04 mars 2008Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfisráðherra átti fund með umhverfisstjóra Evrópusambandsins
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti fund með Stavros Dimas, umhverfisstjóra Evrópusambandsins, í Brussel í dag. Umræðuefni fundarins var stefna Evrópusambandsins í loftslagsmálum, væntanlegar samningaviðræður um nýjan alþjóðasaming um loftslagsmál og löggjöf á sviði umhverfismála.