Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 401–450 af 1821
    Raða eftir:
    07. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Undirrituðu sögulegan samning

    „Samningurinn markar söguleg tímamót fyrir menningu og skapandi greinar á Íslandi. Markmið samningsins er að miðlun á hagtölum um menningu og skapandi greinar verði hluti af reglubundinni starfsemi Hagstofu Íslands. Það er staðfesting á auknu vægi menningar og skapandi greina í íslensku efnahagslífi. Munu upplýsingarnar varpa ljósi á þróun atvinnuvegarins og gagnast stjórnvöldum við ákvarðanatöku og stefnumótun en ekki síður atvinnuveginum sjálfum,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    07. okt. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Húsfyllir til heiðurs skapandi greinum: Menning og listir auðga hagkerfið kröftuglega

    Fullt var út úr dyrum á Tjarnarbíói þegar Ágúst Ólafur Ágústsson hagfræðingur kynnti skýrslu sem greinir stöðu menningar og skapandi greina hérlendis. „Tilgangur með þessari vinnu var að fá samanburðarhæfar tölur og skilgreina tækifæri,“ segir Ágúst Ólafur og bendir á að beint framlag til menningar og skapandi greina hafi numið 3,5% af landsframleiðslu árið 2023 eða 150 milljörðum sem er litlu minna en framlag fiskveiða og fiskeldis til þjóðarbúsins sama ár eða 4%.

    04. okt. 2024Rit og skýrslur, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi

    Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi - skýrsla unnin fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið af Ágústi Ólafi Ágústssyni hagfræðingi.

    01. okt. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Almannarómur efldur og Máltækniáætlun 2 hleypt af stað

    „Það gleður mig mjög að búið sé að tryggja Almannarómi traustan rekstrargrundvöll til næstu ára svo að öll sú kraftmikla máltæknivinna sem hafin er geti haldið ótrauð áfram. Þessi vinna snýst ekki aðeins um að við getum notað helstu forrit og tækni á okkar eigin tungumáli, heldur erum við líka að byggja brú á milli kynslóða. Tungumálið okkar er gersemi sem hefur varðveist í 1000 ár og er nú hluti af þróunarvinnu stærstu tæknirisa heims sem skilar sér í að tækninýjungar verða aðgengilegar fleirum en þeim sem eru færir í ensku og um leið varðveitir tungumálið okkar og eykur orðaforða,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    01. okt. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Neytendavernd viðkvæmra hópa

    01 október 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Neytendavernd viðkvæmra hópa Neytendamál hafa verið í forgangi í menningar- og viðskiptaráðuneytinu á kjörtímabilinu. Þannig hefur viðskiptabönkunum til að mynda verið veitt aðhald með úttekt á gjaldtöku þeirra og arðsemi, stutt hefur verið við verðlagseftirlit á dagvörumarkaði, niðurstaða úttektar á tryggingamarkaðnum er væntanleg fyrir áramót og nýverið mælti ég fyrir heildstæðri stefnu í neytendamálum til ársins 2030. Ein aðgerðanna í þeirri stefnu snýr að neytendavernd viðkvæmra hópa, en ákveðnir hópar neytenda í tilteknum aðstæðum geta verið viðkvæmir fyrir markaðssetningu og auglýsingum og þurfa því sérstaka vernd, svo sem börn, eldri borgarar og fatlað fólk

    30. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Gervigreind, Háskólar, Netöryggi, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fleiri kerfisbreytingar í farvatninu

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hyggst mæla fyrir ellefu málum á yfirstandandi þingi.

    29. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Verðmæti skapandi greina - Málþing í Tjarnarbíói á fimmtudaginn

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra boðar til málþings um framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi nk. fimmtudag kl. 15. í Tjarnarbíói. Kynntar verða niðurstöður skýrslu þess efnis auk þess sem áhugaverð erindi um skapandi greinar verða flutt og líflegar pallborðsumræður munu ýfa upp hugmynda- og heilahvelið. Fundarstjóri er leikkonan og leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir.

    28. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tónlistarmiðstöð: Opið fyrir umsóknir úr Tónlistarsjóði og boðið upp á vinnustofu í vinnslu umsókna

    Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Eddu Konráðsdóttur framkvæmdastjóra Iceland Innovation Week, býður upp á vinnustofu þar sem umsækjendur geta fengið ráðleggingar og aðstoð við skrif styrkumsókna. Vinnustofan fer fram í húsnæði Tónlistarmiðstöðvar, Austurstræti 5, 101 Reykjavík, þann 9. október. Skráningarform og frekari upplýsingar má finna hér.

    26. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Framtíðarsýn um vísindi, tækniþróun og nýsköpun í samráðsgátt

    Tillögur Vísinda- og nýsköpunarráðs um framtíðarsýn stjórnvalda á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar má nú nálgast í samráðsgátt stjórnvalda.

    25. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Gervigreind

    Íslensk máltækni kynnt á málþingi Open AI í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

    Íslenska-nàlgunin var kynnt tæknisamfélaginu á málþingi Open AI sem haldin var í tilefni af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Inntak málþingsins var að setja áherslu á að leysa flókin samfélags vandamál með hjálp gervigreindar og stuðla þannig að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

    24. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Evrópusamvinna, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Þátttaka Íslands í InvestEU þegar farin að skila árangri

    Með þátttöku Íslands í InvestEU aukast tækifæri til að fjármagna samfélagslega mikilvæg verkefni á borð við nýsköpun, grænar lausnir og sjálfbæra uppbyggingu innviða.

    21. sep. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Neytendamál í öndvegi

    21 september 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Neytendamál í öndvegi Í vikunni mælti ég á Alþingi fyrir þingsályktun um stefnu í neytendamálum til ársins 2030. Mikil vinna hefur átt sér stað innan menningar- og viðskiptaráðuneytisins á undanförnum árum til þess að undirbyggja raunverulegar aðgerðir í þágu neytenda. Aðdraganda þingsályktunartillögunnar má meðal annars rekja til þess að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð almenn áhersla á eflingu neytendaverndar og að tryggja stöðu neytenda betur, meðal annars í nýju umhverfi netviðskipta

    19. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Fjarskiptasjóður, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing landsins undirrituð

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og innviðaráðherra staðfestu í dag samninga fjarskiptasjóðs við 25 sveitarfélög um að ljúka ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Lengi hefur ríkt óvissa um hvort, og þá hvenær, mörg þúsund lögheimili í þéttbýli um land allt munu eiga kost á háhraðanetsambandi, sem er mikilvægt öryggismál og undirstaða nútíma búsetugæða. Með þessum samningum er sú óvissa ekki lengur fyrir hendi.

    17. sep. 2024Rit og skýrslur, Menntamál, Háskólar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Greinargerð um árangurstengda fjármögnun háskóla

    september 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Greinargerð um árangurstengda fjármögnun háskóla Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt greinargerð um nýja árangurstengda fjármögnun háskóla, sem tók gildi sumarið 2024. Um er að ræða stærstu breytingu á háskólaumhverfinu í áratugi sem fela í sér margvíslega hvata fyrir háskóla; til að auka gæði náms, styðja nemendur í gegnum skólagöngu, sækja fram í rannsóknum og afla alþjóðlegra styrkja svo fátt eitt sé nefnt

    17. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Leiðarvísir um árangurstengda fjármögnun háskóla

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt greinargerð um nýja árangurstengda fjármögnun háskóla, sem tók gildi í sumar. Um er að ræða stærstu breytingu á háskólaumhverfinu í áratugi.

    16. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu

    Eftir fimm ára hlé hafa KLAK - Icelandic Startups og Ferðaklasinn ákveðið að endurvekja Startup Tourism, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu. Með því að endurvekja hraðalinn vonast samstarfsaðilar til að skapa ný tækifæri innan íslenskrar ferðaþjónustu.

    15. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Starfshópur um bætt öryggi í ferðaþjónustu

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur óskað eftir tilnefningum í starfshóp um öryggismál í ferðaþjónustu. Er það liður í eftirfylgni með aðgerðaáætlun (E.7 ) með ferðamálastefnu til 2030 sem samþykkt var í júní 2024 og unnin var í breiðri samvinnu fjölda hagaðila. Starfshópurinn hefur það að meginhlutverki að koma með tillögur að úrbótum á sviði öryggismála í ferðaþjónustu, tryggja samráð á milli hlutaðeigandi ráðuneyta, stofnana og atvinnugreinarinnar, og stuðla að framgangi verkefna sem hafa það að markmiði að bæta öryggi ferðamanna þvert á hið opinbera og atvinnulíf.

    13. sep. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Fjarskipti, Menntamál, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Fjárlög, Háskólar, Iðnaður, Netöryggi, Nýsköpun, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fjárlög 2025: Verðmætasköpun á skilvirkum og ábyrgum grunni

    Styrkum stoðum er rennt undir þekkingarsamfélag framtíðar í fjárlagafrumvarpi ársins 2025. Háskólar landsins eru efldir með nýrri árangurstengdri fjármögnun um leið og aðgangshindrunum er rutt úr vegi, sem hefur þegar skilað sér í fjölgun nemenda, auk þess sem fjárfesting í stuðningsumhverfi nýsköpunar er fest í sessi.

    13. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ísland komið í hóp bestu ríkja heims í netöryggismálum

    Ísland er hástökkvari á nýjum lista Alþjóðafjarskiptasambandsins.

    12. sep. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Öryggismál verða áfram á oddinum

    12 september 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Öryggismál verða áfram á oddinum Á undanförnum 15 árum hefur ferðaþjónusta átt stóran þátt í því að renna styrkari stoðum undir íslenskt efnahagslíf. Vöxtur hennar hefur aukið fjölbreytni atvinnulífsins um allt land og skapað ný tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki. Vexti nýrrar atvinnugreinar fylgja áskoranir sem mikilvægt er að fást við

    11. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2025

    Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2025. Tekið er á móti umsóknum til kl. 13 þann 15. október n.k. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

    11. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Listaháskólinn verði á Skólavörðuholti í stað Tollhússins

    Samþykkt hefur verið í ríkisstjórn að skoða af mikilli alvöru þá ósk Listaháskóla Íslands (LHÍ) að starfsemi skólans verði sameinuð í húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti í stað Tollhússins við Tryggvagötu, sem áður var áætlað. Samkvæmt nýrri greiningu myndi þessi breyting ekki aðeins bæta verulega aðstöðu fyrir nemendur og kennara heldur einnig spara milljarða króna í framkvæmdakostnaði.

    10. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Alþjóðamál

    Árangursríkur fundur stjórnarnefndar Bologna-samstarfsins á Íslandi

    Stjórnarnefnd Bologna-samstarfsins um háskólamál hittist í Reykjavík í liðinni viku til að undirbúa verkefnaáætlun til ársins 2027.

    10. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál, Fjárlög

    Fjárlagafrumvarp 2025: Áfram stutt við menningu á umfangsmikinn hátt

    Kröftuglega verður stutt við menningu og listir í landinu með umfangsmiklum hætti skv. frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2025. Samtals munu framlög til menningarmála og skapandi greina nema tæpum 26,7 milljörðum króna árið 2025. Undir málaflokkinn heyra söfn, menningarstofnanir og menningarsjóðir á vegum ríkisins á málefnasviði 18, endurgreiðslukerfi í kvikmyndum og tónlist og málefni hönnunar- og arkitektúrs á málefnasviði 7.

    09. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Tímabundin vistaskipti fangelsismálastjóra

    Páll E. Winkel tekur tímabundið til starfa hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.

    09. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fundaði með aðstoðarframkvæmdastjóra UN Women: Jafnréttismál eru stórt efnahagsmál

    „Jafnréttisbaráttan hefur gengið mun betur hérlendis en víða annars staðar en það er eitt miðla okkar velgengni en annað að gera sér grein fyrir því að fullnaðarsigur er ekki í höfn. Við höfum verk að vinna á ýmsum sviðum og þegar jafnrétti er náð þarf að viðhalda því samhliða hraðri þróun samfélagsins,“ segir Lilja Dögg og bætir við að Ísland geti vel verið í farabroddi í jafnréttismálum áfram ef vel er haldið á þeim verkfærum sem þjóðin býr yfir.“

    06. sep. 2024Innviðaráðuneytið, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fjarskiptastrengir og gagnaver á teikniborðinu

    Fyrirhuguð áform fela meðal annars í sér lagningu fjarskiptasæstrengja sem myndu efla tengingar milli Íslands, Norður-Ameríku og Evrópu.

    05. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Hraunmyndanir framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025

    Verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025. Alls bárust tólf tillögur að sýningu í opnu kalli sem auglýst var í lok apríl af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Fjórar tillögur voru valdar til frekari kynninga fyrir stýrihóp verkefnisins sem sá um að valið. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr með opnu kalli.

    04. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innflytjendur, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

    RÚV Orð formlega tekið í notkun: Nýtt tæki til íslenskunáms fyrir innflytjendur

    RÚV Orð, nýr vefur sem veitir innflytjendum aðgang að fjölbreyttu íslenskunámi í gegnum sjónvarpsefni frá RÚV, hefur nú verið formlega opnaður fyrir almenning. Eftir vel heppnaðar notendaprófanir er RÚV Orð nú aðgengilegt öllum sem vilja efla íslenskukunnáttu sína á sínum hraða.

    03. sep. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ofbeldið skal stöðvað

    03 september 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Ofbeldið skal stöðvað Þjóðin er harmi slegin eftir að fréttir bárust af því að eitt okkar, Bryndís Klara Birgisdóttir, 17 ára, lést í kjölfar alvarlegra áverka sem henni voru veittir. Það er þyngra en tárum taki að þetta hafi gerst í okkar samfélagi. Sorgin er enn erfiðari þar sem um er að ræða unga manneskju sem átti bjarta framtíð fyrir sér

    03. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun

    Sameining sjóða í samráðsgátt

    Til stendur að fækka sjóðum á vegum ráðuneytisins úr átta í þrjá.

    02. sep. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir úr Hvata til 23. september

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið veitir Hvata - styrki til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra. Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn. Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Þá eru hvorki veittir styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS-, eða meistaraprófsverkefna.

    28. ágú. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Háskólar, Iðnaður, Nýsköpun, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu haustið 2024

    Í haust mun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, m.a. starfa frá Hveragerði, Rangárþingi ytra, Stykkishólmi og Vopnafirði. Frá upphafi hefur ráðuneytið verið opið fyrir störfum óháð staðsetningu og eru störf ráðherra þar engin undantekning. Ráðherra staðsetur skrifstofu sína reglulega víðs vegar um landið, enda eiga málefni ráðuneytisins við um landið allt. Á hverri starfsstöð býður ráðherra öll áhugasöm velkomin í opna viðtalstíma þar sem gefst tækifæri til að eiga stutt, milliliðalaust spjall um málefni á borði ráðherra.

    24. ágú. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Höfuðborg full af menningu

    24 ágúst 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Höfuðborg full af menningu Haldið er upp á það í dag að Reykjavíkurborg fékk kaupstaðarréttindi hinn 18. ágúst 1786. Af því tilefni er venju samkvæmt blásið til Menningarnætur í Reykjavík þar sem íslensk menning í víðum skilningi fær notið sín fyrir augum og eyrum gesta

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir í Sviðslistasjóð

    Alþingi veitir árlega fé í fjárlögum til stuðnings sviðslistasjóði með það að markmiði að efla sviðslistir og búa þeim hagstæð skilyrði. Sviðslistaráð auglýsir eftir styrkumsóknum atvinnusviðslistahópa í Sviðslistasjóð. Umsóknarfrestur er til 1. október 2024 klukkan 15:00.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Frábær aðsókn að nýju grunnnámi í blaðamennsku við Háskóla Íslands

    Tímamót urðu í Háskóla Íslands fyrr í vikunni, þegar kenndur var fyrsti tíminn í nýju BA-námi í blaðamennsku við stjórnmálafræðideild skólans. Fleiri umsóknir bárust um námið en unnt var að samþykkja og eru nú um tuttugu nemendur skráðir. Nemendur munu meðal annars sinna starfsnámi við fjölmiðla landsins á námstímanum, ásamt því að sitja námskeið sem undirbúa þá fyrir störf við fjölmiðla framtíðar.

    23. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Útlendingar, Háskólar, Menntamál

    Opinberir háskólar fái heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hyggst leggja fram frumvarp á haustþingi um breytingar á lögum um opinbera háskóla sem fela í sér heimild til skólanna til að innheimta skólagjöld fyrir nemendur sem koma frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins (EES). Samhliða þessu verða teknir upp námsstyrkir fyrir afburðanemendur frá þessum löndum í þeim tilgangi að efnilegir nemendur hafi áfram tækifæri til náms á Íslandi, óháð efnahag.

    22. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Nýr hornsteinn lagður að Sögu

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lögðu í gær nýjan hornstein að Sögu við Hagatorg. Endurbætur á húsinu eru langt komnar og má reikna með að starfsfólk og nemendur háskólans flytji inn í húsið síðar í haust.

    22. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Netöryggi, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Netöryggi eflt með styrkjum Eyvarar NCC-IS

    Ráðherra netöryggismála mun í haust veita netöryggisstyrki í gegnum Eyvöru NCC-IS sem er hæfnisetur fræðslu, menntunar og rannsókna á netöryggi. Markmið samstarfsins er að efla netöryggisgetu á landsvísu, styðja við íslenskt netöryggissamfélag og að tryggja öflugt Evrópusamstarf á sviði netöryggismála.

    21. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing í þéttbýli og háhraðafarnet á stofnvegum tryggt – hlutverki fjarskiptasjóðs lokið og hann lagður niður

    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur kynnt ríkisstjórn ákvörðun sína um að framlengja ekki líftíma fjarskiptasjóðs. Að öllu óbreyttu munu lög um fjarskiptasjóð því falla brott við lok þessa árs og hættir starfsemi sjóðsins frá sama tíma.

    20. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tugir listamanna ræddu listamannalaun á opnum fundi

    Tugir listamanna og forsvarsmenn bandalaga þeirra mættu og sköpuðust líflegar umræður um kosti og galla listamannalauna sem ráðherra segist taka fagnandi. „Það komu margar góða hugmyndir fram, fólk var málefnalegt og hvatti kollega sína áfram með lófataki,“ segir ráðherra sem segir það mikið gleðiefni hve margir mættu og tjáðu sig.

    20. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Gervigreind

    Beita gervigreind gegn gullhúðun

    Háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneytið hóf vinnu í sumar, með nokkrum aðilum á sviði gervigreindar, við að greina hvort gullhúðun hafi átt sér stað á EES-gerðum á málefnasviði ráðuneytisins. Verkefnið er eitt af verkefnum ráðuneytisins í aðgerðaáætlun um gervigreind sem unnið hefur verið að á undanförnum mánuðum. Með notkun gervigreindar er hægt að greina gullhúðun á gildandi löggjöf án þess að kosta til þess fjölda vinnustunda sérfræðinga ráðuneytisins. Þá kann notkun gervigreindar að greina mynstur og tengsl innan lagabálkanna sem gætu annars farið fram hjá hefðbundinni greiningu.

    18. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Seinni úthlutun úr Tónlistarsjóði: Mikill fjöldi frambærilegra umsókna

    „Það er mikið fagnaðarefni að sjá hversu mörg spennandi verkefni hlutu styrk og ekki síður er það gleðiefni að heyra frá úthlutunarnefndum hve mörg og efnileg verkefni sóttu um. Sú staðreynd að það sé erfitt að velja hver hljóti styrk er mikilvæg vísbending um gróskuna í íslensku tónlistarlífi. Tónlistarmiðstöð er frábær umgjörð sem býður upp á fjölbreytta þjónustu og tækifæri sem ég hvet sem flesta til að kynna sér. Þar er til dæmis boðið upp á ráðgjöf við styrkumsóknir og þangað má sækja innblástur og fagþekkingu frá einvala sérfræðingum,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Menningar- og viðskiptaráðherra við tilefnið.

    16. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Fléttustyrkjum úthlutað í þriðja sinn: Tæplega 100 m.kr. til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

    Tíu íslensk nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðlar hljóta alls 12 styrki úr Fléttunni í ár. Þetta er í þriðja sinn sem styrkir eru veittir úr Fléttunni, en tilgangur styrkjanna er að styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðiskerfinu. Í ár verður um 96 milljónum króna dreift til þessara fyrirtækja í þeim tilgangi að innleiða nýja tækni og lausnir í heilbrigðisþjónustu.

    15. ágú. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stórmál sem þarf að klára

    15 ágúst 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Stórmál sem þarf að klára Auðlindir og nýting þeirra er eitt af stærstu hagsmunamálum hvers þjóðríkis og gæta ber þeirra í hvívetna. Það styttist í að Alþingi komi saman að nýju eftir sumarleyfi til þess að fjalla um hin ýmsu málefni. Fyrir þinginu að þessu sinni mun meðal annars liggja fyrir frumvarp um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

    15. ágú. 2024Úrskurðir á málefnasviðum menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Úrskurðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Kæra, kröfur og kæruheimild - synjun um endurgreiðslu útlags kostnaðar vegna túlkaþjónustu

    ÚRSKURÐUR í stjórnsýslumáli nr. MVF23090319 I. Kæra, kröfur og kæruheimild

    15. ágú. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opið fyrir umsóknir um listamannalaun: Ráðherra býður til kynningarfundar 19. ágúst

    Á liðnu vorþingi voru samþykktar breytingar á lögum um listamannalaun í því skyni að styrkja faglega starfslaunasjóði listamanna og tryggja betur afkomu þeirra sem starfa í listum eða við skapandi greinar. Tveimur nýjum launasjóðum hefur verið bætt við; launasjóði kvikmyndahöfunda og þverfaglegum sjóði fyrir 67 ára og eldri. Einnig mun úthlutunarmánuðum fjölga í hverri grein. Að þessu tilefni boðar menningar- og viðskiptaráðuneytið til umræðu um þessar breytingar sem og áherslur og stefnu listamannalauna til næstu þriggja ára.

    14. ágú. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskiptasjóður, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ljósleiðaravæðing allra lögheimila í þéttbýli – svarfrestur framlengdur

    Svarfrestur vegna tilboðs til sveitarfélaga um fjárstuðning vegna allra ótengdra lögheimila á þéttbýlisstöðum og í byggðakjörnum, sem eigin áform fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila ná ekki til, hefur verið framlengdur til kl. 12:00 föstudaginn 23. ágúst nk.

    06. ágú. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    „Stökktu í djúpu laugina! Áfram Ísland”

    06 ágúst 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið „Stökktu í djúpu laugina! Áfram Ísland” Ólympíuleikarnir í París standa sem hæst um þessar mundir. Við erum stolt af okkar íslensku þátttakendum, sem hafa staðið sig afar vel og náð takmarki sínu sem íþróttafólk. Tvennt er mér sérstaklega hugleikið í tengslum við leikana: annars vegar frammistaða og viðtal við sundkappann Anton Svein Mckee, og hins vegar bandaríska fimleikakonan Simone Biles

    02. ágú. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Þjóðhátíð í Eyjum fagnar 150 ára afmæli

    02 ágúst 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Þjóðhátíð í Eyjum fagnar 150 ára afmæli Þjóðhátíð í Eyjum hefur verið fastur liður í menningarlífi Vestmannaeyinga síðan árið 1874. Þessi árlega hátíð, sem á rætur sínar að rekja til 1000 ára afmæli Íslands, er nú einn af helstu menningarviðburðum landsins og þúsundir Íslendingar sækja ár hvert. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur verið haldin í ágústmánuði síðan árið 1916, að undanskildu 2020 og 2021 vegna heimsfaraldursins

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband