Alþjóðabankinn (The World Bank Group)
Alþjóðabankinn er ein af fjórum áherslustofnunum Íslands á sviði fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu en bankinn er meðal stærstu og áhrifamestu alþjóðastofnana á sviði þróunarsamvinnu í heiminum. Meginmarkmið hans er að útrýma sárafátækt og stuðla að aukinn hagsæld og velmegun á lífvænlegri plánetu (e. end extreme poverty and boost shared prosperity on a livable planet). Stofnanir bankans vinna sameiginlega að þessum markmiðum en jafnframt styður bankinn við framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Alþjóðabankinn starfar með stjórnvöldum aðildarríkja og veitir þróunarríkjum stuðning í formi lána, styrkja og ráðgjafar. Ísland á víðtækt samráð við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin um stefnumótun innan Alþjóðabankans en þessi lönd mynda sameiginlegt kjördæmi og deila stjórnarsæti í stjórn bankans, en í stjórninni sitja tuttugu og fimm aðalfulltrúar. Stjórn bankans kemur að stefnumótun , hefur eftirlit með starfseminni og tekur fyrir lán- og styrkveitingar til þróunarríkja.
Alþjóðabankasamsteypan (World Bank Group) samanstendur af fimm stofnunum:
- Alþjóðabanki til enduruppbyggingar og framþróunar (International Bank for Reconstruction and Development - IBRD), stofnaður 1945. IBRD veitir lán með niðurgreiddum markaðsvöxtum til landa í Austur Evrópu og til þróunarríkja sem ekki eru á meðal hinna fátækustu.
- Alþjóðaframfarastofnunin (International Development Association - IDA) stofnuð 1960. IDA er sú stofnun innan Alþjóðabankasamsteypunnar sem aðstoðar fátækustu þróunarríkin með styrkjum, hagstæðum lánum og ábyrgðum til þróunarverkefna, auk ráðgjafar.
- Alþjóðalánastofnunin (International Finance Corporation - IFC) stofnuð 1956. IFC er stærsta alþjóðlega þróunarstofnunin sem einblínir sérstaklega á einkageirann í þróunarlöndum.
- Fjölþjóðlega fjárfestingarábyrgðarstofnunin (Multilateral Investment Guarantee Agency - MIGA) stofnuð 1989. MIGA veitir ábyrgðir vegna fjárfestinga einkaaðila í þróunarlöndum gegn áföllum sem ekki eru viðskiptalegs eðlis.
- Alþjóðastofnunin um lausn fjárfestingardeilna (International Center for Settlement of Investment Disputes – ICSID) stofnuð 1966. ICSID veitir aðstoð til sáttagerðar og gerðardóma í lausnum fjárfestingardeilna og stuðlar þannig að gagnkvæmu trausti milli ríkja og erlendra fjárfesta.
Höfuðstöðvar Alþjóðabankans eru í Washington DC, en bankinn er jafnframt með starfsstöðvar í yfir 130 löndum víðsvegar um heiminn. Hjá bankanum starfa rúmlega tíu þúsund starfsmenn frá um 170 ríkjum. Aðildarríki bankans eru 189 talsins.
Alþjóðaframfarastofnunin
Vatnsdæla nálægt Ulandi, Suður-Afríku (Mynd: Trevor Samson/World Bank)
Stór hluti framlaga Íslands til Alþjóðabankans fer til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (International Development Association, IDA) sem er sú stofnun bankans sem veitir fátækustu löndum heims styrki og lán á hagstæðum kjörum, auk ráðgjafar. Þá veita íslensk stjórnvöld stuðning til sömu ríkja í gegnum áætlun Alþjóðaframfarastofnunarinnar um niðurfellingu skulda fátækustu ríkjanna. Samningaviðræðum um 21. endurfjármögnun IDA lauk undir lok árs 2025 þar sem ákveðið var að 100 milljörðum bandaríkjadala skyldi varið í stuðning til fátækustu landa heims á tímabili IDA21, sem er umfangsmesti stuðningurinn til þessa. Ísland leggur rúmlega 2,2 milljarða króna til IDA21 á tímabilinu 2026-2028.
Tvíhliða samstarf við Alþjóðabankann
Í samstarfi sínu við Alþjóðabankann leggur Ísland sérstaka áherslu á jarðhita og endurnýjanlega orku, málefni hafsins, jafnrétti kynjanna, mannréttindi, málefni hinsegin fólks, sem og til sjóða bankans sem vinna sérstaklega að uppbyggingu í Úkraínu og Palestínu.
Mannréttindi
Nemendur í enskutíma í Zanaki grunnskólanum í Dar es Salaam, Tansaníu (Mynd: Sarah Farhat / World Bank).
Mannréttindamál ein af megináherslum Íslands í tvíhliða samstarfi við Alþjóðabankann og Ísland hefur frá árinu 2006 veitt framlög til mannréttindasjóðs bankans (Human Rights Trust Fund, HRTF) sem hefur það að markmiði að efla starfsemi bankans, ekki sístí óstöðugum ríkjum og á átakasvæðum
Málefni hafsins
Ísland leggur áherslu á málefni hafsins í þróunarsamvinnu, þar með talið verndun sjávar og sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins. Samstarf íslenskra stjórnvalda og Alþjóðabankans á þessu sviði er þríþætt: fjárframlög til ProBlue sjóðs bankans, fjármögnun á stöðu fiskisérfræðings innan bankans og stuðningur við verkefni bankans með íslenskri sérfræðiþekkingu í gegnum ráðgjafalista utanríkisráðuneytisins.. Öflug þátttaka Íslands í ProBlue sjóðnum styrkir almennt samstarf við bankann á sviði málefna hafsins og skapar fleiri tækifæri til að miðla íslenskri þekkingu til verkefna á þessu sviði.
Jarðhiti og endurnýjanleg orka
Ísland hefur um árabil stutt orkusjóð bankans (e. Energy Sector Management Assistance Program, ESMAP), með þríþættum hætti. Stuðningurinn felst í framlögum til sjóðsins, fjármögnun á stöðu íslensks jarðhitasérfræðings hjá bankanum og stuðningi við verkefni sjóðsins í gegnum ráðgjafalista utanríkisráðuneytisins. ESMAP hefur reynst einn mikilvægasti vettvangur bankans til að auka efla getu bankans og samstarfsríkja til verkefna og fjárfestinga á endurnýjanlegri orku, þar á meðal jarðhita . Í tengslum við ESMAP og jarðhitaverkefni Alþjóðabankans leggur Ísland einnig til tæknilega aðstoð jarðhitasérfræðinga við tiltekna afmarkaða þætti innan stærri verkefna sem bankinn eða viðskiptavinir hans eru með í undirbúningi eða framkvæmd.
Þá styður Ísland einnig við vatnsaflsverkefni á vegum ESMAP en Ísland býr yfir víðtækri þekkingu á því sviði sem nýst getur víða um heim.
Jafnréttismál
Helina (25 ára) vinnur fyrir byggingarverktaka í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu (Mynd: Stephan Gladieu / World Bank).
Ísland hefur lengi stutt við jafnréttismál innan bankans m.a. við Jafnréttissjóð bankans (e. Umbrella Facility for Gender Equality, UFGE), sem gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun bankans hvað varðar kynjajafnrétti og samþættingu jafnréttissjónarmiða. Hefur vinna á vegum sjóðsins gegnt lykilhlutverki í innleiðingu jafnréttisstefnu Alþjóðbankans sem nær til allrar starfsemi bankans á vettvangi. Einnig styðja íslensk stjórnvöld við jafnréttisverkefnið Women, Business and the Law bæði með fjárframlagi og útsendum jafnréttissérfræðingi. Ráðgjafalisti utanríkisráðuneytisins í jafnréttismálum standa einnig bankanum til boða í tengslum við tæknilega aðstoð í jafnréttismálum.
Íslensk stjórnvöld styðja einnig við starf teymis Alþjóðabankans í málefnum hinsegin fólks (Sexual Orientation and Gender Identity, SOGI) með fjárframlagi og í málsvarastarfi. SOGI-teymið vinnur að því að tryggja að réttindi hinsegin fólks séu virt og vernduð í starfsemi bankans og samstarfsríkjum hans, sem og að sinna greiningarvinnu um efnahagslegar afleiðingar útilokunar hinsegin fólks á hagkerfi þróunarríkja.
Stuðningur við Palestínu
Árið 2025 hófu íslensk stjórnvöld því stuðning við heimastjórn Palestínu (e. Palestinian Authority) gegnum Palestínusjóð Alþjóðabankans (e. Palestinian Fund for Reconstuction and Development, PFRD). Auk þess eru veitt framlög til sjóðs Alþjóðabankans sem vinnur að uppbyggingu innviða í Palestínu (Palestinian Partnership for Infrastructure Trust Fund, PID).
Stuðningur við Úkraínu
Alþjóðabankinn gegnir lykilhlutverki við uppbyggingu innviða og viðhald grunnþjónustu og efnahagskerfis Úkraínu. Ísland veitir framlög til Úkraínusjóðs bankans, URTF (e. Ukraine Relief, Recovery, Reconstruction and Reform Trust Fund), sem samhæfir fjárhagslegan stuðning við Úkraínu og vinnur náið með öðrum stofnunum, og SPUR 2.0 (e. Special Programme for Ukraine and Moldova Recovery) sem snýr að því að auka útlánagetu bankans til Úkraínu.
Fjölþjóðleg samvinna
Sjá einnig
Sjóðir innan Alþjóðabankans
Sjóðir innan Alþjóðabankans sem Ísland hefur stutt sérstaklega:
PROBLUEEnergy Sector Management Assistance Program (ESMAP)Umbrella Facility for Gender Equality (UFGE) Human Rights, Inclusion and Empowerment Umbrella Trust Fund (HRIETF)Ukraine Relief, Recovery, Reconstruction and Reform Trust Fund (URTF)Var efnið hjálplegt?