11 nóvember 2009Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Breytendur afhentu umhverfisráðherra undirskriftalista
Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál. Breytendur krefjast þess að stjórnvöld skilgreini stöðu flóttamanna undan hlýnun jarðar og að Íslendingar taki sér stöðu meðal leiðandi þjóða í loftslagsmálum í Kaupmannahöfn í desember 2009.