20 janúar 2015Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samningur við Reykjavíkurborg um móttöku og aðstoð við flóttafólk
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samning um móttöku og aðstoð við hópa flóttafólks sem koma til landsins í boði ríkisstjórnarinnar á árunum 2014 og 2015 og munu setjast að í Reykjavík.