17 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðNorrænu lýðheilsuverðlaunin afhent á EgilsstöðumMagnús Scheving hlaut Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2004. Verðlaunin fær hann fyrir Latabæ og þar með fyrir framlag sitt til bættrar lýðheilsu á Norðurlöndum og voru þau afhent við upphaf árlegs fundar norrænna heilbrigðis- og félagsmálaráðherra sem hófst á Egilsstöðum í dag.
17 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðRáðherrafundur matvælaráðherra Norðurlandanna á Akureyri 13. ágúst 2004Að afloknum fundinum var gefinn út fréttatilkynning, einnig samþykktu ráðherrarnir yfirlýsingu um sjávarútvegsmál.
17 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðSkýrsla um leiðir til að auka öryggi útflutningsteknaRannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur að beiðni sjávarútvegsráðherra gert skýrslu um leiðir til að auka öryggi útflutningstekna íslenskra sjávarafurða
17 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðAfhending Norrænu lýðheilsuverðlaunannaÁvarp Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við afhendingu Norrænu lýðheilsuverðlaunanna 17. ágúst 2004.
17 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðSamningur um stuðning við uppbyggingu í ÍrakUndirritaður hefur samningur milli Íslands og Þróunarmálastofnunar SÞ vegna endurreisnar og uppbyggingarstarfs í Írak.
16 ágúst 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðUmsóknir um embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisUmsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins rann út 10. ágúst sl. og voru umsækjendur sjö.
16 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðSérfræðingur á fjármálaskrifstofuLaust er til umsóknar starf sérfræðings á fjármálaskrifstofu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.
16 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðGeðrækt fær alþjóðlega viðurkenninguVerkefnið Geðrækt hefur verið útnefnt af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtökunum sem fyrirmyndarverkefni á sviði geðræktar. Geðrækt er samstarfsverkefni Landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítalans og Heilsugæslunnar í Reykjavík.
16 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðHönnunarsýning í Gerðarsafni.Ávarp ráðherra við opnun sýninga á sígildri danskri gullaldarhönnun eftir Börge Mogensen og Hans J. Wegner og úrvali af íslenskri húsgagnahönnun - góðri útflutningsvöru í Gerðarsafni 13. ágúst 2004.
16 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðTilkynning til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvótaUmsóknarfrestur um byggðarkvóta er til 1. október 2004.
15 ágúst 2004DómsmálaráðuneytiðRæða dóms- og kirkjumálaráðherra á HólahátíðBjörn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti ræðu á Hólahátíð í dag og birtist ræða hans hér í heild.
15 ágúst 2004ForsætisráðuneytiðAuglýsing frá Kristnihátíðarsjóði 2004Kristnihátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 12 frá 28. febrúar 2001, var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi.
13 ágúst 2004DómsmálaráðuneytiðNý lög um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipaHinn 1. október n.k. taka gildi ný lög um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa nr. 99/2004. Unnið er að samningu reglugerða á grundvelli hinna nýju laga, þar á meðal reglugerðar um námskeið og próf fyrir þá sem öðlast vilja löggildingu sem fasteignasalar og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1. október n.k.
13 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðSamhæfing í málefnum barna og unglinga með geðraskanirTillaga um skilgreiningu þriggja þjónustustiga í málefnum barna og unglinga með geðraskanir og aðgerðir til að auka samþættingu þjónustunnar. Skýrsla Kristjáns Más Magnússonar, verkefnisstjóra, unnin fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
13 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðÚtgáfa reglugerða um stjórn fiskveiða fiskveiðiárið 2004/2005Ráðuneytið hefur gefið út reglugerðir sem lúta að stjórnun fiskveiða á fiskveiðiárinu 2004/2005.
13 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðStofnun stjórnmálasambandsFastafulltrúar Íslands og Papúa Nýju Gíneu hjá Sameinuðu þjóðunum hafa undirritað samkomulag um stofnun stjórnmálasambands ríkjanna.
12 ágúst 2004InnviðaráðuneytiðSamferð - vefrit samgönguráðuneytis 2.tbl. 1.árg. 2004Umfjöllunarefni: Verndarráðstafanir vegna flugs og siglinga innleiddar á Íslandi.
12 ágúst 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðEftirlitsstofnun EFTA samþykkir starfsskilyrði Íbúðalánasjóðs og hækkun lánshlutfalls í 90%Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel (ESA) samþykkti í dag ákvörðun sem felur í sér staðfestingu þess að starfsskilyrði Íbúðalánasjóðs brjóti ekki gegn ákvæðum EES-samningsins.
12 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðNorrænn ráðherrafundur á ÍsafirðiTveggja daga fundi fulltrúa frá heilbrigðis-, félagsmála- og dómsmálaráðuneytum Norðurlandanna lauk á Ísafirði í gær.
12 ágúst 2004HeilbrigðisráðuneytiðHeilbrigðisstofnanir á Suðurlandi sameinastJón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Magnús Skúlason í stöðu framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands frá 1. september þegar sameining heilbrigðisstofnana á Suðurlandi tekur gildi. Fimmtán sóttu um stöðuna.
12 ágúst 2004Fjármála- og efnahagsráðuneytiðGreiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - júní. Greinargerð: 12. ágúst 2004Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins. Heildartekjur ríkissjóðs námu 133,5 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins og hækkuðu um 3 milljarða eða 2,3% hækkun frá árinu á undan.
12 ágúst 2004Fjármála- og efnahagsráðuneytiðVefrit fjármálaráðuneytisins 12. ágúst 2004Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - júní 2004 - Um samræmingu skattlagningar launa og fjármagns.
12 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðMótmæli íslenskra stjórnvalda ítrekuðSendiherra Íslands í Noregi afhenti norskum stjórnvöldum í dag orðsendingu þar sem ítrekuð voru mótmæli íslenskra stjórnvalda við setningu reglugerðar um bann við veiðum á norsk-íslenskri síld við Svalbarða og reglugerðar um aflahámark á svæðinu.
12 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðAfhending trúnaðarbréfsBendikt Ásgeirsson, sendiherra, afhenti í gær dr. Sam Nujoma, forseta Namibíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Namibíu með aðsetur í Mósambík.
11 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðAfhending trúnaðarbréfsSveinn Björnsson, sendiherra, hefur afhent Antonio Maria Costa, framkvæmdastjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg (UNOV), trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands.
11 ágúst 2004Mennta- og barnamálaráðuneytiðGildistaka aðalnámskrár framhaldsskóla, brautalýsingarMenntamálaráðuneytið vekur hér með athygli á því að menntamálaráðherra hefur staðfest endurskoðaða útgáfu af síðari hluta aðalnámskrár framhaldsskóla
10 ágúst 2004DómsmálaráðuneytiðIceland’s Fourth Periodic Report on Implementation of the International Covenant on Civil and Political Rights Pursuant to Article 40 of the Covenant
10 ágúst 2004InnviðaráðuneytiðUndirritun loftferðasamningsMánudaginn 9. ágúst 2004 var undirritaður í Reykjavík loftferðasamningur milli Íslands og kínverska sjálfstjórnarsvæðisins Hong Kong.
10 ágúst 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðBreytingar á reglugerðum um Jöfnunarsjóð sveitarfélagaFélagsmálaráðherra staðfesti nýlega breytingar á tveimur reglugerðum er varða Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
10 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðSamkomulag um verðmæti flutningsvirkja sem mynda Landsnet hf.Nýtt hlutafélag, Landsnet, skal frá og með 1. janúar n.k. annast flutning raforku og kerfisstjórnun samkvæmt nýjum raforkulögum.
10 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðSamkomulag um verðmæti flutningsvirkja sem mynda Landsnet hf.Nýtt hlutafélag, Landsnet, skal frá og með 1. janúar n.k. annast flutning raforku og kerfisstjórnun samkvæmt nýjum raforkulögum.
09 ágúst 2004DómsmálaráðuneytiðFjórða skýrsla Íslands um framkvæmd alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi
09 ágúst 2004DómsmálaráðuneytiðReport on the application of the convention on combating bribery of foreign public officials in international business transactions.
09 ágúst 2004InnviðaráðuneytiðDrög að reglugerðum til umsagnarSamgönguráðuneytið hefur ákveðið til reynslu að setja drög að reglugerðum í umferðarmálum á heimasíðu ráðuneytisins og óska umsagna.
09 ágúst 2004ForsætisráðuneytiðHeimkoma forsætisráðherra af spítalaDavíð Oddsson forsætisráðherra, sem lagðist inn á Landspítala-háskólasjúkrahús 21. júlí sl. var útskrifaður af sjúkrahúsinu í dag og mun hvílast heima næstu vikur þar til hann getur hafið störf á ný.
09 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðLoftferðasamningur milli Íslands og sérstjórnarsvæðisins Hong Kong undirritaðurMánudaginn 9. ágúst sl. var undirritaður í Reykjavík loftferðasamningur milli Íslands og kínverska sérstjórnarsvæðisins Hong Kong.
06 ágúst 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðSameining uppsveita ÁrnessýsluÍ skoðanakönnun sem Skeiða- og Gnúpverjahreppur lagði fyrir kjósendur í hreppnum samhliða forsetakosningunum 26. júní síðastliðinn, kom fram að meiri hluti þátttakenda er hlynntur því að fram fari viðræður um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í uppsveitum Árnessýslu.
06 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðAfhending trúnaðarbréfsHjálmar W. Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, afhenti 5. ágúst, frú Ivy Dumont, landsstjóra Bahamaeyja, trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands á Bahamaeyjum.
06 ágúst 2004Mennta- og barnamálaráðuneytiðStyrkir úr ÆskulýðssjóðiMenntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði samkvæmt reglum nr. 113 frá 22. janúar 2004.
06 ágúst 2004Mennta- og barnamálaráðuneytiðÍþróttasjóðurMenntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um stuðning úr Íþróttasjóði.
05 ágúst 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðSameining sveitarfélaga ákveðin á HéraðiSveitarstjórnir sveitarfélaganna þriggja, Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs, hafa samþykkt sameiningu sveitarfélaganna eftir tvær umræður í sveitarstjórnum.
05 ágúst 2004ForsætisráðuneytiðLíðan forsætisráðherraDavíð Oddsson forsætisráðherra er nú kominn á legudeild Landspítala-háskólasjúkrahúss eftir aðgerð á skjaldkirtli í fyrradag.
05 ágúst 2004Fjármála- og efnahagsráðuneytiðVefrit fjármálaráðuneytisins 5. ágúst 2004Afkoma ríkissjóðs janúar - maí 2004 - Fjármagnstekjur vaxa hratt - Innflutningur í júlí 2004.
05 ágúst 2004Fjármála- og efnahagsráðuneytiðGreiðsluafkoma ríkissjóðs janúar - maí. Greinargerð: 5. ágúst 2004Nú liggja fyrir tölur um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu fimm mánuði ársins. Heildartekjur ríkissjóðs námu 109,2 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins og hækkuðu um 0,5 milljarða eða 0,4% hækkun frá árinu á undan
05 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðHandverkshátíð að HrafnagiliRæða Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra, við opnun á handverkshátíðinni að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit.
04 ágúst 2004ForsætisráðuneytiðFundur forsætisráðherra NorðurlandaSunnudaginn 8. ágúst nk. verður haldinn fundur forsætisráðherra Norðurlanda í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð. Á fundinum sem hefst kl. 17:00 verður fjallað um norræn málefni, Evrópumál og önnur alþjóðamál.
04 ágúst 2004UtanríkisráðuneytiðAfhending trúnaðarbréfsHjálmar W. Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, afhenti 2. ágúst, Hipólito Mejía, forseta Dóminíska lýðveldisins, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands.
03 ágúst 2004Félags- og húsnæðismálaráðuneytiðBreyting á reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélagaReglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, nr. 944/2000, hefur verið breytt með reglugerð nr. 561/2004.
03 ágúst 2004ForsætisráðuneytiðFréttir af líðan forsætisráðherraEins og fram hefur komið lagðist Davíð Oddsson forsætisráðherra inn á Landspítala-háskólasjúkrahús að morgni 21. júlí sl. vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn kom jafnframt í ljós staðbundið æxli í hægra nýra hans.
03 ágúst 2004AtvinnuvegaráðuneytiðSíldarævintýrið 2004.Ávarp ráðherra við setningu Síldarævintýrsins 2004, Siglufirði 24. júlí 2004.