Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnahagsmál og opinber fjármál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 1223
    Raða eftir:
    21. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Ferðaþjónusta

    Ferðamönnum fjölgar milli ára og bókunarstaða áfram góð

    Árið 2023 var gott ár í ferðaþjónustu á Íslandi og sóttu um 2,2 milljónir manna landið heim. Aðeins einu sinni áður höfðu erlendir ferðamenn verið fleiri. Það var árið 2018 þegar 2,3 milljónir erlendra ferðamanna lögðu leið sína hingað til lands. Ferðamenn sem komu hingað í fyrra eyddu að jafnaði meira en árið 2018.

    14. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    80 milljarða stuðningur ríkissjóðs vegna Grindavíkur

    Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um 80 milljörðum króna. Ráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík sem nýleg lög kveða á um, sem og vegna aukinna fjárveitinga til stofnana, einkum Almannavarna, vegna jarðhræringanna.

    13. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Starfshópur vinnur frumvarp um afnám undanþágu frá fasteignamatsskyldu rafveitna

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að semja lagafrumvarp og eftir atvikum reglugerðir sem miða að því að afnema undanþágu frá fasteignamatsskyldu rafveitna.

    12. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Sterk fjárhagsstaða eldri borgara og kjör batnað umfram yngri aldurshópa

    Fjárhagsleg staða eldri borgara á Íslandi er almennt sterk og hafa kjör hópsins batnað umtalsvert síðastliðinn áratug. Gildir það hvort sem litið er til tekna, kaupmáttar eða eigna- og skuldastöðu. Kjör hópsins á ýmsum sviðum hafa batnað umfram yngri aldurshópa. Samhliða hafa útgjöld almannatrygginga til eldri borgara aukist verulega. Þetta kemur fram í samantekt fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna opinberrar umræðu um stöðu eldri borgara.

    11. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Lýðheilsa og forvarnir, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vegna netsölu áfengis til neytenda

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu erindi vegna netsölu áfengis til neytenda hér á landi. Undanfarið hefur netsala áfengis til neytenda færst nokkuð í aukana og það hefur orðið tilefni til umræðu í samfélaginu, m.a. í tengslum við markmið laga um að stýra aðgengi að áfengi, draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu og vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis.

    07. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Grindavík, Efnahagsmál og opinber fjármál, Úkraína, Loftslagsmál

    Aðalfundur Þróunarbanka Evrópuráðsins haldinn á Íslandi

    Í dag samþykkti Þróunarbankinn fyrstu lánsumsókn til bankans frá ríkissjóði Ísland, að fjárhæð 150 milljónir evra. Íslensk stjórnvöld sóttu um lánið sem varúðarráðstöfun vegna mögulegra útgjalda í tengslum við náttúruhamfarir í nágrenni Grindavíkur.

    06. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Upplýsingar um fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík

    Fjármála og efnahagsráðuneytið safnar mánaðarlegum upplýsingum um fjárhagsleg afdrif fólks sem hafði búsetu eða starf í Grindavík í október 2023 og veltu fyrirtækja í Grindavík. Upplýsingunum er safnað í þeim tilgangi að fylgjast með hvernig fólki sem orðið hefur fyrir beinum áhrifum af jarðhræringum og eldgosum við bæinn reiðir af í kjölfarið.

    05. jún. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Sigurður Ingi sótti fund norrænna fjármálaráðherra

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra sótti dagana 3.-4. júní fund norrænna fjármálaráðherra í Stokkhólmi. Á fundinum ræddu ráðherrarnir þær áskoranir sem blasa við á Norðurlöndum varðandi framleiðni.

    31. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Sendiráð Íslands í London

    Fjármálaráðherra opnaði fyrir viðskipti dagsins í Kauphöllinni í London

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, opnaði í morgun fyrir viðskipti dagsins í Kauphöllinni í London, London Stock Exchange. Opnun ráðherra kemur í kjölfar farsællar skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs í mars sl. Þá gaf ríkissjóður út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra til 10 ára, sem samsvarar um 111 milljörðum króna, en þau voru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

    29. maí 2024Efnahagsmál og opinber fjármál, Annað, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Horfur í efnahagsmálum krefjast lækkunar opinberra skulda

    Fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram fjármálaáætlun fyrir árin 2025-2029 um miðjan apríl. Staða efnahagsmála sem liggur til grundvallar áætluninni er um margt merkileg, ekki síst þegar hún er borin saman við stöðu efnahagsmála fyrir aðeins þremur til fjórum árum síðan.

    24. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Íslandsbanki, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Arctica Finance til ráðgjafar vegna sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Arctica Finance hf. sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.

    24. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Áætlun um innleiðingu EES-gerða á fjármálamarkaði birt í samráðsgátt

    Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda áætlun um innleiðingu 24 EES-gerða á fjármálamarkaði.

    17. maí 2024Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frekari stuðningsaðgerðir fyrir Grindavík kynntar

    Ríkisstjórnin kynnti í dag tillögur um frekari stuðning við heimili og fyrirtæki í Grindavík. Tillögurnar felast í stuðningslánum með ríkisábyrgð til grindvískra fyrirtækja, viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta.

    17. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Heilbrigðismál, Löggæsla

    Fjölgun starfa í heilbrigðisþjónustu helsta ástæða fleiri starfa hjá ríkinu

    Fjölgun stöðugilda í heilbrigðisþjónustu er helsta ástæða fjölgunar starfa hjá ríkinu undanfarin ár. Næst mest hefur aukningin orðið í löggæslu.

    15. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Þórkatla hefur undirritað 471 kaupsamning vegna íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Fasteignafélagið Þórkatla hefur yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík eða um 85% allra umsókna sem borist hafa. Alls hefur félagið fengið 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum, en heildarfjöldi þeirra eigna sem geta fallið undir úrræðið er um 900.

    15. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Nýsköpun

    Flestar stofnanir hafa innleitt nýskapandi verkefni síðastliðin tvö ár

    79% stofnana ríkisins hafa innleitt að minnsta kosti eitt nýskapandi verkefni á síðastliðnum tveimur árum, samkvæmt Nýsköpunarvoginni. Stærstur hluti hlutfall verkefna hafa skilað aukinni skilvirkni og auknum gæðum en tækni er áfram helsti drifkraftur nýsköpunar hjá ríkinu.

    10. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Standard og Poor's

    S&P staðfestir A+ lánshæfiseinkunn Íslands með stöðugum horfum

    Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A+ lánshæfiseinkunn Íslands. Horfur fyrir einkunnina eru stöðugar.

    06. maí 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Umræðuskýrsla um fjármálareglur

    Í tengslum við birtingu fjármálaáætlunar áranna 2025-2029 hefur fjármála- og efnahagsráðherra lagt fyrir Alþingi umræðuskýrslu um fjármálareglur, eins og tiltekið var í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn verðbólgu 5. júní á sl. ári.

    02. maí 2024Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Fjármálareglur - Umræðuskýrsla

    Í skýrslunni er farið yfir kosti og galla ýmissa tölulegra fjármálareglna. Henni er ætlað að styðja við umræður og ákvarðanir um framtíð fjármálareglna á Íslandi.

    24. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Afkomuspá AGS ekki eins fjarri fjármálaáætlun og virðist við fyrstu sýn

    Nýleg spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gerir ráð fyrir umtalsvert lakari afkomu hins opinbera en nýframlögð fjármálaáætlun áranna 2025-2029 stefnir að. Skýringuna má m.a. finna í því að AGS tekur ekki tillit til óútfærðra aðhaldsráðstafana.

    18. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Opinber innkaup

    Öflug þekkingarstofnun með sameiningu verkefna Ríkiskaupa við Fjársýsluna

    Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir frumvarpi sem felur í sér sameiningu verkefna Ríkiskaupa við Fjársýsluna í öfluga þekkingarstofnun með það að meginhlutverki að ná fram bættum ríkisrekstri og hagræðingu.

    16. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Sterk staða varin og stuðlað að lækkun verðbólgu

    Á tímabili nýrrar fjármálaáætlunar fyrir árin 2025-2029 sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti í dag verður áhersla á að verja sterka stöðu með hóflegum vexti útgjalda til að stuðla að lækkun verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta. Þannig skila þær launahækkanir sem samið var um í kjarasamningum auknum kaupmætti til almennings.

    15. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Stafrænt Ísland

    Þétt setinn fundur um bætta þjónustu hins opinbera

    Fundur með helstu þjónustustofnunum ríkisins sem haldinn var fyrir helgi var vel sóttur en þar var rætt um stöðu og framþróun þjónustunnar, auk þess að fjalla um tækifæri gervigreindar fyrir þjónustu hins opinbera. Markmið fundarins voru umræða og aðgerðir um hvernig megi bæta þjónustu hins opinbera meðal annars út frá stefnu um opinbera þjónustu sem nú er í vinnslu.

    10. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Sigurður Ingi Jóhannsson nýr fjármála- og efnahagsráðherra

    Sigurður Ingi Jóhannsson tók í dag við lyklavöldum í fjármála- og efnahagsráðuneytinu úr hendi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem er nýr utanríkisráðherra.

    05. apr. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Þjóðlendur

    Málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 frestað

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur óskað eftir því að málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 (eyjar og sker) verði frestað svo unnt sé að endurskoða kröfur ríkisins með hliðsjón af betri gögnum. Þann 2. febrúar sl. voru settar fram kröfur fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem varða eyjar og sker.

    25. mar. 2024Moody‘s, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rit og skýrslur, Annað, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Skýrsla Moody's í mars 2024

    mars 2024 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla Moody's í mars 2024 Skýrsla Moody's í mars 2024

    21. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Jafnrétti

    Fjármála- og efnahagsráðherra á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

    Íslensk stjórnvöld hafa metnað til að vera áfram í farabroddi til þess að hraða jafnrétti kynjanna. Ísland er ekki framarlega í jafnrétti kynjanna því hér sé sterkt samfélag, heldur er samfélagið sterkt vegna þess að það búi við jafnrétti kynjanna.

    15. mar. 2024Fitch, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rit og skýrslur

    Skýrsla Fitch - Mars 2024

    mars 2024 / Fjármála- og efnahagsráðuneytið Skýrsla Fitch - Mars 2024 Skýrsla Fitch - mars 2024

    14. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Farsæl útgáfa ríkissjóðs á grænu skuldabréfi í evrum

    Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

    13. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Aukið valfrelsi í séreignarsparnaði í samráðsgátt

    Í drögum að frumvarpi sem fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram í samráðsgátt er lagt til að frelsi fólks til ávöxtunar á séreignarsparnaði verði aukið. Lagt er til að vörsluaðilum séreignarsparnaðar verði heimilað að verða við beiðni einstaklings um að iðgjöldum hans til séreignar verði varið til fjárfestingar í tilteknum sjóði eða sjóðum um sameiginlega fjárfestingu. Það hefur í för með sér, verði frumvarpið að lögum, að einstaklingur mun sjálfur geta valið um í hvaða sjóði eða sjóðum fjárfest er til ávöxtunar sparnaðarins, en þó innan þeirra marka sem frumvarpið felur í sér.

    11. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Lífskjör hafa óvíða vaxið jafn hratt og hér á landi undanfarin ár

    Hagvöxtur mældist 4,1% árið 2023 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar og er það nokkuð meiri hagvöxtur en gert hefur verið ráð fyrir. Sömuleiðis endurskoðaði Hagstofan birtingu hagtalna fyrir árin 2020-2022 en verðmætasköpun reyndist markvert meiri á tímabilinu.

    08. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Opnað fyrir sölu á íbúðarhúsnæði í Grindavík

    Íbúar í Grindavík sem óska eftir því að selja ríkissjóði íbúðarhúsnæði sitt í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu, samkvæmt nýsamþykktum lögum Alþingis, geta nú fyllt út umsókn á Ísland.is.

    07. mar. 2024Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Vaxandi velsæld - Aðgerðir stjórnvalda til stuðnings fjögurra ára kjarasamningum

    Ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa sameiginlega lagt fram aðgerðir til að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði til næstu fjögurra ára. Aðgerðirnar styðja við sameiginlegt markmið stjórnvalda og samningsaðila um að leggja grundvöll að vaxandi velsæld, með auknum kaupmætti og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta.

    07. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Samkeppni, þjóðaröryggi og verðmætasköpun lykilþættir í ákvarðanatöku um raforkumál

    Við alla ákvarðanatöku í raforkumálum er sérlega mikilvægt að huga að þjóðaröryggi, efnahagslegum tækifærum og verðmætasköpun, auk samkeppni. Gera þarf sérstakan viðauka við almenna eigendastefnu ríkisins um þessa þætti og er sú vinna væntanleg með vorinu. Þetta kom fram í máli Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Landsvirkjunar sl. þriðjudag.

    06. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Aukinn skýrleiki og bætt samkeppnishæfni með breytingum á lögum um virðisaukaskatt

    Aukinn skýrleiki og bætt samkeppnishæfni með breytingum á lögum um virðisaukaskatt Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur lagt í samráðsgátt drög að frumvarpi um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Þar er m.a. lagt til að einfalda og skýra fyrirkomulag álagningar virðisaukaskatts vegna sölu á þjónustu milli landa í viðskiptum milli fyrirtækja (B2B). Lagt er til að tekið verði upp samskonar fyrirkomulag og er í virðisaukaskattstilskipun Evrópusambandsins.

    02. mar. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fitch

    Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, ÍL-sjóður

    Viðræður hefjast við lífeyrissjóði um uppgjör skuldabréfa ÍL-sjóðs

    Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ÍL-sjóðs og íslenska ríkisins, og fulltrúar 18 lífeyrissjóða, sem saman fara með stærstan hluta skuldabréfa sem ÍL-sjóður er útgefandi að, hafa ákveðið að hefja viðræður um uppgjör á skuldabréfum sjóðsins.

    23. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Lög um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík samþykkt – upplýsingar og umsókn fyrir íbúa á Ísland.is

    Frumvarp um kaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík var samþykkt á Alþingi í gær. Upplýsingasíða fyrir Grindvíkinga er komin í loftið á Ísland.is þar sem m.a. er að finna svör við algengum spurningum. Enn er unnið að útfærslu á einhverjum atriðum en um leið og þau skýrast verða upplýsingar uppfærðar.

    22. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Íslandsbanki

    Drög að frumvarpi um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

    Í eigandastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki kemur fram að ætlunin sé að selja eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka hf. þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur efnt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda um drög að frumvarpi um ráðstöfun eftirstandandi eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka.

    19. feb. 2024Rit og skýrslur, Efnahagsmál og opinber fjármál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Starfshópur um skattlagningu orkuvinnslu - skýrsla

    Skýrsla starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu.

    19. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í leigufélögum í samráðsgátt

    Ráðuneytið hefur birt í samráðgátt stjórnvalda áform um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þar eru kynnt fyrirhuguð áform stjórnvalda um að leggja fram á vormánuðum þessa árs tillögu um breytingar á lögbundnum fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða. Tilgangurinn er að rýmka heimildir lífeyrissjóða til þess að fjárfesta í leiguhúsnæði til einstaklinga.

    12. feb. 2024Rit og skýrslur, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál

    Starfshópur um skattlagningu orkuvinnslu - skýrsla

    Skýrsla starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu.

    12. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skýrsla starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu

    Starfshópur sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði um skattlagningu orkuvinnslu hefur skilað skýrslu til ráðherra. Hópurinn, sem var skipaður á síðasta ári, fékk það verkefni að skoða skattalegt umhverfi orkuvinnslu í stærra samhengi

    09. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frumvarp um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarði króna.

    08. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Mælti fyrir nýju úrræði til að mæta vanda rekstraraðila í Grindavík

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík.

    08. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Íbúar á Íslandi umtalsvert færri en áður var talið – Ný aðferð Hagstofu Íslands við mat á mannfjölda

    Hagvöxtur á mann var meiri á síðastliðnum árum en opinberar hagtölur benda til. Þá er verðmætasköpun á mann orðin hin sama og fyrir faraldur þvert á niðurstöður opinberra hagtalna sem benda til þess að enn sé nokkuð til lands í þeim efnum. Þetta eru meðal afleiðinga nýs mat á íbúafjölda hér á landi þar sem í ljós kemur að íbúar eru talsvert færri en opinberar hagtölur hafa bent til.

    08. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Grindavík

    Samkomulag milli fjármála- og efnahagsráðherra og lífeyrissjóða vegna húsnæðislána lífeyrissjóða í Grindavík

    Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Markmið samkomulagsins er að ríkissjóður styðji við þá fasteignaeigendur í Grindavík sem fallið hafa utan úrræða annarra lánveitenda húsnæðislána í Grindavík um niðurfellingu á vöxtum og verðbótum af lánum þeirra.

    06. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Skattaleg umgjörð orkuvinnslu – opinn fundur með ráðherra

    Starfshópur sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í júní í fyrra um skattlagningu orkuvinnslu hefur skilað tillögum til ráðherra. Hópurinn skoðaði m.a möguleika á nýrri skattalegri umgjörð og leiðir til að tryggja að ávinningur vegna nýtingar auðlinda skili sér í ríkari mæli til nærsamfélaga og þeirra aðila sem fyrir áhrifum verða.

    03. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Fitch

    Fitch staðfestir A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs með stöðugum horfum

    Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunn er óbreytt í A og horfur eru stöðugar.

    24. jan. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins

    Um 93% skráð kílómetrastöðu

    Rétt tæplega 93% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu. Hefur kílómetrastaða ríflega 47 þúsund bíla verið skráð.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband