Þverlægar áherslur

Mannréttindi og jafnrétti kynjanna annars vegar og umhverfis- og loftslagsmál eru skilgreind sem sértæk og þverlæg áhersluatriði í stefnu íslenskra stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu og eru höfð að leiðarljósi í öllu starfi.

Mannréttindi

Nálgun Íslands í þróunarsamvinnu byggist á mannréttindum og tekur hún mið af mannréttindamiðaðri aðferðafræði samkvæmt bestu alþjóðlegu starfsvenjum. Í því felst að gerð sé grein fyrir þeirri mismunun og ójöfnuði sem liggur að baki margra þeirra áskorana sem samstarfsríki glíma við og að verkefni íslenskrar þróunarsamvinnu stuðli að bættri stöðu mannréttinda. Þá er aukin áhersla á bætta lagalega og félagslega stöðu berskjaldaðs fólks í þróunarríkjum, þ.á.m. hinsegin fólks og fólks með fötlun, og veita íslensk stjórnvöld framlög til alþjóðlegra frjálsra félagasamtaka sem aftur styðja við grasrótarsamtök hinsegin fólks í þróunarríkjum.

Jafnrétti

Jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna er forgangsmál í starfinu, en sú áhersla byggir ekki síst á reynslu Íslands sem staðfestir að virðing fyrir mannréttindum, jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna og stúlkna séu undirstaða framfara, velsældar og efnahagsþróunar. Valdefling kvenna er áhrifarík leið til að takast á við fjölþáttaáskoranir samtímans, en afleiðingar átaka, loftslagsvár eða efnahagskreppa komi einatt verr niður á konum, ekki síst í fátækum ríkjum. Ísland leggur m.a. áherslu á valdeflingu kvenna og stúlkna, eflingu borgaralegra réttinda, bætt kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi, útrýmingu kynbundins og kynferðislegs ofbeldis og aukna þátttöku karla og drengja í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna.

Ísland fylgir stefnumiðum í jafnréttis- og mannréttindamálum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Umhverfis- og loftslagsmál

Hnattrænar loftslagsbreytingar ógna velsæld fólks og jarðar, en fátækustu ríkin, viðkvæmustu samfélagshóparnir og vistkerfin glíma við hvað verstar afleiðingarnar. Þróunarsamvinna Íslands leggur því áherslu á að vernda jörðina og koma í veg fyrir hnignun hennar. Aukinn slagkraft í loftslags- og umhverfismálum í þróunarsamvinnu Íslands má sjá í auknum stuðningi við alþjóðlegar stofnanir sem starfa að þessum málaflokki; aðgerðum gegn mengun hafsins ásamt markvissu starfi til að tengja mótvægis- og aðlögunaraðgerðir við þróunarsamvinnuverkefni.

Ungliðastöður á vegum Sameinuðu þjóðanna (e. Junior Professional Officers)

Á vegum Sameinuðu þjóðanna er starfrækt ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officer Programme) þar sem ungu og efnilegu fólki er gefið tækifæri á að öðlast starfsreynslu hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Oftast er um að ræða P2-stöðugildi þar sem kröfur eru gerðar um að umsækjendur hafi lokið meistaragráðu á viðeigandi sviði, séu með a.m.k. tveggja ára tengda starfsreynslu og ekki eldri en 32 ára.

Utanríkisráðuneytið hefur iðulega lagt áherslu á að manna stöður í þróunarlöndum, fremur en í höfuðstöðvum.

Ungliðastöður eru auglýstar reglulega og birtist þá hlekkur inn á Starfatorg á þessari síðu þar sem hægt er að sækja um.

Almennar upplýsingar um ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum.

JPO Service Centre-

Þverlægar áherslur

Var efnið hjálplegt?