08 nóvember 2010Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ný rannsókn um hagi og líðan ungs fólks á Norðurlöndunum
Rannsóknir & greining lauk nýverið samanburðarrannsókn meðal 16 – 19 ára nemenda á Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum, Grænlandi, Álandseyjum og Færeyjum. Rannsóknin heitir ,,The Nordic Youth Research“ og var styrkt af Norrænu ráðherranefndinni en unnin að frumkvæði mennta- og menningarmálaráðuneytisins.