02 mars 2002Heilbrigðisráðuneytið
Ávarp á fundi Félags íslenskra heimilislækna 2. mars 2002
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, sagði á fundi heilsugæslulækna á laugardaginn, þar sem fjallað var um framtíð heilsugæslunnar, að hann útilokaði ekki mismunandi rekstrarform í heilsugæslunni fyrirfram, ef það mætti verða til þess að slá á óánægju heilsugæslulækna með það hvernig laun þeirra verða til.