23 október 2008Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ávarp ráðherra á ársfundi ASÍ
Aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi, leiðir til að tryggja fólki rétt til búsetu í húsnæði sem það missir vegna fjárhagserfiðleika, mikilvægi þess að tryggja stöðu lífeyrisþega, þetta voru meðal fjölmargra atriða sem félags- og tryggingamálaráðherra reifaði á ársfundi ASÍ í dag. Þá gagnrýndi ráðherra ákvarðanir um kjör nýrra bankastjóra.