09 febrúar 2012UtanríkisráðuneytiðFundur um þróunarmál í ReykjavíkÁrlegur fundur ráðuneytisstjóra þróunarmála frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Írlandi og Hollandi var haldinn í Reykjavík í dag og í gær.
08 febrúar 2012DómsmálaráðuneytiðMannréttindafulltrúi Evrópuráðsins heimsækir ÍslandMannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Thomas Hammarberg frá Svíþjóð, er nú í heimsókn hér á landi og átti meðal annars viðræður við innanríkisráðherra og velferðarráðherra. Mannréttindafulltrúinn heimsækir aðildarlöndin og fundar með stjórnvöldum, ýmsum stofnunum og félagasamtökum og gefur í framhaldinu út skýrslu þar sem ábendingum er komið á framfæri við stjórnvöld.
08 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðÚtibú umboðsmanns skuldara opnað á AkureyriOpnað hefur verið útibú á vegum embættis umboðsmanns skuldara á Akureyri. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra var viðstaddur opnunina síðastliðinn föstudag.
08 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðSkýrsla nefndar vegna endurskoðunar iðnaðarlagaNefnd sem iðnaðarráðherra skipaði til að skoða hugsanlega endurskoðun iðnaðarlaga, nr. 42/1978, hefur skilað skýrslu með tillögum sínum til ráðherra. Nefndin leggur til að iðnaðarlögin verði endurskoðuð og að löggiltar iðngreinar verði framvegis tilgreindar í iðnaðarlögum í stað reglugerðar. Tillögurnar fara nú í opið umsagnarferli til 19. mars.
08 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðGagnaver Verne Global opnar í dag að Ásbrú í ReykjanesbæÞað eru nú liðin tæp fjögur ár síðan fyrirtækið Verne Global keypti stórar byggingar af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Síðan þá hefur verið markvisst unnið að uppbyggingu á alþjóðlegu gagnaveri sem selur þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu.
08 febrúar 2012Fjármála- og efnahagsráðuneytiðHvað kostar þekking?Ráðstefna um launamál háskólamenntaðra verður haldin í samstarfi fjármálaráðuneytisins og BHM á Hilton Reykjavík Nordica, 10. febrúar 2012 kl. 10.00-15.00.
08 febrúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðÓskað eftir umsögnum um frumvarp vegna nýtingar hlunnindaUmhverfisráðuneytið óskar eftir athugasemdum við drög að frumvarpi sem ætlað er að breyta lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í frumvarpinu er fjallað um hvernig staðið skuli að nýtingu hlunninda, þar með talinni eggjatöku.
08 febrúar 2012UtanríkisráðuneytiðBókaþjóðin kynnt innan ESBSýningin Sögueyjan Ísland - Portrett af íslenskum samtímahöfundum opnaði í dag í húsakynnum framkvæmdastjórnar ESB í Brussel. Þórir Ibsen, sendiherra Íslands gagnvart ESB, og Jan Truszczynski, framkvæmdastjóri stjórnarsviðs mennta- og menningarmála, opnuðu sýninguna.
07 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðForsætisráðherra á leiðtogafundi Northern Future Forum í StokkhólmiNú í vikunni hittast forsætisráðherrar níu ríkja norðanverðrar Evrópu á leiðtogafundi í Stokkhólmi. Þeir ætla að miðla af reynslu viðkomandi landa og ræða hvernig vinna megi að varanlegum hagvexti samhliða bráðaaðgerðum gegn fjármálakreppunni sem einkennt hafa Evrópu undanfarin ár.
07 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðKonur og samkeppnishæfni EvrópuGrein eftir forsætisráðherra Norðurlanda, Eystrasaltslanda og Bretlands í tilefni af fundi þeirra í Stokkhólmi 8. og 9. febrúar næstkomandi.
07 febrúar 2012HeilbrigðisráðuneytiðÁkvörðun um brottnám allra PIP brjóstafyllingaTillaga velferðarráðherra um að bjóða öllum konum sem fengið hafa ígræddar PIP brjóstafyllingar hér á landi að þær verði numdar brott með aðgerð á vegum Landspítala var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í dag. Ákvörðunin er tekin í samræmi við faglegt mat embættis landlæknis.
07 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðÁtak til atvinnusköpunar – nýsköpunarstyrkir til að fara alla leið Öflug nýsköpun og frumkvöðlastarf eru lykilþættir í að byggja upp sterkt atvinnulíf. Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja
07 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðÁrangursstjórnunarsamningar við lista- og menningarstofnanirSamningar gerðir við nokkrar helstu menningarstofnanir.
07 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðMenningarráð Austurlands úthlutar styrkjumKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, tók þátt í glæsilegri athöfn á Skriðuklaustri
06 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðSkráningu að ljúka á málþing um sveitarstjórnarmálSkráningu lýkur um miðja viku á málþingið um eflingu sveitarstjórnarstigsins sem innanríkisráðuneytið og Háskólinn á Akureyri standa fyrir á Akureyri næstkomandi föstudag, 10. febrúar. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig á netfangið arny.g.olafsdottir@irr.is.
06 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðMálþing á morgun í tilefni af alþjóða netöryggisdeginumAlþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun, 7. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir”. Áhersla verður lögð á að kynslóðir miðli af þekkingu sinni og reynslu milli kynslóða, en þannig má stuðla að jákvæðri og öruggri notkun Netsins. Málþing í tilefni dagsins hefst klukkan 13 með ávarpi Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra.
06 febrúar 2012HeilbrigðisráðuneytiðTilkynning til kvenna vegna PIP brjóstafyllingaRáðuneytið og embætti landlæknis beina því til kvenna sem fengið hafa tilkynningu frá lýtalækni um að þær séu með PIP brjóstapúða en ekki borist boð um ómskoðun frá velferðarráðuneytinu að hafa samband við embætti landlæknis. Sama máli gegnir um konur sem telja að þær séu með PIP púða en ekki fengið bréf þess efnis.
06 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðIðnaðarráðherra mælir fyrir skýrslu um orkuskipti í samgöngumOddný G Harðardóttir mælti fyrir skýrslu um orkuskipti í samgöngum sl. föstudag. Skýrslan er hvoru tveggja í senn upplýsingabrunnur um lykilþætti varðandi orkuskiptin og um leið áætlun um það hvernig best verði staðið að því að stórauka hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngutækjum hvers konar.
06 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðGistinóttum fjölgaði um allt landÁrið 2011 var metár í komu erlendra ferðamanna til Íslands og hótel víða um land nutu sannarlega góðs af þeirri fjölgun. Gistinætur á íslenskum hótelum árið 2011 reyndust vera samtals 1.488.400 samanborið við 1.309.700 gistinætur árið 2010.
06 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðVeggspjald fyrir dag leikskólansKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, tók við veggspjaldi í morgun.
04 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðAuglýsing um úthlutun á svæði á þjóðlendu fyrir ökugerðiBæjarstjórn Ölfuss hefur auglýst tillögu að endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Ölfuss. Samhliða því auglýsir sveitarfélagið deiliskipulagstillögu.
04 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðNámskeið og próf til réttinda leigumiðlunarÍ samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og velferðarráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar nú í febrúar og mars.
04 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðAlþjóðlegur baráttudagur gegn krabbameinumGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra skrifar um baráttu gegn krabbameinum í blaðagrein í dag í tilefni alþjóðlegs baráttudags. Yfir 100 þjóðir taka þátt til að þrýsta á um að barátta gegn krabbameinum verði pólitískt viðfangsefni um allan heim.
03 febrúar 2012DómsmálaráðuneytiðNámskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaðurPrófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2012. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.
03 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðSkýrsla um gildi fjármálareglna afhent innanríkisráðherraStarfshópur sem innanríkisráðherra skipaði síðastliðið haust til að meta gildi fjármálareglna fyrir sveitarfélög sem lögfestar eru í nýjum sveitarstjórnarlögum hefur skilað skýrslu sinni. Telur hópurinn að fjármálareglurnar geri nýjar og ákveðnar kröfur til sveitarstjórna um fjármálastjórn.
03 febrúar 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðÚthlutun styrkja til gæðaverkefna í velferðarþjónustuGuðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.
03 febrúar 2012HeilbrigðisráðuneytiðEmbætti landlæknis ráðleggur brottnám allra PIP brjóstafyllingaÍ ljósi nýrrar skýrslur sérfræðingahópsins SCENIHR um PIP brjóstafyllingar telur landlæknir ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera.
03 febrúar 2012HeilbrigðisráðuneytiðMat á niðurstöðum sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingarÍslensk heilbrigðisyfirvöld fjalla nú um niðurstöður sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingar til að meta hvort þær gefi tilefni til endurskoðunar á aðgerðum stjórnvalda sem kynntar voru 10. janúar síðastliðinn. Einnig er horft til fyrstu niðurstaðna úr ómskoðunum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
03 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðJanúarmet í komu erlendra ferðamanna 17,5 fjölgun frá því í fyrra!Það er því ekki annað hægt að segja en að ferðaárið 2012 fari vel af stað því að nýliðinn janúarmánuður sló öll janúarmet í komu erlendra ferðamanna frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð fyrir áratug.
03 febrúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðDrög að frumvarpi til laga um loftslagsmál til umsagnarUmhverfisráðuneytið óskar eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um loftslagsmál. Með frumvarpinu er lagt til að í fyrsta skipti verði hér á landi sett heildarlöggjöf um loftslagsmál.
03 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðRétturinn til að njóta ávaxtanna af vinnu sinniÁvarp Katrínar Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra á málþingi BÍL um höfundarétt, 28. janúar 2012 í Iðnó.
03 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttastarf í þágu þjóðarinnarÁvarp Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra á 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, 28. janúar 2012.
03 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðMennta- og menningarmálaráðherra ávarpar ráðstefnu IðnmenntarKatrín Jakobsdóttir ávarpaði fulltrúa á ráðstefnu Iðnmenntar, sem haldið var 3. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Starfsmenntun, skóli – atvinnulíf. Gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi“.
03 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðFjórða úthlutun æskulýðssjóðs 2011Æskulýðssjóði bárust alls 24 umsóknir um styrk að upphæð 9.980.000 kr. vegna umsóknarfrests 1. nóvember 2011. Alls hlutu 15 umsóknir styrk að upphæð 3.430.000 kr.
03 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðDreifibréf til skólastjóra grunnskólaLesskilningur og mikilvægi lesturs hefur verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur beitt sér fyrir ýmsum aðgerðum og verkefnum tengdum lesskilningi og m.a. stutt útgáfu Orðarúnar, mat á lesskilningisem samið var af Dagnýju Elfu Birnisdóttur, Rósu Guðrúnu Eggertsdóttur og Amalíu Björnsdóttur og gefið út af Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri
03 febrúar 2012UtanríkisráðuneytiðHoyvíkurráðið fundar í ReykjavíkÁ árlegum fundi Hoyvíkurráðsins sem haldinn var í Reykjavík í gær ræddu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Kaj Leo Johannesen lögmaður Færeyja aukin viðskipti milli Íslendinga og Færeyinga.
02 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðInnanríkisráðherra mælti fyrir fjarskiptaáætlun á AlþingiTillögur til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára fjarskiptaáætlanir voru til umræðu á Alþingi í gær þegar innanríkisráðherra mælti fyrir þeim en umræðum var frestað og síðari mál tekin af dagskrá.
02 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðSala á grænum upprunaábyrgðum raforku geta orðið álitleg búbót Íslensku orkufyrirtækin gætu horft fram á umtalsverðar tekjur í tengslum við sölu á upprunaábyrgðum grænnar orku.
02 febrúar 2012AtvinnuvegaráðuneytiðSkýrsla um þróun efnahagsmála send ESBEfnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skýrslu um íslensk efnahagsmál (Pre-Accession Economic Programme).
02 febrúar 2012Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSamráð um losun gróðurhúsalofttegunda frá skipumFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sett af stað samráðsferli á netinu um hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá skipum. Meðal annars er horft til viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda.
02 febrúar 2012Mennta- og barnamálaráðuneytiðDagur leikskólans mánudaginn 6. febrúarfebrúar er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
01 febrúar 2012DómsmálaráðuneytiðInnanríkisráðherra kynnti sér kirkjumál og prentminjar á HólumFulltrúar þjóðkirkjunnar og Háskólans á Hólum kynntu ýmsa þætti kirkju-, menningar- og skólastarfs á Hólum í Hjaltadal fyrir innanríkisráðherra í heimsókn hans þangað um síðustu helgi. Var einnig rætt um ýmsar hugmyndir um framtíðarverkefni á Hólum.
01 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðSamið um almenningssamgöngur á SuðurnesjumSamband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) og Vegagerðin undirrituðu í dag samning um skipulagningu almenningssamgangna milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Er verkefnið í samræmi við þá áherslu ríkisstjórnarinnar að greiða fyrir auknum hlut almenningssamgangna.
01 febrúar 2012InnviðaráðuneytiðInnanríkisráðherra mælti fyrir fjarskiptaáætlun á AlþingiTillögur til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára fjarskiptaáætlanir voru til umræðu á Alþingi í dag þegar innanríkisráðherra mælti fyrir þeim en umræðum var frestað og síðari mál tekin af dagskrá. Þá lauk umræðu í gær um samgönguáætlanir og ganga þær nú til meðferðar umhverfis- og samgöngunefndar.
01 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðBetra samfélagEftirfarandi grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon birtist í Fréttablaðinu 1. febrúar 2012 á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar.
01 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðAukin bjartsýni við tímamótEftirfarandi grein eftir Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon birtist í DV 1. febrúar 2012 á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar.
01 febrúar 2012ForsætisráðuneytiðRíkisstjórnin þriggja áraRíkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tók við völdum 1. febrúar 2009 í kjölfar stjórnarslita Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hún hefur því verið við völd í landinu samfellt í þrjú ár.