30 október 2013Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Formennskuverkefni Íslands kynnt
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti áherslur í umhverfismálum vegna formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni árið 2014, á fundi norrænu umhverfisráðherranna í Osló í dag. Yfirskrift formennskunnar er Gróska – lífskraftur þar sem aðaláherslan verður á lífhagkerfið.