24 febrúar 2012Utanríkisráðuneytið
Sameiginleg ræða Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um ástandið í Sýrlandi á sérstökum fundi ,,Vina Sýrlands" í Túnis
Villy Søvndal, utanríkisráðherra Danmerkur, flutti sameiginlega ræðu fyrir hönd allra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna um ástandið í Sýrlandi á sérstökum fundi ,,Vina Sýrlands" sem haldinn var í dag í Túnis. Þar fordæma Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin valdbeitingu sýrlenskra stjórnvalda gegn óbreyttum borgurum.