Barnahjálp SÞ (UNICEF)
Hlutverk Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) er að bæta hag barna og ungs fólks. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er grunnurinn að starfi stofnunarinnar. Styrkur UNICEF felst í kraftmiklu starfi á vettvangi í 190 löndum, bæði í þróunarríkjum og með starfsemi landsnefnda. UNICEF hefur mikla reynslu af starfi meðal barna og ungs fólks sem miðar að því að tryggja félagsleg réttindi þeirra. Starfsemi UNICEF er í eðli sínu þverfagleg en mikil áhersla er lögð á verkefni á sviði heilbrigðis- og menntamála og neyðaraðstoðar, auk þess sem umbætur í vatns- og hreinlætismálum eru á forgangslista stofnunarinnar.
Í gildi er rammasamningur milli íslenskra stjórnvalda og UNICEF sem veitir heildstæða umgjörð um samstarfið. Kjarnaframlög til stofnunarinnar hafa hækkað jafnt og þétt en þau efla UNICEF og gera stofnuninni kleift að haga starfseminni í takt við stefnumótun og þarfir hverju sinni, og forgangsraða vinnunni svo tryggja megi réttindi og bæta kjör barna um heim allan. Jafnframt veitir Ísland framlög í jafnréttissjóð UNICEF sem leggur áherslu á menntun stúlkna í óstöðugum ríkjum, sérstaklega tæknimenntun. Einnig hafa íslensk stjórnvöld stutt við samstarfsverkefni UNICEF og UNFPA um afnám limlestinga á kynfærum kvenna og stúlkna frá árinu 2011. Þá er veittur stuðningur til verkefnis UNICEF um Barnahús í Úkraínu, sem byggir á íslenskri fyrirmynd.
Viðamikið samstarf er við UNICEF í öllum tvíhliða samstarfsríkjum Íslands þar sem áhersla er vatns- og hreinlætisverkefni. Auk þess er í Malaví samstarf um menntun án aðgreiningar í samstarfshéruðum og í Úganda er Ísland bakhjarl verkefnis UNICEF um stuðning við unglingsmæður og börn þeirra í tveimur héruðum í vesturhluta landsins. Sjá nánar um samstarf við UNICEF í tvíhliða þróunarsamvinnu
Þá styður ráðuneytið við kynningar- og fræðslustarf landsnefndar UNICEF á Íslandi með sérstökum rammasamningi.
Fjölþjóðleg samvinna
Var efnið hjálplegt?