UN Women

 

Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti (UN Women) er í fararbroddi í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna á heimsvísu og er eina stofnun SÞ sem vinnur eingöngu að jafnrétti kynjanna. UN Women starfar á vettvangi, sinnir samræmingarhlutverki meðal stofnana SÞ og er leiðandi í stefnumótun SÞ á alþjóðavettvangi um málaflokkinn. Jafnrétti kynjanna er bæði sértæk og þverlæg áhersla í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands og stuðningur við UN Women mikilvægur þáttur í framfylgd stefnunnar.

Í gildi er rammasamningur milli íslenskra stjórnvalda og UN Women og leggja íslensk stjórnvöld áherslu á að veita kjarnaframlög og að halda eyrnamerkingum framlaga í lágmerki. Með því getur stofnunin brugðist hraðar við breyttum aðstæðum og forgangsraðað verkefnum betur. Þó veitir Ísland sérstök framlög til verkefnis UN Women sem veitir stuðning við Sýrlenskar flóttakonur í Jórdaníu og til landsskrifstofu stofnunarinnar í Afganistan. Þá styðja íslensk stjórnvöld einnig við sértækt verkefni um kvenleiðtoga og verkefni sem miðar að virkjun karla og drengja í jafnréttisbaráttunni. Auk þess eru veitt framlög til Women‘s Peace and Humanitarian Fund í Afganistan og Úkraínu en sjóðurinn veitir framlög til frjálsra félagasamtaka á löndunum. Þá er samstarf við UN Women í Malaví um verkefni sem miðar að útrýmingu barnahjónabanda og í Síerra Leóne þar sem stutt er við héraðsyfirvöld við innleiðingu nýrrar jafnréttislöggjafar. Sjá nánar um samstarf við UN Women í tvíhliða þróunarsamvinnu.

Loks styður ráðuneytið við kynningar- og, fræðslustarf landsnefndar UN Women á Íslandi með sérstökum rammasamningi.

Sjá einnig

Var efnið hjálplegt?