Samstarf við félagasamtök

Utanríkisráðuneytið hefur um árabil átt í góðu samstarfi við félagasamtök, en þau gegna veigamiklu hlutverki við að framfylgja stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu. Nálægð við grasrótina, víðtæk reynsla og fjölbreytt verkefni á vettvangi gera þau að mikilvægum samstarfsaðilum í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð.

Unnið er í samræmi við eftirfarandi lykil stefnur og skjöl:

Stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnuStefnumið hvað varðar samstarf við félagasamtökTilmæli OECD-DAC varðandi samstarf við borgarasamfélagið

Áherslur í samstarfi við félagasamtök

Stuðningur við verkefni félagasamtaka tekur mið af áherslum í stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og stuðlar að framgangi markmiða hennar. Samstarf við félagasamtök er ætlað að auka fjölbreytni verkefna sem styðja við framkvæmd stefnu stjórnvalda í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð, stuðla að virkri þátttöku íslenskra félagasamtaka í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og efla borgaralegt samfélag í samstarfsríkjum. Samstarfinu er jafnframt ætlað að efla stofnanagetu íslenskra félagasamtaka og styðja við fræðslu- og kynningarstarf um þróunarsamvinnu meðal almennings á Íslandi.

Styrkir til félagasamtaka

Utanríkisráðuneytið auglýsir reglulega eftir umsóknum um styrki til þróunarsamvinnuverkefna, þ.m.t. nýliðaverkefna, skammtíma verkefna og langtíma verkefna. Einnig geta félög sótt um kynningar- og fræðslustyrki. Styrkir til félagasamtaka til mannúðaraðstoðar eru bundnir við rammasamninga og ekki auglýstir sérstaklega.
Nánari upplýsingar á umsóknarsíðu vegna styrkja til félagasamtaka

Verkefni félagasamtaka

Verkefni félagasamtaka og yfirlit yfir stuðning má finna á www.openaid.is

Sjá einnig

Var efnið hjálplegt?