3. nóvember 2026 /
Fastanefnd Íslands í Róm

Norræn sendinefnd til Sýrlands og Líbanons

{image.Description}

Norræna sendinefnd til Sýrlands og Líbanons

Í lok október 2026 bauð Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) fulltrúum norrænu fastanefndanna í Róm og utanríkisráðuneytum þeirra í vettvangsferð til Sýrlands og Líbanons. Tilgangurinn var að kynna fyrir þeim ástand mannúðarmála á svæðinu og sér í lagi starfsemi stofnunarinnar í löndunum tveimur. Guðmundur Árnason, sendiherra í Róm og fastafulltrúi gagnvart Rómarstofnunum SÞ, fór fyrir nefndinni, og Jónas Haraldsson, yfirmaður mannúðaraðstoðar í utanríkisráðuneytinu, tók þátt í heimsókninni til Líbanon.

Í ferðinni gafst tækifæri til að kynna sér hvernig WFP vinnur gegn fæðuóöryggi, styður viðkvæma hópa, eflir lífsviðurværi og stuðlar að langtímauppbyggingu og auknum viðnámsþrótti samfélaga.

Í Sýrlandi heimsótti sendinefndin m.a. Aleppó, Damaskus, Idlib og Hama-hérað og kynnti sér þær áskoranir sem samfélögin standa frammi fyrir í því brothætta endurreisnarferli sem hófst eftir lok átakanna. Þar var áherslan á matvælaaðstoð, viðleitni til aukinnar fæðuframleiðslu og eflingar fæðuöryggis. Í Sýrlandi hafa almenn eyðilegging og skemmdir á innviðum, mannvirkjum og heimilum fólks staðið í vegi fyrir því að það geti aftur flust til fyrri heimkynna.

Í Líbanon beindist athyglin að afleiðingum átaka og efnahagslegra áfalla, og mannúðaraðstoð WFP til stuðnings viðkvæmum hópum, þar á meðal flóttafólki frá Vesturbakkanum og Sýrlandi.

Heimsóknin undirstrikaði mikilvægi markvissrar áframhaldandi mannúðaraðstoðar og öflugs samstarfs fjölþjóðastofnana til að bæta skilyrði þeirra sem búa við afar ótryggar aðstæður á svæðinu og til að skapa þar viðunandi lífsskilyrði. Margt gengur vel og til að mynda hefur framleiðsla á korni aukist og mætir nú að mestu innanlandsþörf í Sýrlandi.

Sameiginlega eru Norðurlöndin meðal allra mikilvægustu bakhjarla Matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna og samstarf þeirra um málefni stofnunarinnar verður æ nánara.

Var efnið hjálplegt?