Gott að eldast

Íslenska þjóðin er að eldast. Á næstu tíu árum mun fólki sem er yfir áttrætt fjölga um 44%.

En það er ekki öll sagan. Eldra fólk er virkara, hraustara og hefur meira fram að færa en nokkru sinni fyrr.

Í þessari þróun felast ekki aðeins áskoranir heldur líka fjölmörg tækifæri til að byggja upp samfélag þar sem fólk getur notið lífsgæða, tekið virkan þátt og blómstrað á öllum æviskeiðum.

Til þess þurfum við að hugsa hlutina upp á nýtt og  þróa þjónustu í takt við breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar, brjóta niður hindranir og skapa aðstæður sem mæta fjölbreyttum þörfum og óskum eldra fólks.

Sú vegferð er þegar hafin undir yfirskriftinni Gott að eldast. Með því verkefni taka stjórnvöld nýja stefnu í málefnum eldra fólks, þar sem tækifæri, lífsgæði og virk þátttaka eru í forgrunni.

Því að gott samfélag er samfélag þar sem gott er að eldast.

Fléttum saman þjónustuna

Meginþungi aðgerða liggur í þróunarverkefnum sem ganga út á að:

  • finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk
  • flétta saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin

Sömuleiðis eru aðgerðir í gangi sem hverfast um:

  • heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu
  • sveigjanlega þjónustu
  • bættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk

Allar aðgerðir miða að því að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst.

Aðgerðaáætlun 2023-2027Upplýsingagátt á Ísland.is

Sögur úr sex sveitarfélögum þar sem þróunarverkefni eru í fullum gangi

Mosfellsbær

Dalvík

Árborg

Hveragerði

Hvammstangi

Vesturbyggð

Þjónusta við eldra fólk í heimahúsi

Opnað hefur verið gagnvirkt mælaborð með upplýsingum um þjónustu við eldra fólk í heimahúsum. Tilgangur þess er að veita betri yfirsýn yfir félags- og heilbrigðisþjónustu sem veitt er af hálfu ríkis og sveitarfélaga.
Opna mælaborðið í nýjum glugga

Þróunarverkefni Gott að eldast: Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka þátt

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka nú þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið auglýstu eftir slíku samstarfi við sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir og var áhugi fyrir þátttöku mjög mikill.

Kostnaðar- og ábatagreining

KPMG hefur sett upp gagnvirkt mælaborð sem inniheldur tölulegar upplýsingar og útreikninga. Kostnaðar- og ábatagreiningin sýnir með skýrum hætti að eldra fólk er virði en ekki byrði.

Nánar um verkefnið

Verkefnið Gott að eldast er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og er unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband eldri borgara, auk fjölda annarra hagaðila.

Verkefnastjórn var skipuð sumarið 2022 og hefur unnið að mótun ofangreindrar aðgerðaáætlunar.

Var efnið hjálplegt?