Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Heilbrigðismál
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 451–500 af 512
    Raða eftir:
    10. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Kveðjur heilbrigðisráðherra til ljósmæðra og BHM

    Heilbrigðisráðherra sagði í umræðum á Alþingi í gær að hún teldi vinnuframlag ljósmæðra sérstaklega mikilvægt og það beri að meta að verðleikum.

    10. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Staðreyndir um ný geðheilsuteymi í heilsugæslunni og starfsemi Hugarafls

    Verið er að stórefla geðheilbrigðisþjónusta á landsvísu í samræmi við aðgerðaáætlun Alþingis á sviði geðheilbrigðismála. Ný geðheilsuteymi sem verið er að koma á fót í öllum heilbrigðisumdæmum munu veita gagnreynda, batahvetjandi meðferð og halda í heiðri hugmyndafræði valdeflingar í þágu notenda.

    05. apr. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Fjármálaáætlun

    Fjármálaáætlun 2019-2023: Umtalsverð aukning til heilbrigðismála

    Útgjöld til reksturs heilbrigðismála munu aukast um 79 milljarða króna alls á næstu fimm árum miðað við fjárlög yfirstandandi árs. Stofnkostnaður, m.a. vegna byggingaframkvæmda, verður 101 milljarður á tímabilinu. Stefnt er að því að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga á tímabili fjármálaáætlunar, þannig að hlutdeild sjúklinga hérlendis verði sambærileg því sem gerist á Norðurlöndunum.

    21. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um mikilvægi neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

    Komur á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis voru 187 árið 2017 og hafði komum þá fjölgað um 40% á tveimur árum. Svandís Svavarsdóttir skrifar um þessi mál, fjallar um þjónustu neyðarmóttökunnar og mikilvægi þess að vinna gegn ofbeldi í nánum samböndum í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag.

    17. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Öruggir sjúkraflutningar tryggðir áfram

    Vegna ákvörðunar Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) um að slíta samstarfi við ríkið um rekstur sjúkrabíla vill ráðuneytið taka fram að öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt meðan unnið er að því að skipuleggja fyrirkomulag þessarar þjónustu til framtíðar.

    12. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Erfið staða á bráðamóttöku Landspítala

    Heilbrigðisráðherra gerði grein fyrir erfiðum aðstæðum á á Landspítala vegna mikils álags á bráðamóttöku spítalans á fundi ríkisstjórnar síðastliðinn föstudag. Ráðherra leggur áherslu á að hratt verði unnið að verkefnum sem ákveðin hafa verið til að efla heilbrigðiskerfið og styrkja mönnun þess.

    09. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framhald átaks um styttingu biðlista eftir tilteknum skurðaðgerðum

    Gerðar verða tæplega 530 liðskiptaaðgerðir á hnjám og mjöðmum á þessu ári á grundvelli átaks til að stytta bið eftir tilteknum skurðaðgerðum. Þetta er þriðja ár biðlistaátaksins og verður varið til þess um 840 milljónum króna á árinu.

    02. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðisráðherra skrifar um skýrslu Ríkisendurskoðunar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir ábendingu Ríkisendurskoðunar sem snýr að stefnumörkun í heilbrigðiskerfinu vera réttmæta og góða brýningu fyrir ráðuneytið. Góð heilbrigðisþjónusta þurfi að byggja á skýrri heilbrigðisstefnu sem sé hluti af samfélagssáttmálanum.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Tillögur um lækkun tannlæknakostnaðar lífeyrisþega í mótun

    Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að fjalla um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum aldraðra og öryrkja. Hópurinn á að skila ráðherra tillögum 1. apríl 2018.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Almannatryggingar og lífeyrir

    Gjaldskrárbreytingar vegna heilbrigðisþjónustu 1. mars

    Komugjöld í heilsugæslu haldast óbreytt en gjöld fyrir aðra heilbrigðisþjónustu hækka að jafnaði um 2,2% samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í dag. Breytingarnar eru til samræmis við forsendur fjárlaga ársins sem gera ráð fyrir verðlagshækkunum sem þessu nemur.

    01. mar. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Líf og heilsa, Mannauðsmál ríkisins, Heilbrigðismál, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Yfirlýsing þriggja ráðherra um heilbrigðiskerfið og mönnun þess

    Ráðist verður í átak við gerð mannaflaspár fyrir heilbrigðiskerfið og mótuð stefna og aðgerðaáætlun í heilbrigðismálum í samvinnu við fagstéttir til að stuðla að heilbrigði þjóðarinnar og skapa eftirsóknarverðan starfsvettvang fyrir heilbrigðisstarfsfólk.

    26. feb. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup á heilbrigðisþjónustu

    Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu sína til Alþingis um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu. Stofnunin beinir tveimur ábendingum til velferðarráðuneytisins í tengslum við stjórnsýsluúttekt sína og snúa þær að stefnumótun í heilbrigðisþjónustu og verkaskiptingu við gerð samninga.

    14. feb. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Synjun Embættis landlæknis um varanlegt starfsleyfi sem talmeinafræðingur

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um varanlegt starfsleyfi sem talmeinafræðingur. Kærandi fór jafnframt fram á að ráðuneytið staðfesti fyrirhugaðan rekstur hennar á heilbrigðisþjónustu. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Embættis landlæknis.

    08. feb. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið

    febrúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið Skýrsla starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á Akureyri, starfsvæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (Hvest), Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Samþætting líknar- og lífslokameðferðar: Norðlenska líkanið

    08. feb. 2018Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillögur um líknarmeðferð á landsbyggðinni

    Starfshópur sem falið var að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða, Austurlands og Norðurlands hefur skilað heilbrigðisráðherra skýrslu með tillögum sínum.

    30. jan. 2018Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma

    janúar 2018 / Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma Skýrsla starfshóps heilbrigðisráððherra sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að bregðast við aukinni útbreiðslu kynsjúkdóma. Ráðherra skipaði starfshópinn í mars 2017 í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis

    26. jan. 2018Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Synjun Embættis landlæknis um veitingu starfsleyfis sem sálfræðingur

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis sem synjaði kæranda um starfsleyfi sem sálfræðingur. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun embættisins.

    18. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Landspítalinn er bakhjarl heilbrigðisþjónustunnar

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um hlutverk Landspítalans í grein í Fréttablaðinu í dag sem bakhjarl heilbrigðisþjónustu um land allt: „Gott samfélag þarf gott heilbrigðiskerfi og gott heilbrigðiskerfi þarf sterkt móðursjúkrahús. Landspítalinn er slík stofnun“ skrifar heilbrigðisráðherra meðal annars í grein sinni.

    15. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjölgun sálfræðinga í almenna heilbrigðiskerfinu

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fjallar um fjölgun sálfræðinga í almenna heilbrigðiskerfinu í blaðagrein í Morgunblaðinu í dag og eflingu geðheilbrigðisþjónustunnar. Hún segir skýrt ákall í samfélaginu um að þjónusta sálfræðinga verði hluti af hinu almenna opinbera heilbrigðiskerfi.

    08. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Umsækjendur um Embætti landlæknis

    Sex sóttu um Embætti landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar á liðnu ári. Umsóknarfrestur rann út 4. janúar síðastliðinn.

    05. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heimsókn heilbrigðisráðherra á Landspítala

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti sér ýmsa þætti í starfsemi Landspítalans þegar hún heimsótti sjúkrahúsið í gær, auk þess sem hún átti fund með framkvæmdastjórn sjúkrahússins.

    05. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýr heilbrigðisstefna með jöfnuð að leiðarljósi

    Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir eitt mikilvægasta verkefnið framundan að móta skýra og markvissa heilbrigðisstefnu sem verði hluti af samfélagssáttmála og snúist um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag eða búsetu fólks og tryggi skynsamlega nýtingu almannfjár. Slík stefna þurfi jafnframt að lifa af kosningar og breytingar á landsstjórninni.

    03. jan. 2018Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Gjaldfrjálsar tannlækningar barna komnar að fullu til framkvæmda

    Öll börn með skráðan heimilistannlækni eiga nú rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum samkvæmt samningi þar að lútandi. Gjaldfrjálsar tannlækningar barna hafa verið innleiddar í áföngum og lauk inneiðingunni 1. janúar sl. þegar börn yngri en þriggja ára öðluðust rétt samkvæmt samningnum.

    22. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Framlög til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni aukin um 450 m.kr.

    Ákveðið hefur verið að auka framlög til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni sem nemur 450 milljónum króna umfram það sem áður var gert ráð fyrir í fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt fram tillögu þessa efnis og er hún til umfjöllunar við aðra umræðu um fjárlög næsta árs sem nú stendur yfir á Alþingi.

    21. des. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin framlög til heilbrigðisstofnana um allt land

    Framlög til heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum landsins verða aukin um 6,8% á næsta ári. Heildaraukningin nemur tæpum 1,5 milljarði króna.

    20. des. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Fjárlagafrumvarpið: Aukin framlög til heilbrigðismála

    Framlög til heilbrigðismála verða aukin um 21,5 milljarð króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Sjúkrahúsþjónustan verður styrkt, geðheilbrigðisþjónusta sömuleiðis, þverfaglegt starf í heilsugæslu verður eflt og áhersla er lögð á að bregðast við útskriftarvanda Landspítalans.

    23. nóv. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leiðir faglega þróun

    Heilbrigðisráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um heilsugæslustöðvar sem felur í sér að Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er falið að leiða faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu.

    13. nóv. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla OECD; Health at a Glance 2017, er komin út

    Í skýrslunni er m.a. fjallað um heilbrigðisástand aðildarríkja stofnunarinnar, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, gæði, útgjöld, mannafla, lyfjamál, öldrun, ýmsa áhrifaþætti heilbrigðis og fleira.

    03. okt. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Heilsa og líðan Íslendinga könnuð í fjórða sinn

    Embætti landlæknis stendur nú fyrir viðamikilli rannsókn á heilsu og líðan landsmanna. Þetta er í fjórða sinn sem þessi rannsókn er gerð. Leitað verður til tíu þúsund Íslendinga á næstu dögum og þeir beðnir um að svara spurningalista um heilsu og líðan sína.

    20. sep. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Almannaöryggi

    Þátttaka í almennum bólusetningum óviðunandi að mati sóttvarnalæknis

    Þátttaka barna við 12 mánaða aldur og fjögurra ára aldur í almennum bólusetningum var töluvert lakari árið 2016 en árið á undan samkvæmt nýrri skýrslu sóttvarnalæknis. Minnki þátttakan enn frekar telur hann líkur á að hér geri vart við sig sjúkdómar sem ekki hafa sést um árabil.

    20. sep. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Drög að reglugerð um skipulag vísindarannsókna á heilbrigðissviði til umsagnar

    Velferðarráðuneytið birtir hér með til umsagnar drög að nýrri reglugerð um skipulag vísindarannsókna á heilbrigðissviði. Frestur til að skila umsögnum er til 20. október nk. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að siðfræðileg og vísindaleg sjónarmið séu höfð í heiðri og persónuverndar gætt við framkvæmd slíkra rannsókna.

    13. sep. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Heilbrigðismál: Bætt aðgengi að þjónustu forgangsverkefni

    Fjárlagafrumvarpið endurspeglar stefnu stjórnvalda í heilbrigðismálum með áherslu á uppbyggingu Nýs Landspítala, eflingu geðheilbrigðisþjónustu, bætt aðgengi að grunnþjónustunni og verkefni sem miða að því að styrkja lýðheilsu segir Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.

    12. sep. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Stóraukið fé til uppbyggingar Nýs Landspítala og innviðir styrktir

    Framlög til byggingar nýs Landspítala verða aukin um 1,5 milljarða króna á næsta ári umfram það sem ráðgert var í fjármálaáætlun ríkisins. Heildarútgjöld til heilbrigðismála árið 2018 verða tæpir 208 milljarðar króna sem er 13,5 milljarða króna aukning frá fyrra ári eða 6,9%.

    08. sep. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Skýrsla landlæknis um tíðni aðgerða í einkarekinni þjónustu

    Embætti landlæknis hefur rannsakað tíðni tiltekinna aðgerða í einkarekinni heilbrigðisþjónustu undanfarin tíu ár og eru niðurstöður þeirrar könnunar birtar í nýrri skýrslu embættisins. Að mati embættisins leiða niðurstöðurnar í ljós vísbendingar um oflækningar í heilbrigðisþjónustunni.

    31. ágú. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa, Utanríkismál, Norrænt samstarf

    Fundur vestnorrænna heilbrigðisráðherra í Nuuk

    Heilbrigðisráðherrar Færeyja, Grænlands og Íslands hittust í Nuuk á Grænlandi dagana 29. og 30. ágúst á reglubundnum fundi heilbrigðisherra þessara landa.

    28. ágú. 2017Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna ákvörðunar Embættis landlæknis um staðfestingu synjunar IVF Klíníkurinnar á uppsetningu á fósturvísi

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis um staðfestingu á synjun IVF-klíníkurinnar á uppsetningu frysts fósturvísis hjá kæranda A. Ráðuneytið felldi ákvörðun landlæknis úr gildi og heimildir til uppsetningar á fósturvísum kæranda A voru staðfestar.

    21. ágú. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Líf og heilsa

    Fyrirkomulag þjónustu við fólk með heyrnar- og talmein til skoðunar

    Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir fyrirkomulag þjónustu við fólk með heyrnarskerðingu og talmein, skoða hvort og hvernig megi bæta hana og gera tillögu að skipulagi þjónustunnar til framtíðar.

    13. júl. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Gæðavísar við mat á gæðum og árangri í heilbrigðisþjónustu

    Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um breytingu á reglugerð um gerð gæðavísa sem notaðir eru til að meta gæði og árangur innan heilbrigðisþjónustunnar. Breytingarnar snúa að vali á gæðavísum og kröfum um birtingu upplýsinga um niðurstöður þeirra.

    12. júl. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Staða á biðlistum eftir völdum aðgerðum

    Embætti landlæknis hefur birt greinargerð með upplýsingum um fjölda á biðlistum eftir völdum aðgerðum. Í greinargerðinni er sérstaklega fjallað um árangur af skipulögðu átaki til að stytta bið sjúklinga eftir tilteknum brýnum aðgerðum sem hófst árið 2016.

    07. júl. 2017Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillaga að íslenskri krabbameinsáætlun til ársins 2020 – Notendamiðuð þjónusta í öndvegi

    Skýrsla ráðgjafarhóps með tillögu til heilbrigðisráðherra um íslenska krabbameinsáætlun til ársins 2020, ásamt stuttri samantekt.

    07. júl. 2017Rit og skýrslur, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillaga að íslenskri krabbameinsáætlun til ársins 2020 – Notendamiðuð þjónusta í öndvegi

    Skýrsla ráðgjafarhóps með tillögu til heilbrigðisráðherra um íslenska krabbameinsáætlun til ársins 2020, ásamt stuttri samantekt.

    07. júl. 2017Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál, Lýðheilsa og forvarnir, Líf og heilsa

    Tillaga að íslenskri krabbameinsáætlun - forgangsröðun og framkvæmd verkefna

    Skýrsla ráðgjafarhóps með tillögu til heilbrigðisráðherra um íslenska krabbameinsáætlun til ársins 2020 hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins. Verkefnisstjórn verður falið að móta framkvæmd og eftirfylgni hennar og gera tillögu um forgangsröðun verkefna á grundvelli fjárheimilda.

    29. jún. 2017Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið, Heilbrigðismál

    Fjölgun sálfræðinga í heilsugæslu skilar árangri

    Biðtími eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur styst um marga mánuði í kjölfar þess að fjármagn var aukið til að fjölga sálfræðingum í samræmi við stefnu og aðgerðaáætlun Alþingis í geðheilbrigðismálum.

    17. mar. 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks

    Niðurstöður úttektar á öldrunarþjónustu - tillögur til heilbrigðisráðherra

    <p>Velferðarráðuneytið birtir hér með niðurstöður úttektar á öldrunarþjónustu sem unnin var af hálfu verkefnisstjórnar sem þáverandi heilbrigðisráðherra skipaði í september 2015. Verkefnisstjórninni var m.a. falið að greina þann hluta öldrunarþjónustu sem fellur undir heilbrigðismál.</p>

    30. nóv. 2016Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um almennt eða tímabundið lækningaleyfi

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis um að synja kæranda um almennt eða tímabundið lækningaleyfi. Ráðuneytið felldi ákvörðun landlæknis úr gildi.

    23. sep. 2016Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um starfsleyfi sem sjúkraþjálfari

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis að synja kæranda um starfsleyfi sem sjúkraþjálfari. Ráðuneytið felldi ákvörðunina úr gildi og lagði það fyrir landlækni að taka mál kæranda til meðferðar að nýju.

    21. jún. 2016Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um sérfræðingsleyfi í hjúkrun

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis að synja kæranda um sérfræðingsleyfi í hjúkrun. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun landlæknis.

    01. jan. 2016Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kröfulýsing vegna rekstrar heilsugæsluþjónustu, 1,0

    janúar 2016 / Heilbrigðisráðuneytið Kröfulýsing vegna rekstrar heilsugæsluþjónustu, 1,0 Kröfulýsing vegna rekstrar heilsugæsluþjónustu, 1,0

    18. des. 2015Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um veitingu starfsleyfis sem sjúkraþjálfari

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis að synja kæranda um starfsleyfi sem sjúkraþjálfari. Ráðuneytið felldi ákvörðunina úr gildi og lagði það fyrir landlækni að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.

    18. nóv. 2015Úrskurðir, Úrskurðir velferðarráðuneytisins 2011-2018, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Kæra vegna synjunar Embættis landlæknis um veitingu starfsleyfis sem náttúrufræðingur

    Kærð var ákvörðun Embættis landlæknis að synja kæranda um starfsleyfi sem náttúrufræðingur í heilbrigðisþjónustu. Ráðuneytið felldi ákvörðunina úr gildi og lagði það fyrir landlækni að taka umsókn hennar til nýrrar meðferðar.

    • First
    • Prev
    • 7
    • 8
    • 9
    • 10
    • 11
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband