Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Auðlindir
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 550
    Raða eftir:
    24. sep. 2021Auðlindir, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýting glatvarma til hitaveituvæðingar Grundarfjarðar

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest að fjarvarmaveita fyrir Grundarfjörð, sem styðst við glatvarma, uppfylli skilyrði laga um styrk sem miðast við áætlaðar 16 ára niðurgreiðslur. Er hér um tímamót að ræða m.t.t. hitaveituvæðingar á köldum svæðum. ​

    23. sep. 2021Rit og skýrslur, Atvinnuvegir, Auðlindir, Lög og réttur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Stjórn fiskveiða 2021/2022 - Lög og reglugerðir

    Í sérprentun þessari eru tekin saman helstu lög og reglugerðir sem lúta að stjórn fiskveiða á fiskveiðiárinu 2021/2022, sem falla undir málefnasvið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    21. sep. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Einföldun á regluverki í þágu smávirkjana

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð sem ætlað er að bæta rekstrarumhverfi smávirkjana. Reglugerðin er hluti af tillögum starfshóps sem ráðherra skipaði árið 2020 með það að markmiði að bæta starfsumhverfi smávirkjana, með sérstakri áherslu á gjaldtöku vegna tenginga þeirra við dreifikerfi raforku.

    21. sep. 2021Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Umhverfi og náttúruvernd, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Nýsköpun, Orka, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Norræn matargerð og framtíð í sjálfbærri matarferðaþjónustu: Ráðstefna 30. september

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið leiðir verkefnið í samstarfi við Íslenska ferðaklasann og Matís.

    15. sep. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Loftslagsmál, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Matvælasjóður, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kristján Þór úthlutar 566,6 milljónum úr Matvælasjóði

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur úthlutað 566,6 milljónum króna úr Matvælasjóði til 64 verkefna. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr Matvælasjóði, en í ár bárust 273 umsóknir um styrki.

    14. sep. 2021Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Orkustofnun eykur áherslu á loftslagsmál, orkuskipti og nýsköpun

    Í samræmi við áherslur úr Orkustefnu fyrir Ísland til 2050, og aðgerðaráætlun Orkustefnu, hefur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra staðfest nýtt skipurit fyrir Orkustofnun og áherslur stofnunarinnar.

    10. sep. 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hálfur milljarður til orkuskipta: stærsta úthlutun sögunnar til orkuskipta

    470 milljónum króna hefur verið úthlutað úr Orkusjóði til yfir 100 fjölbreyttra verkefna í orkuskiptum, og er það stærsta úthlutun sögunnar úr sjóðnum.

    08. sep. 2021Auðlindir, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún ávarpaði samráðsfund um gerð Vegvísis um rafeldsneyti og vetni

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuherra, ávarpaði í dag samráðsfund um gerð Vegvísis um rafeldsneyti og vetni. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins frá 11. júní sl. var kynnt sú ákvörðun ráðherra að láta vinna slíkan vegvísi og er vinna við hann vel á veg komin.

    03. sep. 2021Umhverfi og náttúruvernd, Utanríkismál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Auðlindir, Heimasendiherrar, Utanríkisráðuneytið

    Nýsköpun í matvælaframleiðslu efst á baugi á ráðstefnu Íslands og Singapúr

    Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði áherslu á nýsköpun til að mæta vaxandi matvælaþörf í ávarpi sínu á ráðstefnu Íslandsstofu og utanríkisráðuneytisins með stjórnendum og frumkvöðlum frá Íslandi og Singapúr.

    28. ágú. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Vegna umræðu um skýrslu um eignarhald sjávarútvegsfyrirtækja

    Í tilefni af umræðu um skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um eignarhald 20 stærstu útgferðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið árétta eftirfarandi.

    27. ágú. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór setur af stað vinnu um mótun fæðuöryggisstefnu

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur falið Landbúnaðarháskóla Íslands að móta tillögu að fæðuöryggisstefnu fyrir Ísland. Kristján Þór og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands hafa undirritað samning þess efnis.

    12. ágú. 2021Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Byggðamál, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Hönnun, Jafnrétti, Landbúnaður, Matvælasjóður, Náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Styrkveitingar haustið 2021

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    25. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór fylgir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár. Reglugerðin fylgir vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöf stofnunarinnar byggir á því að nýta stofna miðað við hámarksafrakstur að teknu tilliti til vistkerfis- og varúðarnálgunar.

    23. jún. 2021Auðlindir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skýrsla um fýsileika þess að framleiða rafeldsneyti á Íslandi

    Notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum veldur um helming af CO2 losun sem er á beinni ábyrgð Íslands. Því er mikilvægt að meta þá kosti sem við höfum og þær fjárfestingar sem þarf til að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir aðra orkugjafa í samgöngum á landi, á sjó og í lofti.

    23. jún. 2021Rit og skýrslur, Auðlindir, Loftslagsmál, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Fýsileiki þess að framleiða rafeldsneyti á Íslandi

    júní 2021 / Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Fýsileiki þess að framleiða rafeldsneyti á Íslandi Í skýrslunni er fjallað um þær forsendur sem liggja að baki framleiðslu rafeldsneytis á Íslandi, gerð grein fyrir helstu tegundum rafeldsneytis og metin fýsileiki framleiðslunnar auk valkostagreiningar fyrir mismunandi samgöngugeira. Fýsileiki þess að framleiða rafeldsneyti á Íslandi

    21. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ráðstefna 22.júní: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis: Tækifæri og áskoranir

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við.

    16. jún. 2021Auðlindir, Byggðamál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún skipar starfshóp sem skoðar orkumál og tækifæri til nýrrar atvinnusköpunar á Vestfjörðum

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að skoða stöðu orkumála á Vestfjörðum og tengsl þeirra við nýsköpun og atvinnutækifæri á svæðinu. Starfshópurinn skal skoða orkumál á Vestfjörðum heildstætt, jafnt út frá stöðu mála í flutningskerfi raforku, dreifikerfi raforku, möguleikum til orkuvinnslu á svæðinu og áherslum úr orkustefnu um orkuskipti og afhendingaröryggi raforku á landsvísu. Markmið vinnunnar er að rýna samspil framangreindra þátta og finna leiðir til að efla stöðu orkumála í þessum landshluta með hliðsjón af vaxandi tækifærum til nýrrar atvinnusköpunar, jöfnun búsetuskilyrða og styðja við orkuskipti á svæðinu.

    15. jún. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þórdís Kolbrún undirritaði viljayfirlýsingu um stofnsetningu rannsóknar, vinnslu- og afurðarmiðstöðvar þangs í Stykkishólmi

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag viljayfirlýsingu Stykkishólmsbæjar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Veitna og Acadian Seaplants um samstarf um sjálfbæra atvinnu- og innviðauppbyggingu í Stykkishólmi í tengslum við fyrirhugaða nýtingu þangs í Breiðafirði. Með viljayfirlýsingunni er stoðum rennt undir rannsóknir og vinnslu þangs í Stykkishólmi og verður unnið að því að nýta fyrirliggjandi tækifæri til atvinnu- og verðmætasköpunar á grunni sjálfbærrar nýtingar auðlinda.

    10. jún. 2021Auðlindir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ráðherra lætur vinna Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að láta vinna Vegvísi fyrir vetni og rafeldsneyti.

    09. jún. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma (1. áfangi)

    „Hér er stefnan tekin á tvö spennandi og góð verkefni sem samrýmast fullkomlega nýrri Orkustefnu fyrir Ísland: fjölnýtingu dýrmætra orkustrauma á borð við glatvarma, og hins vegar kolefnisföngun ýmist til niðurdælingar eða framleiðslu á rafeldsneyti. Þessi nýsköpunarverkefni stuðla ekki bara að markmiðum okkar Íslendinga um bætta orkunýtingu, orkuskipti og samdrátt í kolefnislosun heldur styrkja þau atvinnusvæðið á Grundartanga og þá miklu verðmætasköpun sem þar fer fram. Þetta er því gleðilegur áfangi og ég vil þakka Elkem, Veitum og CarbFix fyrir að setja stefnuna á þessi verkefni og Þróunarfelaginu fyrir að þjóna vel hagsmunum og tækifærum svæðisins,“ segir Þórdís Kolbrún.

    09. jún. 2021Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vefviðburður í dag: Landtenging hafna og notkun á umhverfisvænni orkugjöfum fyrir skip

    Skýrsla um landtengingar í höfnum verður til umræðu á vefviðburði Grænu orkunnar, Verkís og Orkustofnunar í hádeginu í dag, en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fól Verkís að vinna skýrsluna. ​

    03. jún. 2021Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Markmiðinu náð: Rúmlega 10% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum á Íslandi

    Ísland hefur náð þeim markverða árangri að markmið ársins 2020 um 10% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum er í höfn og rúmlega það.

    01. jún. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um ákvörðun makrílafla

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um ákvörðun makrílafla íslenskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands og á samningssvæði Norðaustur-Atlanthshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja árið 2021.

    27. maí 2021Auðlindir, Orka, Orkusjóður, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Fundað með Höllu Hrund, verðandi orkumálastjóra

    ​Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra orkumála, fundaði í dag með Höllu Hrund Logadóttur, sem skipuð hefur verið í embætti orkumálastjóra frá og með 19. júní næstkomandi.

    20. maí 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Framkvæmd búvörusamninga, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Nýsköpun, Orka, Orkusjóður, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hæsti styrkur Orkusjóðs um árabil: 320 milljónir í styrki til orkuskipta

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 320 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil og eru megin áherslur nú á ný svið, svo sem þungaflutninga og vinnuvélar. Að auki býður sjóðurinn nú í fyrsta sinn stuðning til líf- og rafeldsneytisframleiðslu og orkugeymslna. Áframhaldandi stuðningur er við uppbyggingu hleðslunets fyrir rafbíla.

    12. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Efnahagsmál og opinber fjármál, Byggðamál, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Mögulegt að auka útflutningsverðmæti sjávarútvegs og fiskeldis verulega

    Mikil tækifæri eru til vaxtar í sjávarútvegi, fiskeldi og tengdum greinum og mögulegt að auka útflutningsverðmæti þessara atvinnugreina verulega á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um stöður og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi. Að gefnum forsendum, sem lýst er nánar í skýrslunni, gæti virði framleiðslu allra þessara greina aukist í um 440 milljarða kr. árið 2025 og í 615 milljarða kr. árið 2030. Virði framleiðslunnar árið 2030 yrði þannig 85% meira en virði framleiðslunnar árið 2019.

    12. maí 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Covid-19, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Streymisfundur kl 14:00: Staða og horfur í sjávarútvegi og fiskeldi

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, boðar til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra. Skýrslan inniheldur ítarlega umfjöllun um núverandi stöðu sjávarútvegs- og fiskeldis og áskoranir og tækifæri til framtíðar. Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ og ritstjóri skýrslunnar, gerir grein fyrir helstu niðurstöðum hennar.

    23. apr. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Aflamark í ýsu aukið um 8.000 tonn

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis að aflamark í ýsu verði aukið um 8.000 tonn þ.e. úr 44.419 tonnum í 52.419 tonn.

    19. apr. 2021Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Halla Hrund nýr orkumálastjóri

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

    07. apr. 2021Atvinnuvegir, Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Matvælasjóður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegaráðuneytið

    Margrét Hólm nýr formaður Matvælasjóðs

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Margréti Hólm Valsdóttur nýjan formann Matvælasjóðs.

    31. mar. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Þorsteinn Sigurðsson nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna.

    04. mar. 2021Auðlindir, Nýsköpun, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Grænn dregill og iðngarðar efli græna nýfjárfestingu

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, undirritaði í dag samstarfssamninga um tvö verkefni sem bæði hafa það markmið að efla græna nýfjárfestingu í atvinnulífinu: Græna dregilinn og Græna iðngarða.

    01. mar. 2021Auðlindir, Neytendamál, Skipulagsmál, Sveitarstjórnir og byggðamál, Byggðamál, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Opinn fundur um leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, býður til opins fundar um leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands, með tilliti til ræktunnar, miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00.

    24. feb. 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Auðlindir, Atvinnuvegir, Orka, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Viljayfirlýsing um kaup ríkisins á hlutum orkufyrirtækja í Landsneti hf.

    Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, hafa fyrir hönd ríkissjóðs undirritað viljayfirlýsingu við orkufyrirtækin Landsvirkjun, RARIK ohf., Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða, sem eigendur alls hlutafjár í Landsneti hf. um að ganga til viðræðna um kaup ríkisins á hlutum félaganna í Landsneti hf.

    17. feb. 2021Auðlindir, Neytendamál, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Ráðherra leggur fram aðgerðaáætlun orkustefnu

    Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um langtímaorkustefnu og aðgerðaáætlun sem ætlað er að framfylgja markmiðum hennar.

    11. feb. 2021Auðlindir, Líf og heilsa, Covid-19, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi skilað

    Innlend matvælaframleiðsla stendur fyrir stórum hluta fæðuframboðs á Íslandi og þá sérstaklega próteini. Garðyrkjan sér fyrir um 43% af framboði grænmetis, búfjárrækt um 90% af kjöti, 96% af eggjum og 99% af mjólkurvörum. Mikilvægt er að marka stefnu um hvernig tryggja megi fæðuöryggi þjóðarinnar. Þetta eru​niðurstöður skýrslu um fæðuöryggi á Íslandi sem unnin var af Landbúnaðarháskóla Íslands að beiðni Kristjáns Þórs Júlíussonar.

    05. feb. 2021Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Kristján Þór undirritar reglugerð um aukinn loðnukvóta

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Eftir mælingar á loðnustofninum í síðustu viku veitti Hafrannsóknastofnun síðdegis í gær ráðgjöf um veiðar á allt að 127.300 tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021. Er það aukning um 66.300 frá fyrri ráðgjöf.

    03. feb. 2021Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Umbætur á regluverki raforkumála

    Í samráðsgátt stjórnvalda er nú að finna drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum, drög að breytingu á reglugerð um veginn fjármagnskostnað, yfirlit yfir aðgerðir til umbóta á regluverki á sviði raforkumála og skýrsla Deloitte um greiningu á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku.

    14. jan. 2021Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Umsækjendur um stöðu Orkumálastjóra

    Alls bárust 15 umsóknir um starf Orkumálastjóra, en umsóknarfrestur rann út þann 12. janúar 2021.

    18. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    120 m.kr. aukaframlag til loðnuleitar

    Hafrannsóknastofnun mun fá 120 milljón króna aukaframlag samkvæmt breytingartillögum fyrir 3. umræðu fjárlaga næsta árs til rannsókna og leitar að loðnu. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fundaði í gær með fulltrúum stofnunarinnar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um fyrirkomulag loðnuleitar á næstu vikum og mánuðum. Samstaða er um að leitin verði eins umfangsmikil og þörf er á enda miklir hagsmunir í húfi.

    16. des. 2020Atvinnuvegir, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Orka, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Orkusjóður, Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Orkuskipti 2020 – úthlutun styrkja úr Orkusjóði

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa ákveðið að fela Orkusjóði að veita 192 milljónir kr. til 55 verkefna í orkuskiptum af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár.

    16. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Strandríkin sammála um heildarafla í makríl

    Viðræður strandríkjanna Íslands, Bretlands, Evrópusambandsins, Færeyja, Grænlands og Noregs, um stjórn veiða úr stofni makríls í Norðaustur Atlantshafi, fóru fram dagana 26.-27. október og 25. nóvember sl. Eins og kunnugt er hafa Evrópusambandið, Færeyjar og Noregur haft með sér samkomulag um skiptingu aflaheimilda frá árinu 2014 en það rennur sitt skeið í árslok og hafa þessir aðilar ekki náð samkomulagi um áframhald þess. Á fundunum náðist ekkert samkomulag um skiptingu aflaheimilda.

    10. des. 2020Forsætisráðuneytið, Auðlindir, Líf og heilsa, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fiskeldi, Landbúnaður, Loftslagsmál, Matvælasjóður, Nýsköpun, Ríkisstjórn, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt: Stefnan mörkuð til 2030

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynntu í dag Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030.

    08. des. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Atvinnuvegir, Auðlindir, Landbúnaður, Forsætisráðuneytið

    Verði ykkur að góðu: Kynning á Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030

    Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynna nýja Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030, fimmtudaginn 10.desember kl 11:30. Kynningin verður í beinu streymi og má fylgjast með henni hér.

    17. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins

    Ársfundur Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC), sá 39. í röðinni, var haldinn í gegnum fjarfundabúnað dagana 10.-13. nóvember. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Bretar gerðust nýlega aðilar að ráðinu eftir útgöngu sína úr Evrópusambandinu, en auk þeirra eru aðilar NEAFC Danmörk (varðandi Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland. Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (ANR) fór fyrir íslensku sendinefndinni á fundinum. Í sendinefndinni voru, auk fulltrúa ANR, fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnunar, og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

    15. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Náttúruvernd, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Unnið að hvítbók um vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland

    Hafrannsóknastofnun vinnur nú að hvítbók um umhverfis og vistkerfisbreytingar í hafinu við Ísland og mögulegar sviðsmyndir eða afleiðingar áhrifa loftslagsbreytinga. Vinnan er unnin að frumkvæði Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en ráðherra gerði grein fyrir vinnunni í ávarpi á ársfundi Hafrannsóknastofnunar á föstudag. Áformað er að skýrslan liggi fyrir í apríl á næsta ári.

    13. nóv. 2020Auðlindir, Orka, Atvinnuvegir, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Greining á regluverki og fyrirkomulagi er varðar flutning og dreifingu raforku

    Að undanförnu hefur verið umræða um flutnings- og dreifikostnað raforku á Íslandi og rekstrarumhverfi sérleyfisfyrirtækja sem sjá um flutning og dreifingu raforku samkvæmt raforkulögum. Flutningsfyrirtækið Landsnet og dreifiveitur starfa innan ramma tekjumarka sem Orkustofnun setur þeim samkvæmt ákveðnum viðmiðum og forsendum sem koma fram í raforkulögum og reglugerðum. Eru þau ákvæði raforkulaga í grunninn frá árinu 2003 en var talsvert breytt 2011. Ákvarða tekjumörkin gjaldskrár sérleyfisfyrirtækjanna fyrir flutning og dreifingu raforku.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Neytendamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Ferðaþjónusta, Fiskeldi, Landbúnaður, Nýsköpun, Sjávarútvegur, Orka, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Styrkveitingar haustið 2020

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

    11. nóv. 2020Auðlindir, Alþjóðamál, Sjávarútvegur, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samkomulag við Breta um framtíðarsamstarf í sjávarútvegsmálum undirritað

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrar Íslands og Bretlands, Kristján Þór Júlíusson og Victoria Prentis, undirrituðu í dag samkomulag um framtíðarsamstarf ríkjanna í sjávarútvegsmálum.

    06. nóv. 2020Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Sjávarútvegur, Atvinnuvegir

    Endurnýjaður samningur við Færeyjar um fiskveiðimál

    Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra og Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja náðu fyrr í vikunni samkomulagi um fiskveiðiheimildir Færeyinga innan íslenskrar lögsögu fyrir næsta ár og um gagnkvæman aðgang að veiðum í lögsögu landanna fyrir norsk-íslenska síld og kolmunna.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband