24. sep. 2025Utanríkisráðuneytið, Utanríkismál, Alþjóðamál, Atvinnuvegaráðuneytið, Fastanefnd Íslands í Róm
Ísland og FAO undirrita nýjan samstarfssamning
Íslensk stjórnvöld og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára, sem ætlað er að efla samstarf Íslands og stofnunarinnar. Samningurinn var undirritaður miðvikudaginn 24. september í Safnahúsinu af Dr. QU Dongyu forstjóra FAO, sem er í stuttri heimsókn á Íslandi ásamt sendinefnd, og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem stödd er á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York.