20 júní 2017Mennta- og barnamálaráðuneytiðInnritun nýnema í framhaldsskóla fyrir haustönn 2017Lítið vantar upp á að allir þeir sem luku námi í grunnskóla í vor hafi innritað sig í framhaldsskóla í haust.
20 júní 2017DómsmálaráðuneytiðAuðkenni Jafnréttissjóðs ÍslandsSérstakt auðkennismerki sem hannað hefur verið fyrir Jafnréttissjóð Íslands var kynnt í gær, kvenréttindadaginn 19. júní, samhliða úthlutun styrkja úr sjóðnum. Hönnuður merkisins er Sóley Stefánsdóttir, grafískur hönnuður.
20 júní 2017Forsætisráðuneytið, UtanríkisráðuneytiðRíkisstjórnin styður Grænlendinga í kjölfar berghlaupsRíkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra og utanríkisráðherra, að veitt verði 40 milljóna króna framlag til Grænlendinga í kjölfar þess gríðarlega tjóns, sem varð í kjölfar berghlaups í Karrat firði í sveitarfélaginu Qaasuitsup á vesturströnd Grænlands sl. laugardag, 17. júní.
20 júní 2017DómsmálaráðuneytiðDómsmálaráðherra sótti prestastefnu í ÞýskalandiDómsmálaráðherra flutti ávarp við setningu prestastefnu sem að þessu sinni var haldin í Wittenberg í Þýskalandi 6. júní sl.
19 júní 2017ForsætisráðuneytiðÁvarp forsætisráðherra við úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs 19. júní 2017
19 júní 2017UtanríkisráðuneytiðFyrsta lota viðræðna EFTA við MERCOSUR-ríkinMERCOSUR er tollablandalag fjögurra ríkja, Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrugvæ. Samtals er íbúafjöldi þeirra um 260 milljónir.
19 júní 2017UtanríkisráðuneytiðÁrangur, gagnsæi og ábyrgð einkenna íslenska þróunarsamvinnuNiðurstöður fyrstu jafningjarýni Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar á íslenskri þróunarsamvinnu eru góður vitnisburður um framlag Íslands í málaflokknum.
19 júní 2017DómsmálaráðuneytiðHlutfall kynjanna í nýjum nefndum, ráðum og stjórnum aldrei verið jafnaraHlutur karla og kvenna í nýjum nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytanna hefur aldrei verið jafnara. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Jafnréttisstofu með greiningu á kynjaskiptingu í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2016.
19 júní 2017DómsmálaráðuneytiðFrá úthlutun styrkja úr Jafnréttisjóði á kvennadaginn 19. júníFélags- og jafnréttismálaráðherra, úthlutaði í dag tæpum 100 milljónum króna í styrki úr Jafnréttissjóði Íslands. Veittir voru styrkir til 26 verkefna og rannsókna sem miða að þ ví að efla jafnrétti kynjanna. Hér fylgja upplýsingar um verkefnin og myndir frá styrkveitingunni sem fór fram í Hörpu.
19 júní 2017Mennta- og barnamálaráðuneytiðSamstarfssamningur um aðgang að hugbúnaðiMennta- og menningarmálaráðuneyti og Microsoft á Íslandi hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára sem tryggir íslenskum menntastofnunum aðgang að hugbúnaði frá Microsoft á hagstæðum kjörum.
19 júní 2017InnviðaráðuneytiðUmsagnarfrestur framlengdur um drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd póstþjónustuFramlengdur hefur verið frestur til að skila inn umsögnum um drög að breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir um drögin til og með 26. júní næstkomandi og skulu þær berast á netfangið postur@srn.is.
19 júní 2017Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðVarðveisla menningararfleiðar á stafrænu formi : staða hjá söfnum og menningarstofnunum landsinsÍ skýrslunni er leitast við að kortleggja stöðu stafrænnar endurgerðar íslenskrar menningararfleifðar hjá söfnum og menningarstofnunum landsins og skapa þannig grundvöll fyrir stjórnvöld til að taka ákvarðanir um næstu skref.
19 júní 2017ForsætisráðuneytiðStarfshópur um hlutverk lífeyrissjóða í uppbyggingu atvinnulífsRáðherranefnd um efnahagsmál hefur fjallað um málefni lífeyrissjóða og ákveðið að forsætisráðherra skipi starfshóp um hlutverk þeirra í uppbyggingu atvinnulífs.
18 júní 2017UtanríkisráðuneytiðFulltrúi Íslands forseti aðildarríkjafundar hafréttarsamnings SÞÁ fundinum var m.a. fjallað um starf landgrunnsnefndar SÞ, starf og fjármál hafréttardómstólsins og önnur málefni sem tengjast hafréttarsamningnum.
18 júní 2017UtanríkisráðuneytiðGrænlendingum boðin aðstoðGuðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Suka K. Frederiksen, utanríkisráðherra Grænlands, ræddu í dag í síma vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem skall á byggðinni Nuugaatsiaq í nótt
17 júní 2017ForsætisráðuneytiðHátíðarræða forsætisráðherra á 17. júníBjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti hátíðarræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní.
16 júní 2017ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra fundar með forsætisráðherra SlóvakíuBjarni Benediktsson, forsætisráðherra, átti hádegisverðarfund í dag með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu.
16 júní 2017InnviðaráðuneytiðSkýrsla um endurskoðun á rekstri flugvallaVinnuhópur, sem Ólöf Nordal, þáverandi innanríkisráðherra, setti á laggirnar í ágúst 2016, og falið var að skoða hvort breytingar á rekstrarfyrirkomulagi innanlandsflugvalla gætu stuðlað að hagkvæmari og skilvirkari almenningssamgöngum lauk störfum í maí sl.…
16 júní 2017DómsmálaráðuneytiðAuglýst eftir tveimur skrifstofustjórumDómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti skrifstofustjóra í ráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 3. júlí nk.
16 júní 2017UtanríkisráðuneytiðKafbátaeftirlitsæfing við Ísland 23. júní - 6. júlíNíu ríki Atlantshafsbandalagsins, Bandaríkin, Noregur, Frakkland, Þýskaland, Bretland, Danmörk, Kanada, Pólland og Holland. taka þátt í æfingunni.
16 júní 2017AtvinnuvegaráðuneytiðFerðamálaráði falið að gera tillögur um viðbrögð við þremur áskorunum í ferðaþjónustuRáðherra ferðamála hefur óskað eftir því við ferðamálaráð að ráðið geri tillögur um aðgerðir af hálfu stjórnvalda til að bregðast við þremur áskorunum sem ætla má að raski samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu.
16 júní 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðLandspítali og Verandi tilnefnd til Umhverfisverðlauna NorðurlandaráðsNorræn dómnefnd hefur valið 11 verkefni til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs úr hópi þeirra tillagna sem borist hafa frá almenningi á Norðurlöndum. Þemað í ár eru verkefni sem færa okkur nær úrgangslausu samfélagi.
16 júní 2017Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðVísinda- og tækniráð samþykkir stefnu og aðgerðaáætlun til þriggja áraStefnan miðar að því að auka afköst rannsókna- og nýsköpunarkerfisins með markvissri og vel grundaðri ákvarðanatöku og skilvirkri nýtingu fjármagns.
16 júní 2017DómsmálaráðuneytiðHervör L. Þorvaldsdóttir kjörin forseti LandsréttarNýskipaðir dómarar við Landsrétt komu saman til fyrsta fundar í gær. Á fundinum var Hervör L. Þorvaldsdóttir kjörin forseti Landsréttar og Davíð Þór Björgvinsson varaforseti réttarins.
16 júní 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðEndurskoðuð fráveitureglugerð send út til umsagnarNefnd um endurskoðun reglugerðar um fráveitur og skólp hefur skilað tillögum að breyttri reglugerð til ráðherra ásamt greinargerð. Nefndin leggur til ýmsar breytingar sem eru ætlaðar til að einfalda ákvæði reglugerðarinnar og gera hana skýrari.
16 júní 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðBreyting á byggingarreglugerð vegna orkuskipta í samgöngumUmhverfis- og auðlindaráðuneytið vinnur nú að því að sett verði í byggingarreglugerð bindandi ákvæði um að í nýbyggingum og við endurbyggingu húsnæðis skuli gert ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla.
16 júní 2017DómsmálaráðuneytiðÚthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júníÞorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, afhendir styrki úr Jafnréttissjóði Íslands 19. júní næstkomandi. Styrkveitingin fer fram við athöfn í Silfurbergi A í Hörpu kl. 9.00 – 11.00. Allir velkomnir.
16 júní 2017HeilbrigðisráðuneytiðTillaga að íslenskri krabbameinsáætlunSkýrsla ráðgjafarhóps með tillögu til heilbrigðisráðherra um íslenska krabbameinsáætlun til ársins 2020 var birt á vef Stjórnarráðsins 7. júlí sl. Verkefnisstjórn verður falið að móta framkvæmd og eftirfylgni hennar og gera tillögu um forgangsröðun verkefna á grundvelli fjárheimilda.
16 júní 2017ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra á hádegisverðarfund með forsætisráðherra SlóvakíuBjarni Benediktsson, forsætisráðherra, mun eiga hádegisverðarfund í dag í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu.
16 júní 2017Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðMenningarsjóður Íslands og FinnlandsLokið er úthlutun framlaga og styrkja fyrir seinni hluta ársins 2017 og fyrri hluta ársins 2018.
16 júní 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðFramlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið 2017Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2017. Umsóknum ber að skila fyrir kl. 14.00 föstudaginn 14. júlí 2017.
16 júní 2017ForsætisráðuneytiðRíkisstjórnin styður menningarkynningu í tengslum við EM kvennaRíkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra, að verja 6 millj. kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til menningarkynningar í tengslum við Evrópumót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Hollandi dagana 16. júlí til 6. ágúst næstkomandi.
15 júní 2017UtanríkisráðuneytiðUtanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsins funda í ReykjavíkMarkar lok formennsku Íslands í ráðinu 2016-2017.
15 júní 2017HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðisráðherra ávarpaði þing norrænna heimilislæknaÓttarr Proppé heilbrigðisráðherra ræddi um heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað fólks í heilbrigðiskerfinu og eflingu hennar til að sinna því hlutverki sem best á 20. þingi norrænna heimilislækna í Hörpu í gær. Þetta er stærsta læknaráðstefnan sem haldin hefur verið hér á landi.
15 júní 2017Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðEignarnám vegna Kröflulínu 4 staðfestHæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að eignarnám af hálfu Landsnets vegna Kröflulínu 4 hafi verið heimilt.
15 júní 2017HeilbrigðisráðuneytiðHeilsueflandi samfélag í BláskógabyggðUm 74% landsmanna búa nú í sveitarfélögum sem taka þátt í verkefninu um heilsueflandi samfélag með samningi við Embætti landæknis. Heilbrigðisráðherra ræddi áherslur stjórnvalda varðandi lýðheilsu og heilsueflingu við undirritun samnings um þátttöku Bláskógabyggðar í verkefninu nýlega.
14 júní 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðFullgilding Íslands á bókun ILO um afnám nauðungarvinnuÞorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra afhenti í dag Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu.
14 júní 2017Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytiðStarfsemi og safnkostur Tónlistarsafns Íslands flutt til Þjóðminjasafns Íslands og Landsbókasafns Íslands - HáskólabókasafnsÍ fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ, Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Þjóðminjasafni Íslands er greint frá því að starfsemi Tónlistarsafns Íslands verði ekki haldið áfram í núverandi mynd
14 júní 2017InnviðaráðuneytiðDrög að breytingum á sveitarstjórnarlögum til umsagnarSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, er varðar fjölda borgarfulltrúa í Reykjavík. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi á síðasta þingi en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess þá. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið postur@srn.is til 14. júlí næstkomandi.
14 júní 2017Mennta- og barnamálaráðuneytiðHandbók um skólaráð – fyrir skólaráðGefin hefur verið út Handbók um skólaráð – fyrir skólaráð. Hún var gerð í samstarfi Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Sambands Ísl. sveitarfélaga með ráðgjöf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, umboðsmanni barna og SAMFOK.
14 júní 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytiðRíkisreikningur 2016Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2016 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi. Helstu niðurstöður ríkisreiknings fyrir 2016 eru að tekjujöfnuður ársins var jákvæður um 294,6 ma.kr. samanborið við jákvæðan 20,0 ma.kr. tekjujöfnuð árið 2015.
14 júní 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytiðFjölgun ferðamanna meiri en vöxtur í kortaveltuKortavelta erlendra ferðamanna í íslenskum krónum jókst um tæp 28% í apríl 2017 miðað við sama mánuð árið áður. Á sama tíma var fjölgun ferðamanna um 62% og var þetta fimmti mánuðurinn í röð sem vöxtur ferðamanna var meiri en vöxtur í kortaveltu þeirra, samkvæmt samantekt ráðuneytisins um þetta efni.
14 júní 2017InnviðaráðuneytiðNýjar gerðir ESB vegna niðurfellingar reikigjalda innleiddarSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú innleitt nýjar gerðir Evrópusambandsins á sviði fjarskiptaþjónustu er lúta að því að fella niður reikigjöld innan Evrópska efnahagssvæðisins. Frá og með 15. júní 2017 falla reikigjöld niður innan EES. Í því felst að neytendur EES-ríkja munu greiða sama gjald fyrir farsímanotkun á ferðalögum innan EES og þeir greiða heima.
14 júní 2017AtvinnuvegaráðuneytiðSalernum fyrir ferðamenn komið upp á 15 stöðum hringinn í kringum landiðStjórnstöð ferðamála og Vegagerðin völdu staðina í sameiningu og byggðu þar m.a. á fyrri greiningum verkfræðistofunnar Eflu. Við val á staðsetningu var höfð hliðsjón af því að langt væri til næsta þjónustustaðar.
13 júní 2017DómsmálaráðuneytiðHlutföll kynja í nefndum velferðarráðuneytisinsVelferðarráðuneytið birtir hér með upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum sem skipaðar eru á vegum ráðherra velferðarráðuneytisins, líkt og skylt er samkvæmt jafnréttislögum. Hlutfall kvenna var 53,7% og karla 46,3% í nefndum ráðuneytisins sem skipaðar voru á síðasta ári.
13 júní 2017Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðLýðheilsuvísar gefnir út í annað sinnEmbætti Landlæknis kynnti í gær Lýðheilsuvísa 2017 á kynningarfundi í Hofi á Akureyri. Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan landsmanna og gera m.a. kleift að skoða stöðuna hvað þetta varðar eftir heilbrigðisumdæmum.
13 júní 2017DómsmálaráðuneytiðRáðherra ávarpar ársfund ILO Félags- og jafnréttismálaráðherra ávarpaði í dag 106. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) sem haldið er í Genf. Þingið sækja á sjötta þúsund fulltrúar atvinnurekenda, samtaka launafóks og ríkisstjórna hvarvetna úr heiminum.