13. jan. 2022Atvinnuvegir, Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Lilja við danska ríkisútvarpið: „Vil fá fleiri handrit til Íslands“
Það er nauðsynlegt að Íslendingar fái til sín fleiri handrit frá Danmörku, hinn íslenska fjársjóð, sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, í viðtali við danska ríkisútvarpið, en þar ræddi hún um mikilvægi þess að auka veg og virðingu menningararfsins, að sýna handritin, ræða þau og rannsaka. Um 700 handrit eru í vörslu á söfnum í Danmörku, en sáttmáli var gerður um vörslu þeirra árið 1965 milli Íslands og Danmerkur.