Fjölþjóðleg þróunarsamvinna

Samstarf við alþjóðastofnanir er lykilþáttur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og veita íslensk stjórnvöld stuðning ýmist með fjárframlögum eða málsvarastarfi. Fjárframlög eru einkum veitt í formi kjarnaframlaga eða eyrnamerktra framlaga til tiltekinna verkefna, landa eða þematískra áherslusviða. Kjarnaframlög gera stofnunum kleift að starfa í takt við stefnur sínar og áætlanir og bregðast við þar sem þörfin er mest eða þegar neyð skapast. Áhersla er lögð á virka þátttöku og eftirlit íslenskra stjórnvalda og vel skilgreindar áherslur svo hámarka megi áhrif og árangur af framlögum íslenskra stjórnvalda. Jafnframt styðja íslensk stjórnvöld við starf alþjóðastofnana með framlagi íslenskra sérfræðinga til starfa á vettvangi.

Í samræmi við stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028 er áhersla lögð á störf fjögurra stofnana í alþjóðlegri þróunarsamvinnu: Alþjóðabankans (World Bank), Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Starfað er eftir stefnumiðum í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

Íslensk stjórnvöld styðja við Úkraínu á sviði þróunarsamvinnu og er efnahags-og mannúðaraðstoð við Úkraínu gerð skil á upplýsingasíðu um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við innrás Rússlands í Úkraínu. Stuðning Íslands við Palestínu er sömuleiðis að finna á uppplýsingasíðu Stjórnarráðsins.

Sjá einnig

Var efnið hjálplegt?