19 nóvember 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Tímamótasamstarf sem tryggir vinnu og virkni
Í grein í Fréttablaðinu í dag skrifar Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra um verkefnið Vinna og virkni – átak til atvinnu 2013. „Ríki og sveitarfélög, samtök launafólks og atvinnurekenda, skólakerfið, félagasamtök og almenningur hafa lagst á eitt í sannkölluðu þjóðarátaki gegn atvinnuleysi“ skrifar ráðherra og segir verkefnið sýna hve miklu sé hægt að koma til leiðar með samtakamættinum.