19 tímanum færri en búast hefði mátt við miðað við fólksfjölgun og aldurssamsetningu þjóðarinnar. Aðeins á Nýja-Sjálandi var hlutfall umframdauðsfalla lægra.

    18. jan. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum í mótun

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað samráðshóp til að vinna áætlun um aðgerðir í krabbameinsmálum til fimm ára. Niðurstöður hópsins eiga að liggja fyrir í lok apríl og hyggst ráðherra leggja slíka aðgerðaáætlun fyrir Alþingi sem tillögu til þingsályktunar haustið 2024.

    11. jan. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Líf og heilsa, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    janúar 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Fjármála- og efnahagsráðuneytið Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    11. jan. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Líf og heilsa, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    janúar 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Fjármála- og efnahagsráðuneytið Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila Breytt fyrirkomulag fasteigna vegna hjúkrunarheimila

    04. jan. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tilraunaverkefni um innleiðingu rafrænna fylgiseðla framlengt

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að framlengja um eitt ár tilraunaverkefni um innleiðingu rafrænna fylgiseðla með lyfjum í stað pappírsseðla. Verkefnið einskorðast við H-merkt lyf sem notuð eru á sjúkrahúsum. Markmið þess er að meta hvort rafrænir fylgiseðlar tryggi örugga lyfjameðferð sjúklings á fullnægjandi hátt. Liður í verkefninu er einnig að kanna hvort notkun þeirra leiði til þess að H-merktum lyfjum á markaði fjölgi. Að óbreyttu hefði tilraunaverkefninu lokið 1. mars 2024 en það hefur nú verið framlengt til 1. mars 2025.

    22. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    30 milljónir til verkefna gegn fíknisjúkdómum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 30 milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum og þá einkum ópíóíðafíkn. Sex verkefni hlutu styrk. Hæsti styrkurinn, átta milljónir króna, rennur til verkefnis Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Í því felst að koma á fót færanlegu úrræði til að veita fólki sem reykir ópíóíða eða örvandi vímuefni nærþjónustu á forsendum þess með skaðaminnkun að leiðarljósi.

    22. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Nefnd skipuð um stöðu ADHD á landinu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd til að fjalla um þjónustu og stuðning við einstaklinga með ADHD (athyglisbrest með eða án ofvirkni). Markmið vinnunnar er m.a. að greina stöðu þessara mála hér á landi, lýsa samvinnu helstu kerfa sem snertir fólk með ADHD og þeim áskorunum og tækifærum sem þar leynast. Hópnum er falið að skrifa grænbók um málaflokkinn.

    20. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukin greiðsluþátttaka við ferðakostnað vegna heilbrigðisþjónustu innanlands

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur með breytingu á reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands aukið rétt þeirra til endurgreiðslu ferðakostnaðar. Hingað til hafa sjúkratryggingar tekið þátt í kostnaði við tvær ferðir á ári en með breytingunni fjölgar þeim í þrjár. Þetta á við um nauðsynlegar ferðir þar sem eru 20 km. eða lengra milli staða og þjónustan er ekki fyrir hendi í heimabyggð.

    19. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Guðlaug Rakel skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til fimm ára, frá 1. mars 2024. Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra mat Guðlaugu Rakel mjög vel hæfa til að gegna embættinu.

    19. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvarp um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana orðið að lögum

    Alþingi hefur samþykkt frumvarp Willums Þórs Þórssonar um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn alvarlegra atvika. Markmiðið er að auka öryggi sjúklinga, efla öryggismenningu innan heilbrigðiskerfisins og fækka alvarlegum atvikum. Einnig að bæta starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna með því að skýra og auka réttaröryggi þeirra.

    19. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Lúðvík Þorgeirsson skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Lúðvík Þorgeirsson í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða til næstu fimm ára, frá 1. mars 2024. Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Lúðvík hæfastan umsækjenda til að gegna embættinu.

    18. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur um almenna líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að vinna að framgangi líknarmeðferðar á hjúkrunarheimili og setja viðmið um þjónustuna. Vinna hópsins verður byggð á aðgerðaáætlun um líknarmeðerð til ársins 2025 sem kveður á um að líknarmeðferð skuli vera í boði fyrir allt heimilisfólk hjúkrunarheimila sem þarf á henni að halda.

    12. des. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2026

    desember 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2026 Staða framkvæmdaáætlunar um byggingu hjúkrunarrýma og framhald til ársins 2026

    12. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ákvörðun heilbrigðisráðuneytis vegna starfsemi Intuens Segulómunar ehf.

    Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að ekki séu forsendur til að stöðva rekstur Intuens Segulómunar í ljósi þess að fyrirtækið gerði grundvallarbreytingar á starfsemi sinni í framhaldi af samskiptum sínum við ráðuneytið og embætti landlæknis. Embætti landlæknis fór þess á leit við ráðuneytið að starfsemin yrði stöðvuð í ljósi þess að fyrirtækið brást ekki við ítrekuðum erindum og tilmælum landlæknis.

    12. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið um uppsteypu rannsóknahúss - stór áfangi í heildaruppbyggingu Landspítala

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar ehf. undirrituðu fyrir helgi samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á rannsóknahúsinu. Auk þess vottuðu samninginn Svava María Atladóttir framkvæmdastjóri Þróunar hjá Landspítala og Sólrún Lovísa Sveinsdóttir verkefnastjóri rannsóknahúss hjá NLSH. Willum segir þetta vera stóran áfanga í heildaruppbyggingu Landspítala.

    11. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Undirritun saminga um öfluga sjúkrahúsþjónustu í dreifbýli

    Samningur sem hefur að markmiði að tryggja nauðsynlega mönnun sérhæfðs starfsfólks sjúkrahúsanna í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða og Austurlands var undirritaður í heilbrigðisráðuneytinu fyrir helgi og staðfestur af heilbrigðisráðherra. Samningurinn er afrakstur af vinnu starfshóps sem ráðherra skipaði um öfluga sjúkrahúsþjónustu í dreifbýli. Samningsaðilar eru heilbrigðisstofnanirnar í þessum umdæmum, Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítali. Enn fremur voru undirritaðir samstarfssamningar milli heilbrigðisstofnananna tveggja og Landspítala um sérnám í læknisfræði.

    11. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Geðráð tekið til starfa

    Fulltrúar í nýstofnuðu Geðráði héldu annan fund sinn í liðinni viku. Ráðið er skipað af heilbrigðisráðherra í samræmi við aðgerðaáætlun um framkvæmd geðheilbrigðisáætlunar til ársins 2027. Með stofnun þess hefur verið tryggð aðkoma helstu haghafa að stefnumótun, umbótum og þróun á sviði geðheilbrigðismála og geðheilbrigðisþjónustu. Á fundinum var unnið að setningu starfsreglna ráðsins sem síðan verða bornar undir ráðherra til staðfestingar.

    06. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Eflir heilbrigðisþjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita 90 milljónir króna til að fjölga stöðugildum sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu sem aðstoða þolendur kynbundins ofbeldis. Ákvörðunin er hluti af innleiðingu verklags um allt land fyrir þolendur kynbundins ofbeldis (heimilisofbeldis og kynferðisofbeldis). Verklaginu er ætlað að samræma og bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins við þennan hóp.

    05. des. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Bætt réttindi foreldra vegna fósturmissis snemma á meðgöngu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur tryggt að foreldrar sem verða fyrir fósturmissi á öðrum þriðjungi meðgöngu eigi kost á heimavitjun frá ljósmóður. Ákvæði þess efnis hefur verið bætt inn í rammasamning Sjúkratrygginga Íslands um þjónustu ljósmæðra vegna fæðinga og umönnunar sængurkvenna í heimahúsum.

    04. des. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Viðmið um stærð og skipulag heilsugæslustöðva - 2. útgáfa

    desember 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Viðmið um stærð og skipulag heilsugæslustöðva - 2. útgáfa Viðmið um stærð og skipulag heilsugæslustöðva - 2

    30. nóv. 2023Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Starfslok Sigurðar M. Magnússonar forstjóra Geislavarna

    Sigurður M. Magnússon forstjóri Geislavarna til 38 ára lætur af störfum í dag, 30. nóvember. Nýr forstjóri stofnunarinnar er Elísabet Dolinda Ólafsdóttir. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kvaddi Sigurð með blómvendi og kökuboði við þessi tímamót þar sem Sigurður rifjaði upp farinn veg í viðburðaríku starfi sem spannar meira en fjóra áratugi.

    27. nóv. 2023Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samræmd heilbrigðisþjónusta við börn sem þolendur kynferðisofbeldis - skýrsla starfshóps

    nóvember 2023 / Heilbrigðisráðuneytið Samræmd heilbrigðisþjónusta við börn sem þolendur kynferðisofbeldis - skýrsla starfshóps Samræmd heilbrigðisþjónusta við börn sem þolendur kynferðisofbeldis - skýrsla starfshóps

    23. nóv. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Norrænt samstarf, Líf og heilsa

    Svipmyndir frá heilbrigðisþingi

    Hátt í 400 manns sóttu heilbrigðisþing sem fram fór í Hörpu í liðinni viku og fjölmargir fylgdust með þinginu í beinu streymi. Þetta er sjötta árið í röð sem heilbrigðisráðherra efnir til heilbrigðisþings þar sem áhersla er lögð á að fjalla um mikilvæg málefni sem varða heilbrigðisþjónustu við landsmenn í nútíð og framtíð. Að þessu sinni var sjónum beint að þeim tækifærum sem felast í nýtingu margvíslegra heilbrigðisgagna, stafrænnar þjónustu og gervigreindar.

    14. nóv. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisþing 2023 í streymi

    Heilbrigðisþing 2023 fer frammi í Hörpu í dag. Hægt er að fylgjast með í beinu streymi á vefsíðu þingsins.

    13. nóv. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Glæsileg aðstaða á nýju hjúkrunarheimili í Stykkishólmi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fagnaði langþráðum áfanga með heimamönnum þegar nýja hjúkrunarheimilið Systraskjól í Stykkishólmi var vígt formlega fyrir skömmu. Heimilið er til húsa í gamla St. Franciskusspítalanum en allt húsnæðið var hannað og endurgert til að mæta sem best nútímakröfum um aðstæður íbúa á hjúkrunarheimilum. Systraskjól leysir af hólmi gamla hjúkrunarheimilið við Skólastíg og er aðstaða fyrir 18 íbúa á nýja heimilinu. Tvö hjúkrunarrými verða nýtt fyrir hvíldar- og endurhæfingarinnlagnir með áherslu á stuðning við einstaklinga sem geta með góðri endurhæfingu búið lengur í sjálfstæðri búsetu.

    13. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Ljósmæður, hjúkrunarheimili og Ljósið bæta þjónustu með nýsköpun

    Úthlutanir styrkja úr Fléttunni - styrkja til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu voru kynntar á dögunum. Að þessu sinni hefur tólf íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum verið boðið að ganga til samninga en alls verður um 104 milljónum króna dreift til innleiðingar nýrrar tækni og lausna í heilbrigðiskerfinu.

    08. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Betri svefn og bætt sálfræðiþjónusta innleidd með nýsköpun

    Þrjú af tólf verkefnum sem styrkt eru af Fléttunni í ár hafa sett á fót samstarf með heilsugæslustöðvum. Verkefnin eru fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að felast í nýjum meðferðarlausnum sem stuðla að bættri þjónustu við skjólstæðinga og aukinni skilvirkni.

    03. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Þrjú nýsköpunarfyrirtæki fá áframhaldandi styrk til innleiðingar nýrra heilbrigðislausna

    Tólf íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum hefur verið boðið að ganga til samninga um styrki til innleiðingar nýrrar tækni og lausna í heilbrigðiskerfinu. Þrír styrkhafar fengu einnig styrki í fyrra og fá því áframhaldandi stuðning til innleiðingar nýrra lausna.

    01. nóv. 2023Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Líf og heilsa

    Fléttan: Landspítalinn í samstarf við fimm nýsköpunarfyrirtæki

    Úthlutanir styrkja úr Fléttunni - styrkja til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu voru kynntar á dögunum. Landspítalinn er, líkt og fyrra ár, samstarfsaðili fjölmargra styrktra verkefna en í ár hefur LSH skuldbundið sig til að vinna með fimm fjölbreyttum nýsköpunarfyrirtækjum að innleiðingu nýrrar tækni eða lausna.

    27. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Spennandi dagskrá og öflugir fyrirlesarar á heilbrigðisþingi 14. nóvember

    Heilbrigðisþing 2023 verður haldið í Hörpu þann 14 nóvember. Dagskráin er afar metnaðarfull og með norrænu og alþjóðlegu yfirbragði. Þingið fer fram á ensku og hefur yfirskriftina: „Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare.“ Á vef þingsins eru allar upplýsingar um dagskrána og fyrirlesarana og þar fer skráning þátttöku fram.

    26. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

    Auglýst er eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Í ár leggur heilbrigðisráðherra áherslu á að styrkja verkefni sem lúta að langvinnum sjúkdómum. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 27. nóvember næstkomandi.

    25. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Heimild fyrir setningu aldurstakmarks við afhendingu lyfja verði leidd í lög

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að færa inn í drög að frumvarpi um breytingu á lyfjalögum, heimild til að setja aldurstakmörk á afhendingu lyfja til einstaklinga yngri en 18 ára. Frumvarpsdrögin eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.

    25. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Auglýst eftir umsóknum um styrki úr lýðheilsusjóði

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr lýðheilsusjóði árið 2024. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember næstkomandi. Lýðheilsusjóður starfar á grundvelli laga um landlækni og lýðheilsu og er hlutverk hans að styrkja lýðheilsustarf í samræmi við markmið laganna og stuðla þannig að heilsueflingu og forvörnum.

    25. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Reglugerð um meðferðir til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs

    Birt hafa verið til umsagnar og samráðs drög að reglugerð sem takmarka heimildir til að veita tilteknar meðferðir sem gerðar eru til að breyta útliti fólks í fegrunarskyni og án læknisfræðilegs tilgangs. Með áformuðum breytingum verður áskilið að einungis tilteknum löggiltum heilbrigðisstéttum og eftir atvikum sérfræðingum innan þeirra, verði heimilt að veita þær meðferðir sem um ræðir. Markmiðið er að tryggja öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi.

    18. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Elísabet Dolinda verður nýr forstjóri Geislavarna ríkisins

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Elísabetu Dolindu Ólafsdóttur forstjóra Geislavarna ríkisins frá 1. desember næstkomandi. Ráðgefandi hæfnisnefnd mat Elísabetu Dolindu mjög vel hæfa til að gegna embættinu.

    18. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

    Tólf sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar í september síðastliðnum.

    18. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða

    Fjórir sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem auglýst var laust til umsóknar í september síðastliðnum.

    10. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Starfshópur skipaður um framtíð læknisþjónustu á Íslandi

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að kortleggja núverandi þörf fyrir læknisþjónustu og þróun hennar til framtíðar. Hópnum er ætlað að skilgreina forsendur fyrir gerð mönnunarviðmiða og mannaflaspá. Honum er líka ætlað að leggja til aðgerðir til næstu ára með mönnun, gæði og öryggi læknisþjónustu að leiðarljósi. Formaður starfshópsins er Ólafur Baldursson læknir.

    06. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný sjúkradeild og slysa- og bráðamóttaka við HSS

    Lokið er viðamiklum endurbótum við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) sem stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks stofnunarinnar. Tímamótunum var fagnað í gær þegar teknar voru í notkun ný sjúkradeild og slysa- og bráðamóttaka í D-álmu stofnunarinnar. Auk þessa er geðheilsuteymi stofnunarinnar komið í stærra og betra húsnæði við Hafnargötu 90.

    05. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að 4.400 fermetra nýbyggingu við Endurhæfingardeildar Landspítala við Grensás. Stefnt er að því að hægt verði að taka hana í notkun árið 2027.

    03. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    Tímamótasamningur um starfsendurhæfingu ungs fólks

    Undirritaður hefur verið þríhliða samningur milli Sjúkratrygginga Íslands, VIRK starfsendurhæfingarsjóðs og Janusar endurhæfingar ehf. um samþætta og þverfaglega heilbrigðis- og starfsendurhæfingarþjónustu við ungt fólk á aldrinum 18 til 30 ára með flókinn og fjölþættan vanda. Samningurinn tryggir þjónustu fyrir 80 einstaklinga sem falla undir skilgreiningu NEET, þ.e. sem eru ekki í vinnu, virkni eða námi og þurfa sérhæfða einstaklingsmiðaða þjónustu til að efla virkni og starfsgetu. Gert er ráð fyrir að árlegt fjármagn til þjónustunnar nemi um 330 milljónum króna.

    03. okt. 2023Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Börnum óháð kyni býðst nú bólusetning gegn HPV veirunni

    Börnum í 7. bekk er nú öllum boðin bólusetning gegn HPV veirunni, óháð kyni. Samhliða hefur verið tekið í notkun nýtt og breiðvirkara bóluefni en áður sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameinum af völdum veirunnar. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti áform sín þessa efnis í lok síðasta árs. Hann fól sóttvarnalækni að hefja undirbúning og nú er þessi breyting orðin að veruleika.

    • First
    • Prev
    • 6
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband