19 maí 2015Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi
Með vísan til reglugerðar nr. 447/2015, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 15. maí 2015, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.